Fundargerð bæjarráðs frá 10/3 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
5. fundur
Til sérstakrar afgreiðslu:
Halldór Jörgensson, ræddi 1. tl., bréf UMF Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss. Halldór lagði fram eftirfarandi tillögu.$line$$line$"Björt Framtíð leggur til að farið verði í ítarlega þarfa- og kostnaðargreiningu á byggingu íþróttamannvirkis sem ýmist gengur undir nafninu "knatthús" eða "fjölnota íþróttahús"."$line$$line$Greinargerð $line$Gerð hefur verið ágæt skýrsla um staðarval á fjölnotahúsi án þess að ítarleg greining og umræða hefur farið fram á þörf, byggingarkostnaði og rekstrarkostnaði. Á ágætum íbúafundi um málið þann 18. mars komu ýmsar raddir í ljós sem sýna að samstaða um byggingu slíks hús er ekki næg innan bæjarfélagsins. Ýmist er rætt um knatthús eða fjölnotahús án þess að skilgreina nægjanlega vel hvaða starfsemi slíkt hús eigi að þjóna eða hvaða viðbótar nýtingarmöguleikar eigi að vinnast af byggingu hússins ef einhverjir. Bygging sem þessi telst varla til skylduverkefna sveitarfélaga og Björt Framtíð leggur því áherslu á að íbúar Garðabæjar fái nægjanlegar upplýsingar til að meta kosti og galla við þá möguleika sem eru í boði ásamt kostnaði við byggingu og árlegum kostnaði sem kann að leggjast á íbúa vegna reksturs slíks mannvirkis. Leita mætti til sveitarfélaga sem þegar hafa farið í slíka framkvæmd til að afla frekari upplýsinga um kostnað, ávinning og nýtingu. Nægjanlegar upplýsingar og umræða gefur bæjarbúum kost á að meta hvort skynsamlegt sé að ráðast í framkvæmdina og þannig að taka upplýsta, skynsamlega ákvörðun, byggða á rökum, um byggingu eður ei.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 15. tl., lokaskýrslu sérstakrar stjórnar um ferðaþjónustu fatlaðs fólks og sagði frá að framkvæmdaráð sem skipað hafi verið í framhaldi af vinnu sérstakrar stjórnar hafi tekið til starfa.$line$$line$María Grétarsdóttir, ræddi 1. tl., bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss: Þá ræddi bæjarstjóri framkomna tillögu og lagði til að henni verði vísað til bæjarráðs.$line$$line$Halldór Jörgensson, ræddi að nýju framkomna tillögu.$line$$line$Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 1. tl., að nýju.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 1. tl., að nýju$line$$line$Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi bréf UMF-Stjörnunnar varðandi áframhaldandi uppbyggingu íþróttamannvirkja og íbúafund í gær um staðarval fjölnota íþróttahúss.$line$$line$María Grétarsdóttir ræddi 1. tl., að nýju.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir að vísa framkominni tillögu til bæjarráðs.$line$$line$Fundargerðin sem er 16 tl. er samþykkt samhljóða.