Beint í efni

Fundargerð umhverfisnefndar frá 11/3 ´15.

Málsnúmer 1503006F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. fundur

Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 1. tl., skýrslu um fuglalíf á Álftanesi og sagði frá fundi sem fyrirhugaður er um miðjan apríl að Bjarnastöðum þar sem skýrslan verður nánar kynnt og rædd. Jóna ræddi einnig 3. tl., vöktunaráætlun Vífilsstaðavatns og Urriðavatns, 4. tl., lokur við Bessastaðatjörn og umhverfi á Bessastaðanesi, 5. tl. fræðsluefni um trjágróður og 9. tl., hreinsunarátak 2015.$line$$line$Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., lokur við Bessastaðatjörn og umhverfi á Bessastaðanesi.$line$$line$Sigurður Guðmundsson, ræddi 9. tl., hreinsunarátak 2015 og hvatti til að virkja bæjarbúa með reglubundnum hætti til að hreinsa rusl í sínu næsta nágrenni. Þá ræddi Sigurður ástand vega og stíga og benti á í því sambandi að huga þurfi að nauðsynlegu viðhaldi eftir harðan og erfiðan vetur.$line$ $line$Jóna Sæmundsóttir, ræddi að nýju 9. tl. hreinsunarátak 2015 og sagði nánar frá undirbúningi og framkvæmd þess og kom fram að send verður tilkynning í öll hús með hvatningu til bæjarbúa um þátttöku í átakinu.$line$$line$María Grétarsdóttir, 9. tl., hreinsunarátak og lagði áherslu á hreinsun stíga og gangstétta.$line$$line$Fundargerðin lögð fram.