Beint í efni

Tillaga um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar.

Málsnúmer 1403558

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

5. fundur

Fyrir liggur jákvæð umsögn heilbrigðisnefndar um málið, sbr. fundargerð nefndarinnar frá 19. febrúar sl.$line$$line$Bæjarstjórn samþykkir fyrir sitt leyti tillögu um verndarsvæði vatnsbóla innan lögsagnarumdæma Mosfellsbæjar, Reykjavíkurborgar, Seltjarnarnesbæjar, Kópavogsbæjar, Garðabæjar og Hafnarfjarðarkaupstaðar ásamt tillögu að uppdrætti af afmörkun verndarsvæðisins.

Bæjarráð Garðabæjar

02

10. (1678). fundur

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar að undangenginni afgreiðslu heilbrigðisnefndar.

Bæjarráð Garðabæjar

03

44. fundur

Lagt fram til kynningar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

13. fundur

Lögð fram tillaga að svæðisskipulagi vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt. Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur sem sæti á í stýrihóp gerði grein fyrir tillögunni. Tillögunni vísað til frekari kynningar á aukafundi vegna tillögu að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð Garðabæjar

05

33. fundur

Á fund bæjarráðs mætti Sveinn Óli Pálmarsson, verkfræðingur hjá Verkfræðistofunni Vatnaskilum og gerði hann nánari grein fyrir vinnu stýrihóps að gerð tillögu um endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu.$line$$line$Tillagan miðar að því að skilgreina vatnsból á höfuðborgarsvæðinu og verndarsvæði þeirra þannig að íbúar á svæðinu hafi tryggan aðgang að hreinu grunnvatni til vatnstöku sem ekki þarfnast sérstakar meðferðar.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$$line$Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, vék af fundi kl. 08:25.

Bæjarráð Garðabæjar

06

31. fundur

Lagt fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

07

3. fundur

Bæjarráð vísaði erindi SSH dags. 07.07.14 til umfjöllunar í skipulagsnefnd og umhverfisnefnd.$line$Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur kynnti tillögur stýrishóps um endurskoðun vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu. $line$

Ítarlegri kynningu Eysteins var vel tekið af nefndarfólki, enda er hann verkefninu vel kunnugur með störfum sínum í stýrihópnum.$line$$line$Umhverfisnefnd leggur til við bæjarráð að samþykkja tillögu stýrishópsins.

Bæjarráð Garðabæjar

08

27. fundur

Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar og umhverfisnefndar. Bæjarráð felur bæjarstjóra að hlutast til um kynningu á tillögunum í ágústmánuði.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

09

39. fundur

Kynning á tillögu á vinnslustigi, frá svæðisskipulagsstjóra SSH dags. 24.03.14 $line$Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur og Páll Stefánsson kynna fyrir nefndinni.

Nefndarmenn þakka ákaflega greinargóða og fræðandi kynningu.

Bæjarráð Garðabæjar

10

13. fundur

Lagt fram og vísað til tækni- og umhverfissviðs.