13. fundur
13. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
18.09.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Auður Hallgrímsdóttir - aðalmaður
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1407489
01
Breiðabólsstaðir, Álftanesi-undirbúningur friðlýsingar
Lagt fram erindi Minjastofnunar dagsett 17.júlí 2014 þar sem fram kemur að stofnunin hafi ákveðið að hefja undirbúning að friðlýsingu steinhlaðna hússins að Breiðabólsstöðum á Álftanesi í samræmi við tillögu ráðherra þar um. Lagt er til að friðlýsingin taki til ytra borðs hússins. Skipulagsnefnd gerir fyrir sitt leyti ekki athugasemd við tillöguna.
Málsnúmer 1302203
02
Kirkjubrú 1, dsk
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Kirkjubrúar sem forkynnt hefur verið. Lagðar fram ábendingar nágranna og umsækjanda frá desember 2013.$line$Guðni Pálsson deiliskipulagshöfundur gerði grein fyrir tillögunni.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1409239
03
Hellagata 31, breyting á deiliskipulagi
Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Hellagata 31. Sótt er um að hæðarkóti neðstu hæðar hækki um 1 metra og hæðarkóti 2.hæðar um 80 cm Heildarhæð hússins er þó óbreytt. Jafnframt er sótt um að stæði í bílageymslu verði 7 í stað 9 og stæði á lóð verði 11 og að smávægileg breyting verði gerð á út- og innskotum.$line$Skipulagsnefnd heimilar að vikið verði frá ákvæði 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 hvað varðar ofangreind atriði þar sem um óverulegt frávik frá gildandi skipulagi er að ræða í samræmi við 3.mgr.sömu greinar enda skerðast hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.
Málsnúmer 1401509
04
Lundaból, viðbygging, grenndarkynning byggingarleyfisumsóknar.
Lögð fram tillaga að breytingum á leikskólanum Lundarbóli að lokinni grenndarkynningu. Athugasemdir sem bárust vegna tillögunnar lagðar fram. Þær beinast að aukningu umferðar og að breytingum á opnu svæði á Hoffstaðahæð þar sem Lundaból stendur. Lögð fram tvö minnisblöð frá verkfræðistofunni Eflu þar sem annarsvegar er fjallað um bílastæðafyrirkomulag og hinsvegar um hugsanlega umferðaraukningu vegan stækkunarinnar.$line$Einar Ingimarsson arkitekt og Ragnhildur Skarphéðisdóttir gerðu grein fyrir mögulegum viðbrögðum við athugasemdum.$line$Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1402138
05
Silfurtún, deiliskipulag, breyting vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Silfurtúns sem gerir ráð fyrir hjóðvörnum meðfram Hafnarfjarðarvegi. Tillagan var í kynningu frá 4.júlí til 22.ágúst sl. Athugasemdir sem bárust lagðar fram. Athugasemdir beinast að hæð hljóðvarna, annarsvegar að þær séu og háar og skerði þar afleiðandi útsýni og hinsvegar að þær séu og lágar og uppfylli því vart kröfur um hljóðstig við íbúðarhús. Vegagerð gerir auk þess athugasemd við nálægð hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg skv skýringarmynd.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1310283
06
Strikið 1-3, breyting á dsk Sjálands
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir breytingu á lóðinni Strikið 1-3. Tillagan var í kynningu frá 14.apríl til 26.maí sl. Athugasemdir bárust frá stjórn Húsfélagsins að Löngulínu 2 sem beindust að áhrifum breytingarinnar á skuggavarp, vindafar, hjóðvist og útsýni. Lögð fram minnisblöð þar sem sýnt er fram á áhrif breytingarinnar á skuggvarp og vindafar. Skipulagsnefnd óskar eftir sambærilegu minnisblaði um áhrif breytingarinnar á hljóðvist eins og bent er á í athugasemdum.
Málsnúmer 1409088
07
Umsókn um byggingarleyfi - Lyngprýði 2
Lögð fram byggingarleyfisumsókn einbýlishúss að Lyngprýði 2. Hús fer lítillega út fyrir byggingarreit á tveimur stöðum og hafa eigendur Lyngprýðis 3, 4 og 5 áritað á uppdrátt staðfestingu þess að þeir gerir ekki athugasemd við það.$line$Skipulagsnefnd heimilar að vikið verði frá ákvæði 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 þar sem um óverulegt frávik frá gildandi skipulagi er að ræða í samræmi við 3.mgr.sömu greinar enda skerðast hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn. Guðrú Dóra Brynjólfdóttir vék af fundi undir þessum lið.
Málsnúmer 1407502
08
Umsókn um byggingarleyfi Ásbúð 102
Lögð fram tillaga að öðru sinni að viðbyggingu við íbúðarhúsið að Ásbúð 102. Samkvæmt tillögu fer viðbygging 1 metra út fyrir byggingareit til vesturs. Skipulagsnefnd vísar byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 þar sem að deiliskipulag er ekki í gildi í Holtsbúð. Grenndarkynna skal eigendum Ásbúðar 87, 89, 98, 100 og 104.
Málsnúmer 1306040
09
Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins 2015-2040.
Tillaga að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins ásamt umhverfisskýrslu lögð fram en svæðisskipulagsnefnd samþykkt þann 22.ágúst síðastliðinn að kynna tillöguna ásamt umhverfisskýrslu skv. 3.mgr. 23.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 sem er lokastig kynningar og skv. 1.mgr. 7.gr. laga um mat á umhverfisáhrifum áætlana nr. 105/2006. Óskað er eftir því að aðildarsveitarfélögin staðfesti þá ákvörðun fyrir 13.október. Formaður skipulagsnefndar leggur til að haldinn verði sérstakur fundur í skipulagsnefnd þar sem að svæðisskipulagið verði tekið til umfjöllunar.
Málsnúmer 1403558
10
Vatnsvernd á höfuðborgarsvæðinu - heildarendurskoðun
Lögð fram tillaga að svæðisskipulagi vatnsverndar á höfuðborgarsvæðinu sem bæjarstjórn Garðabæjar hefur samþykkt. Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur sem sæti á í stýrihóp gerði grein fyrir tillögunni. Tillögunni vísað til frekari kynningar á aukafundi vegna tillögu að svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins.
Málsnúmer 1405408
11
Almenningssamgöngustefna Reykjavíkur
Lögð fram stefnumörkin Reykjavíkurborgar í almenningssamgöngum í Reykjavík sem send var Garðabæ til umsagnar. Erindinu vísað til vinnu við gerð aðalskipulags Garðabæjar.