Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Hellagötu 31, dags. 18.09.14.

Málsnúmer 1409239

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

36 (1656). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. um skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfis hússins við Hellagötu 31 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

13. fundur

Lögð fram umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta sem nær til lóðarinnar Hellagata 31. Sótt er um að hæðarkóti neðstu hæðar hækki um 1 metra og hæðarkóti 2.hæðar um 80 cm Heildarhæð hússins er þó óbreytt. Jafnframt er sótt um að stæði í bílageymslu verði 7 í stað 9 og stæði á lóð verði 11 og að smávægileg breyting verði gerð á út- og innskotum.$line$Skipulagsnefnd heimilar að vikið verði frá ákvæði 2.mgr. 43.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010 hvað varðar ofangreind atriði þar sem um óverulegt frávik frá gildandi skipulagi er að ræða í samræmi við 3.mgr.sömu greinar enda skerðast hagsmunir nágranna í engu hvað varðar landnotkun, útsýni, skuggavarp eða innsýn.