36 (1656). fundur
36 (1656). fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
23.09.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1405089
01
Árshlutauppgjör Strætó bs. 30.06.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1409244
02
Fjárhagsáætlun og starfsáætlun stjórnar Strætó bs. 2015.
Lagt fram.
Málsnúmer 1409112
03
Svör við fyrirspurnum Steinþórs Einarssonar bæjarfulltrúa um félagslegt húsnæði og leikskólamál.
Lögð fram.
Málsnúmer 1409267
04
Bréf Birgis Rafns Friðrikssonar varðandi fyrirspurn um starfsemi í bílskúr við Kjarrmóa 8, dags. 01.09.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara.
Málsnúmer 1409241
05
Bréf Sendils varðandi samkeppnishamlandi aðgerðir í tengslum við miðlun rafrænna reikninga, dags. 08.09.14.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið í bréfi bréfritara um að tilvísun til ákveðins þjónustuaðila í bréfi bæjarins til viðskiptamanna vegna rafrænna reikninga hafi getað verið samkeppnishamlandi.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að ræða við bréfritara varðandi innleiðingu á þjónustu og móttöku rafrænna reikninga frá viðskiptaaðilum bæjarins.
Málsnúmer 1108131
06
Bréf SSH varðandi verklok og niðurstöður sóknaráætlunar fyrir höfuðborgarsvæðið 2013, dags. 16.09.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1409310
07
Bréf skólastjóra grunnskóla Garðabæjar varðandi stöðuhlutfall náms- og starfsráðgjafa í grunnskólum bæjarins, dags. 18.09.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015.
Málsnúmer 1409269
08
Bréf fjárlaganefndar Alþingis varðandi fundi með sveitarstjórnum um fjármál sveitarfélaga, dags. 16.09.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1403543
09
Minnisblað um starfsemi sumarátaks 2014, dags. 19.09.2014
Lagt fram.
Málsnúmer 1406060
10
Bréf Strætó bs. varðandi kostnaðaráætlun vegna aukins aksturs og skipting kostnaðarauka, dags. 09.07.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1409321
11
Bréf Hafnarfjarðarkaupstaðar varðandi aðgerðir gegn heimilisofbeldi, dags. 17.09.14.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að taka málið upp til umræðu innan vettvangs SSH.
Málsnúmer 1409322
12
Bréf Péturs Sigurgunnarssonar varðandi sölu á innkaupapokum til styrktar MND og SEM samtakana, dags. 15.09.14.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu og felur bæjarstjóra að svara bréfritara.
Málsnúmer 1407395
13
Svar við fyrirspurn Fólksins í bænum um framlög Garðabæjar til leikskóla og ungbarnaleikskóla.
Lagt fram.
Málsnúmer 1310562
14
Endurskoðun mannauðsstefnu Garðabæjar 2013
Bæjarráð vísar endurskoðun mannauðsstefnu Garðabæjar til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1408724
15
Umsókn um byggingarleyfi - Bergás 1.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á eldhúsi í leikskólanum við Bergás 1.
Málsnúmer 1409169
16
Umsókn um byggingarleyfi - Rjúpnahæð 12.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á endurnýjun byggingarleyfis vegna einbýlishússins við Rjúpnahæð 12.
Málsnúmer 1409014
17
Umsókn um byggingarleyfi - Smáratún 8.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar sólskála við einbýlishúsið að Smáratúni 8.
Málsnúmer 1409096
18
Umsókn um byggingarleyfi - Sveinskot, spilda A úr landi Sveinskots.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna niðurrifs húsnæðis við Sveinskot.
Málsnúmer 1407397
19
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 39.
Afgreiðslu frestað.
Málsnúmer 1407489
20
Afgreiðsla skiplagsnefndar varðandi undirbúning friðlýsingar á Breiðabólsstað á Álftanesi, dags. 18.09.14.
Lögð fram umsögn skipulagsnefndar þar sem ekki er gerð athugasemd við friðlýsingu á ytra byrði hússins að Breiðabólsstað.$line$$line$Bæjarráð lýsir yfir jákvæðri afstöðu til friðlýsingar á ytra byrði hússins og felur bæjarstjóra að tilkynna þá afstöðu til Minjastofnunar, sbr. bréf stofnunarinnar , dags. 17. júlí sl.
Málsnúmer 1409239
21
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi vegna Hellagötu 31, dags. 18.09.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. um skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfis hússins við Hellagötu 31 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1407502
22
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Ásbúð 102, dags. 18.09.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu hússins við Ásbúð 102.
Málsnúmer 1409088
23
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi að Lyngprýði 2, dags. 18.09.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá grenndarkynningu samkvæmt ákvæði 2. mgr. 43. gr. um skipulagslaga við afgreiðslu á byggingarleyfis hússins við Lyngprýði 2 þar sem um óveruleg frávik er að ræða frá deiliskipulagsskilmálum, sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. sömu laga.
Málsnúmer 1307042
24
Fjárhagsáætlun 2014 - Viðaukar
Lúðvík Hjalti Jónsson, fjármálastjóri mætti á fundinn og gerði grein fyrir tillögu um viðauka 4 - 15 við fjárhagsáætlun 2014.$line$Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2014 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.$line$$line$Viðauki 5 -1.100.000 kr. Lenging opnunartíma Sundlaug Álftanesi$line$Viðauki 6 -4.000.000 kr. Styrkur til GKG vegna þátttöku í hönnunarkostnaði$line$Viðauki 7 -7.800.000 kr. Niðurgreiðsla á skólamat í grunnskólum$line$Viðauki 8 -19.710.000 kr. Rekstrarframlag leikskóla Vífilsstöðum$line$Viðauki 9 -42.000.000 kr. Sumarvinna ungmenna - átaksverkefni$line$Viðauki 10 -253.966.819 kr. Hækkun launaliða v/kjarasamninga$line$Viðauki 11 -40.000.000 kr. Hækkun yfirvinnu Ísafoldar$line$Viðauki 12 -1.800.000 kr. Rekstur bílakjallara$line$Viðauki 13 200.000.000 kr. Staðgreiðsla útsvars$line$Viðauki 14 100.000.000 kr. Varasjóður fjárhagsáætlunar 2014$line$Viðauki 15 0 kr. Breyting á innri leigu$line$$line$Ofangreindum viðaukum skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 70.376.819.$line$$line$Breytingar á fjárhagsáætlun vegna viðauka 1-15 eru eftirfarandi:$line$$line$Handbært fé í árslok samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 310.371.000$line$Viðaukar 1-15 kr. -233.199.595$line$Handbært fé í árslok kr. 77.171.405$line$$line$Fjárfesting samkvæmt fjárhagsáætlun kr. 1.310.000.000$line$Viðaukar 1 og 4 kr. 136.100.000$line$$line$Eignarhlutir í félögum (breyting)$line$Viðauki 3 kr. 16.963.776
Málsnúmer 1409324
25
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015
Fjármálastjóri lagði fram og kynnti helstu forsendur fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015 ásamt yfirliti yfir ferli við vinnu við fjárhagsáætlun.$line$$line$Samkvæmt 3. mgr. 62. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 skal tillaga að fjárhagsáætlun lögð fyrir bæjarstjórn til fyrri umræðu eigi síðar en 1. nóvember. Fjárhagsáætlun skal síðan afgreidd við síðari umræðu í bæjarstjórn eigi síðar en 15. desember.