Beint í efni

Umsókn um byggingarleyfi - Ásbúð 102.

Málsnúmer 1407502

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

44. fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna viðbyggingar við Ásbúð 102.

Bæjarráð Garðabæjar

02

36 (1656). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu hússins við Ásbúð 102.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

13. fundur

Lögð fram tillaga að öðru sinni að viðbyggingu við íbúðarhúsið að Ásbúð 102. Samkvæmt tillögu fer viðbygging 1 metra út fyrir byggingareit til vesturs. Skipulagsnefnd vísar byggingarleyfisumsókn til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr. 44.gr. Skipulagslaga nr 123/2010 þar sem að deiliskipulag er ekki í gildi í Holtsbúð. Grenndarkynna skal eigendum Ásbúðar 87, 89, 98, 100 og 104.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

11. fundur

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á einbýlishúsinu að Ásbúð 102. Gert er ráð fyrir 33 m2 viðbyggingu inn á baklóð. Viðbyggingin nær 100-110 cm út fyrir byggingarreit. Lóð er 989,8 m2 að stæð og núverandi hús 293,6 m2.$line$Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.