11. fundur
11. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
28.07.2014
Kl. 17:00 - 17:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Almar Guðmundsson - formaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Hallfríður Erla Guðjónsdóttir - varamaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1407336
01
Beiðni um breytingu á deiliskipulag 1. áfanga Norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 14-16 við Holtsveg
Lögð fram tillaga að útfærslu fjölbýlishúss að Holtsvegi 14-18 ásamt umsögnum deiliskipulagshöfunda dags 25.júní, 8.júlí og 19.júlí. Samkvæmt deiliskipulagi skal efsta hæð stigagangs númer 16 vera inndregin og kemur það fram á deiliskipulagsuppdrætti, skýringaruppdrætti og mæliblaði. Þess er hinsvegar ekki getið sérstaklega í skilmálum. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu er ekki gert ráð fyrir því að efsta hæð hússins númer 16 sé inndregin. Hönnuður hússins og deiliskipulagsins er sama teiknistofan, Arkís. Á þetta ósamræmi er bent í umsögn Arkís dags 25.júní en í umsögn dags. 19.júlí telur sami aðili að það muni ekki hafa áhrif á heildaryfirbragð hverfisins að víkja frá því að efsta hæðin sé inndregin en það ætti þá einnig að gilda fyrir hinar fjölbýlishúsalóðirnar, þ.e. Holtsveg 2-6 og 8-12. Bent er á að arkitekt hússins hafi ekki áttað sig á umræddu ákvæði þar sem þess var ekki getið sérstaklega í skilmálum.$line$Skipulagsstjóri rifjar upp tillögu deiliskipulagshöfundar og þáverandi lóðarhafa sem kynnt var á fundi skipulagsnefndar þann 8.ágúst 2013 þar sem ákvæði um inndregna hæð í miðjuhúsi samstæðunnar var bætt við og mæltist vel fyrir. Af því má ljóst vera að umrætt ákvæði hafi verið sett í þeim tilgangi að auka gæði hússins og bæta yfirbragð þess.$line$Skipulagsnefnd hafnar tillögunni.
Málsnúmer 1403319
02
Breyting á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum sem gerir ráð fyrir breytingum á lóðinni Herjólfsgata 30-34 að lokinni kynningu. Umrætt deiliskipulag nær til svæðis innan Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Breytingartillagan hefur verið samþykkt í bæjarráði Hafnarfjarðar þann 10.júlí sl og í skipulags-og byggingarráði þann 8.júlí. Lögð fram 5 erindi með athugasemdum við tillöguna, undirrituð af 11 einstaklingum. Afgreiðsla bæjarráðs Hafnarfjarðar og skipulags-og byggingarráðs lögð fram ásamt svörum við athugasemdum. Við samþykkt tillögnnar var sú breyting gerð að bílastæðakvöð verður 1,8 stæði á íbúð, að bílastæðum verði fækkað að því marki ofanjarðar og að gerður verði kantur út að götunni.$line$Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 42.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.$line$Skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulag Hleina að Langeyrarmölum verði endurskoðað með það að markmiði að einfalda framkvæmd deiliskipulagsbreytinga t.d. með því að skipta því upp og minnka sameiginlegt deiliskipulagssvæði bæjarfélaganna.
Málsnúmer 1407320
03
Umsókn um byggingarleyfi - Einilundur 2
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á einbýlishúsinu að Einilundi 2. Gert er ráð fyrri því að breyta þaki bílageymslu úr flötu þaki í mænisþak og að þakið nái 5,6 m fram yfir bílastæði.$line$Skipulagsnefnd samþykkir að visa tillögu um breytingu á þakformi til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr. 44. gr. Skipulagslaga en hafnar tillögu að framlengingu þaksins út yfir bílastæði. Til stendur að vinna deiliskipulag fyrir Lundi og vísar nefndin hugmyndinni um bílskýli framan við bílageymslur til þeirrar vinnu.
Málsnúmer 1407502
04
Umsókn um byggingarleyfi Ásbúð 102
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingu á einbýlishúsinu að Ásbúð 102. Gert er ráð fyrir 33 m2 viðbyggingu inn á baklóð. Viðbyggingin nær 100-110 cm út fyrir byggingarreit. Lóð er 989,8 m2 að stæð og núverandi hús 293,6 m2.$line$Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.