Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar á beiðni um breytingu á deiliskipulag 1. áfanga Norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 14-16 við Holtsveg, dags. 28.07.14.

Málsnúmer 1407336

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

30. fundur

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á að fallið verði frá kröfu um að byggingareitur efstu hæðar lóðarinnar við Holtsveg 14 - 16 sé inndreginn.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

11. fundur

Lögð fram tillaga að útfærslu fjölbýlishúss að Holtsvegi 14-18 ásamt umsögnum deiliskipulagshöfunda dags 25.júní, 8.júlí og 19.júlí. Samkvæmt deiliskipulagi skal efsta hæð stigagangs númer 16 vera inndregin og kemur það fram á deiliskipulagsuppdrætti, skýringaruppdrætti og mæliblaði. Þess er hinsvegar ekki getið sérstaklega í skilmálum. Samkvæmt fyrirliggjandi tillögu er ekki gert ráð fyrir því að efsta hæð hússins númer 16 sé inndregin. Hönnuður hússins og deiliskipulagsins er sama teiknistofan, Arkís. Á þetta ósamræmi er bent í umsögn Arkís dags 25.júní en í umsögn dags. 19.júlí telur sami aðili að það muni ekki hafa áhrif á heildaryfirbragð hverfisins að víkja frá því að efsta hæðin sé inndregin en það ætti þá einnig að gilda fyrir hinar fjölbýlishúsalóðirnar, þ.e. Holtsveg 2-6 og 8-12. Bent er á að arkitekt hússins hafi ekki áttað sig á umræddu ákvæði þar sem þess var ekki getið sérstaklega í skilmálum.$line$Skipulagsstjóri rifjar upp tillögu deiliskipulagshöfundar og þáverandi lóðarhafa sem kynnt var á fundi skipulagsnefndar þann 8.ágúst 2013 þar sem ákvæði um inndregna hæð í miðjuhúsi samstæðunnar var bætt við og mæltist vel fyrir. Af því má ljóst vera að umrætt ákvæði hafi verið sett í þeim tilgangi að auka gæði hússins og bæta yfirbragð þess.$line$Skipulagsnefnd hafnar tillögunni.