30. fundur
30. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.08.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - varamaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
- Lúðvík Hjalti Jónsson
Ritari
- Lúðvík Hjatli Jónsson
Dagskrá
Málsnúmer 1407336
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar á beiðni um breytingu á deiliskipulag 1. áfanga Norðurhluta Urriðaholts vegna lóðarinnar nr. 14-16 við Holtsveg, dags. 28.07.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að hafna umsókn lóðarhafa um breytingu á deiliskipulagi 1. áfanga norðurhluta Urriðaholts þar sem farið er fram á að fallið verði frá kröfu um að byggingareitur efstu hæðar lóðarinnar við Holtsveg 14 - 16 sé inndreginn.
Málsnúmer 1407320
02
Afgreiðsla skipulagsnefndar á umsókn um byggingarleyfi vegna Einilundar 2, dags. 26.07.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar að vísa til grenndarkynningar umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á þakformi hússins við Einilund 2.
Málsnúmer 1407543
03
Drög að samningi um rekstur ungbarnaleikskóla á Vífilsstöðum.
Bæjarráð vísar samningnum til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Málsnúmer 1408060
04
Bréf Laufeyjar Sverrisdóttur varðandi styrk vegna námskeiðsferðar, dags. 05.08.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar til afgreiðslu bæjarstjóra.
Málsnúmer 1407465
05
Umsókn um byggingarleyfi - Hraunsholtsvegur 4.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna niðurrifs og endurbyggingu hússins við Hraunsholtsveg 4.
Málsnúmer 1407496
06
Umsókn um byggingarleyfi - Bjarkarás 5.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna byggingar skjólveggs til afmörkunar á sérnotareit hússins við Bjarkarás 5.
Málsnúmer 1408006
07
Umsókn um byggingarleyfi - Holtsvegur 23 -25.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á skráningartöflu fjölbýlishússins við Holtsveg 23 -25.
Málsnúmer 1407537
08
Umsókn um byggingarleyfi - Langalína 33-35.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna glerskýlis á svölum íbúðar nr. 0104 Löngulínu 33-35.
Málsnúmer 1407563
09
Umsókn um byggingarleyfi - Lynghólar 5.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna breytinga á innra skipulagi hússins við Lynghóla 5.