Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum, dags. 14.07.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. fundur
Í bréfinu kemur fram að bæjarráð Hafnafjarðar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum hvað varðar lóðirnar við Herjólfsgötu 30-34 og fjallað um athugasemdir sem bárust samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. $line$$line$Á fundi skipulagsnefndar Garðabæjar þann 28. júlí sl. var tillagan ásamt athugasemdum tekin til umfjöllunar. Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við bæjarráð að samþykkja tillöguna og afgreiðslu hennar á grundvelli 42. gr. skipulagslaga.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum hvað varðar lóðirnar við Herjólfsgötu 30-34.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
11. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum sem gerir ráð fyrir breytingum á lóðinni Herjólfsgata 30-34 að lokinni kynningu. Umrætt deiliskipulag nær til svæðis innan Hafnarfjarðar og Garðabæjar. Breytingartillagan hefur verið samþykkt í bæjarráði Hafnarfjarðar þann 10.júlí sl og í skipulags-og byggingarráði þann 8.júlí. Lögð fram 5 erindi með athugasemdum við tillöguna, undirrituð af 11 einstaklingum. Afgreiðsla bæjarráðs Hafnarfjarðar og skipulags-og byggingarráðs lögð fram ásamt svörum við athugasemdum. Við samþykkt tillögnnar var sú breyting gerð að bílastæðakvöð verður 1,8 stæði á íbúð, að bílastæðum verði fækkað að því marki ofanjarðar og að gerður verði kantur út að götunni.$line$Skipulagsnefnd Garðabæjar samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 42.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010.$line$Skipulagsnefnd leggur til að deiliskipulag Hleina að Langeyrarmölum verði endurskoðað með það að markmiði að einfalda framkvæmd deiliskipulagsbreytinga t.d. með því að skipta því upp og minnka sameiginlegt deiliskipulagssvæði bæjarfélaganna.
Bæjarráð Garðabæjar
03
15. fundur
Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulags- og byggingarráðs Hafnarfjarðar um breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyramölum en um er að ræða breytingu á sameinginlegu deiliskipulagi sveitarfélaganna.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
7. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Hleina innan Hafnarfjarðar. Deiliskipulagssvæðið nær til beggja sveitarfélaga. Skipulags- og byggingarráð Hafnarfjarðar hefur samþykkt að visa tillögunni til kynningar. Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunar skv. 41.gr.