Beint í efni

29. fundur

29.07.2014
Bæjarráð Garðabæjar

29. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

29.07.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1407489

01

Bréf Minjastofnunar varðandi undirbúning friðlýsingar húsnæðis að Breiðabólsstöðum, Álftanesi, dags. 17.07.14.

Bæjarráð vísar bréfinu á þessu stigi til umfjöllunar skipulagsnefndar.

Málsnúmer 1403319

02

Bréf Hafnarfjarðarbæjar varðandi breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum, dags. 14.07.14.

Í bréfinu kemur fram að bæjarráð Hafnafjarðar hefur samþykkt breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum hvað varðar lóðirnar við Herjólfsgötu 30-34 og fjallað um athugasemdir sem bárust samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. $line$$line$Á fundi skipulagsnefndar Garðabæjar þann 28. júlí sl. var tillagan ásamt athugasemdum tekin til umfjöllunar. Skipulagsnefnd samþykkti að leggja til við bæjarráð að samþykkja tillöguna og afgreiðslu hennar á grundvelli 42. gr. skipulagslaga.$line$$line$Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Hleina að Langeyrarmölum hvað varðar lóðirnar við Herjólfsgötu 30-34.

Málsnúmer 1407475

03

Bréf Sigurbjörns Ingimundarsonar um úthlutun lóðar fyrir kaffihús við Arnarnesvog, dags. 17.07.14.

Bæjarráð fagnar áhuga bréfritara á rekstri veitingastaðar við Arnarnesvog og vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.

Málsnúmer 1407539

04

Erindi Hestamannafélagsins Spretts um niðurfellingu fasteignagjalda 2014.

Bæjarráð samþykkir að veita Hestamannafélaginu Spretti styrk að fjárhæð kr. 2.020.999 til greiðslu álagðra fasteignagjaldaárið 2014.

Málsnúmer 1307042

05

Viðauki III og IV við fjárhagsáætlun 2014

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.$line$$line$$line$$line$Viðauki 3$line$$line$Stofnfjáraukning í Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins að fjárhæð 16.963.776 kr.$line$$line$Fært sem breyting á eignarhlutum í félögum.$line$$line$Kostnaðarauka mætt með lækkun á handbæru fé um sömu upphæð.$line$$line$Sjá nánar breytingar samkvæmt viðauka 4.$line$$line$$line$$line$Viðauki 4.$line$$line$Kaup á fasteignum á Garðatorgi 7 $line$$line$Kaup á fasteign (fastnr. 222-2606) 29.500.000 kr. Fært á eignfærslu$line$$line$Kaup á fasteign (fastnr. 222-2605) 38.000.000 kr. Fært á eignfærslu$line$$line$ 67.500.000 kr. $line$$line$$line$$line$Kostnaðarauka mætt með lækkun á handbæru fé.$line$$line$$line$$line$Handbært í árslok skv. fjárhagsáætlun 310.371.000 kr. $line$$line$Viðauki 1 - 68.600.000 kr. Fjárfesting - kaup á íb. við Lækjarfit$line$$line$Viðauki 2 - 9.759.000 kr. Laun í Garðaskóla$line$$line$Viðauki 3 - 16.963.776 kr. Fjárfesting - aukning á stofnframlagi í slökkvilið$line$$line$Viðauki 4 - 67.500.000 kr. Fjárfesting ? kaup á húsn. (Garðatorg)$line$$line$ 147.548.224 kr. $line$$line$ $line$$line$Fjárfesting samkvæmt fjárhagsáætlun 1.310.000.000 kr. $line$$line$Viðauki 1 68.600.000 kr. $line$$line$Viðauki 4 67.500.000 kr. $line$$line$ 1.446.100.000 kr. $line$$line$ $line$$line$Eignahlutir í félögum (breyting) 0 kr. $line$$line$Viðauki 3 16.963.776 kr. $line$$line$ 16.963.776 kr.

Málsnúmer 1403393

06

Tillaga um óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts - vesturhluta vegna lóðarinnar við Holtsveg 27.

Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts varðandi lóðina við Holtsveg 27.$line$$line$Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust engar athugasemdir.$line$$line$Samþykkt um breytinguna skal send Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda sem samþykkt deiliskipulag.

Málsnúmer 1406211

07

Skipun fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra samkvæmt 6. gr. laga um málefni aldraðra.

Bæjarráð samþykkir að skipa eftirtalda fulltrúa í þjónustuhóp aldraðra samkvæmt 6. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999.$line$$line$Ásmund Jónsson, lækni, samkvæmt tilnefningu yfirlæknis Heilsugæslu Garðabæjar.$line$Ásdísi Geirsdóttur, hjúkrunarfræðing, samkvæmt tilnefningu yfirhjúkrunarfræðings Heilsugæslu Garðabæjar.$line$Hilmar B. Jónsson, samkvæmt tilnefningu félags eldri borgara.$line$Bergljótu Sigurbjörnsdóttur, félagsmálastjóra $line$Herdísi Hjörleifsdóttur, forstöðumann heimaþjónustu Garðabæjar.

Málsnúmer 1406161

08

Umsókn um byggingarleyfi - Keldugata 2

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna 6 íbúða fjölbýlishúss að Keldugötu 2.

Málsnúmer 1407426

09

Umsókn um byggingarleyfi - Súlunes 3

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa á byggingarleyfi vegna innri breytinga og reyndarteikninga neðri hæðar hússins við Súlunes 3.