Tillaga um óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts - vesturhluta vegna lóðarinnar við Holtsveg 27.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
29. fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts varðandi lóðina við Holtsveg 27.$line$$line$Tillagan var grenndarkynnt samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og bárust engar athugasemdir.$line$$line$Samþykkt um breytinguna skal send Skipulagsstofnun og birt í B-deild Stjórnartíðinda sem samþykkt deiliskipulag.
Bæjarráð Garðabæjar
02
19. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts (vesturhluti) vegna færslu á byggingarreit lóðarinnar við Holtsveg 27, sbr. 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan skal grenndarkynnt eigendum Holtsvegar 23-25 og 29, Hellagötu 31, Mosagötu 22 og 24, Keldugötu 2 og 4-6 og Bæjargötu 1.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
9. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að byggingarreitur færist til vegna jarðsprungu sem til staðar er á lóð.$line$Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Urriðaholts vesturhluta samkvæmt 2.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010 og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Holtsvegar 23-25 og 29, Hellagötu 31, Mosagötu 22 og 24, Keldugötu 2 og 4-6 og Bæjargötu 1.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á fjölbýlishúsalóðinni Holtsvegur 27. Umsækjandi Urriðaland óskar eftir breytingunni til þess að staðsetja byggingarreit utan sprungusvæðis sem er til staðar á lóðinni.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.