Beint í efni

5. fundur

20.03.2014
Skipulagsnefnd Garðabæjar

5. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.03.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Björn Hilmarsson - varamaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302201

01

Varir á Álftanesi, deilskipulag

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vara á Álftanesi í annað sinn að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga. Tillagan nær til íbúðarhúsabyggðar við Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðsholtsvör og Sveinskotsvör. Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum á Sveinskotsreit en tillagaan nær einnig til núverandi byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Ein athugasemd barst við tillöguna frá eigendum Litlubæjarvarar 25. $line$Gerðar eru athugasemdir við göngustíg sem liggur umhverfis lóð þeirra samkvæmt tillögu og við það að ekki er gert ráð fyrir gangstétt austan megin götunnar í nýrri hluta.$line$Í fyrra skipulagi svæðisins sem ekki hlaut staðfestingu var alltaf gert ráð fyrir stíg umhverfis Litlubæjarvör 25 og eins á milli Bjarnastaðavarar 2 og 4. Skipulagsnefnd fellst á athugasemd varðandi legu göngustígs og leggur til að hann verði lagður á milli Litlubæjarvarar 25 og 23. Því landi sem fer undir stíg verði jafnað á milli lóðanna nr. 21, 22 og 23.$line$Skipulagsnefnd fellst ennfremurá þau rök að ekki sé æskilegt að hafa enga gangstétt framan við nýjar lóðir eins og annarsstaðar í hverfinum og leggur til að því verði breytt.$line$Skipulgsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga.

Málsnúmer 1402324

02

Golfvöllur Golfklúbb Álftaness

Lagt fram erindi frá Golfklúbbi Álftaness dags. 12.febrúar 2014 þar sem vakin er athygli á stöðu landrýmis golfvallarins.$line$Skipulagsnefnd vísar erindinu til endurskoðunar aðalskipulags.

Málsnúmer 1403196

03

Akrar,deiliskipulag, breyting vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.

Lögð fram tillaga að breytíngu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir breytingum á hljóðmönum og legu göngustígs meðfram Hafnarfjarðarvegi.$line$Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga.

Málsnúmer 1401510

04

Holtsbúð, breyting á nýtingu og aðkomu vegna ungbarnaleikskóla.

Skipulagsstjóri gerir grein fyrir stöðu skipulags í Ásbúð og Holtsbúð og áhrif þess á hugmyndir um nýja aðkomu að Holtsbúð 87.$line$Skipulagsnefnd leggur til að unnin verði tillaga að deiliskipulagi Ásbúðar og Holtsbúðar og þar verði tekin afstaða til aðkomu að Holtsbúð 87.

Málsnúmer 1402138

05

Silfurtún, deiliskipulag, breyting vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir því að skipualagssvæðið verði stækkað til norðvesturs að Hafnarfjarðarvegi og þar gert ráð fyrir hljóðvörnum. Tillögu fylgir ný tillaga að útfærslu Þráins Haukssonar hjá Landslagi á hljóðvörnum sem samanstanda af hljóðvarnarmön og hljóðvarnarvegg. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og leggur áherslu á að umsögn Vegagerðar liggi fyrir áður en haldið verður áfram með málið. Skipulagsnefnd Baldur Ó. Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1312421

06

Stekkjarflöt 14, dsk br Flata.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Flata sem gerir ráð fyrir flutning á bílastæðum innan lóðar til suðurs.$line$Grenndarkynning hefur farið fram. Engar athugasemdir hafa borist. Skipulagsnefnd samþykkir breytinguna í samræmi við 2.mgr. 44.gr. Skipulagslaga.

Málsnúmer 1402616

07

Umsókn um byggingarleyfi - Kríunes 16

Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem gert er ráð fyrir því að gluggi á norðurhlið neðri hæðar falli út. Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna og fellir niður grenndarkynningu þar sem tillagan varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjenda og bæjarfélagsins sbr. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga.

Málsnúmer 1403393

08

Holtsvegur 27, breyting á dsk Urriðaholts vesturhluta

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts sem gerir ráð fyrir breytingu á fjölbýlishúsalóðinni Holtsvegur 27. Umsækjandi Urriðaland óskar eftir breytingunni til þess að staðsetja byggingarreit utan sprungusvæðis sem er til staðar á lóðinni.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1403396

09

Staða skipulagsmála á Álftanesi

Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gerðu nefndarmönnum og áheyrnarfulltrúa grein fyrir stöðu skipulagsmála á Álftanesi að ósk áheyrnarfulltrúa. Þau mál sem greint var frá voru: Kirkjubrú, Grund, aðalskipulagsbreyting vegna fráveitu, Hvoll og Hlið.