Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Varir á Álftanesi, dags. 20.03.14.

Málsnúmer 1302201

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Vara sem gerir ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum en fyrir er núverandi byggð með 33 einbýlishúsum.$line$$line$Í kynningarferli bárust athugasemdir varðandi legu göngustígs og gerð gangstéttar og hefur skipulagsnefnd fallist á að breyta tillögunni í samræmi við þær athugasemdir.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

5. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vara á Álftanesi í annað sinn að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga. Tillagan nær til íbúðarhúsabyggðar við Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðsholtsvör og Sveinskotsvör. Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum á Sveinskotsreit en tillagaan nær einnig til núverandi byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Ein athugasemd barst við tillöguna frá eigendum Litlubæjarvarar 25. $line$Gerðar eru athugasemdir við göngustíg sem liggur umhverfis lóð þeirra samkvæmt tillögu og við það að ekki er gert ráð fyrir gangstétt austan megin götunnar í nýrri hluta.$line$Í fyrra skipulagi svæðisins sem ekki hlaut staðfestingu var alltaf gert ráð fyrir stíg umhverfis Litlubæjarvör 25 og eins á milli Bjarnastaðavarar 2 og 4. Skipulagsnefnd fellst á athugasemd varðandi legu göngustígs og leggur til að hann verði lagður á milli Litlubæjarvarar 25 og 23. Því landi sem fer undir stíg verði jafnað á milli lóðanna nr. 21, 22 og 23.$line$Skipulagsnefnd fellst ennfremurá þau rök að ekki sé æskilegt að hafa enga gangstétt framan við nýjar lóðir eins og annarsstaðar í hverfinum og leggur til að því verði breytt.$line$Skipulgsnefnd samþykkir tillöguna með ofangreindum breytingum í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

2. fundur

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vara á Álftanesi að lokinni kynningu í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga. Tillagan nær til íbúðarhúsabyggðar við Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðsholtsvör og Sveinskotsvör. Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum á Sveinskotsreit en tillagaan nær einnig til núverandi byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Ein athugasemd barst við tillöguna. Tillögunni og athugasemd vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Bæjarráð Garðabæjar

04

45. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vara á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

16. fundur

Lögð fram tillaga unnin af Guðna Pálssyni arkitekt að deiliskipulagi Vara (Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðsholtsvör og Sveinskotsvör) dags. 17.maí 2013. Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum á Sveinskotsreit en tillagan nær einnig til eldri byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Alls verða því 48 einbýlishús á svæðinu, öll á efri hæð. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir samráðsfundi með landeigenda Miðengi og hugmynda um varðveislu á elsta hluta Sveinskots. Landeigandi lýsir sig andvígan þeirri hugmynd.Forkynning hefur farið fram. Tillagan kallar ekki á breytingu aðalskipulags.Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni óbreyttri til kynningar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

06

10. fundur

Málinu frestað til næsta fundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

7. fundur

Tillaga að deiliskipulagi Vara (Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðholtsvör og Sveinskotsvör). Lögð fram umsögn Minjastofnunar dags 28.maí sem skipulagsnefnd hefur óskað eftir. Niðurstaða umsagnarinnar er sem hér segir: "Enda þótt Sveinskot á Álftanesi njóti ekki friðunar vegna aldurs telur Minjastofnun Íslands að húsið hafi ótvírætt varðveislugildi sem vitnisburður um búsetuhætti og menningu fyrri tíðar í byggðarlaginu. Mælt er með því að húsið fái að standa og að deiliskipulagið verði endurskoðað með tilliti til þess."

Málinu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

08

6. fundur

Lögð fram tillaga unnin af Guðna Pálssyni arkitekt að deiliskipulagi Vara (Bjarnarstaðavör, Litlubæjarvör, Sviðholtsvör og Sveinskotsvör) dags 17.maí 2013.  Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsalóðum á Sveinskotsreit en tillagan nær einnig til eldri byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Alls verða því 48 einbýlishús á svæðinu öll á einni hæð. Gert er ráð fyrir því að bæjarhús Sveinskots hverfi.

Málinu frestað til næsta fundar.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

4. fundur

Lögð fram öðru sinni tillaga að deiliskipulagi fyrir Varir.

Afgreiðslu málsins frestað.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

10

3. fundur

Lögð fram tillaga Guðna Pálssonar arkitekts, að deiliskipulagi og skipulagsskilmálum fyrir svæðið Bjarnastaðavör, Sviðholtsvör, Litlabæjarvör og Sveinskotsvör, dags. 8. nóvember 2012.

Tillagan gerir ráð fyrir 15 einbýlishúsalóðum á Sveinskotsreit, sunnan Hákotsvarar að svæðinu að Bjarnastaðavör og Litlabæjarvör, með aðkomu frá Litlabæjarvör og gatnamótum við Bakkaveg.

Málinu frestað og vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.