12. fundur
12. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.03.2014
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
Málsnúmer 1311012
01
Greinargerð starfshóps um rekstur bílakjallara.
Bæjarráð samþykkir niðurstöður starfshópsins um að nýr bílakjallari við Garðatorg verði opinn og gjaldfrír.$line$$line$Greinargerðinni vísað til umfjöllunar verkefnahóps um uppbyggingu miðbæjar.
Málsnúmer 1403287
02
Bréf garðyrkjustjóra varðandi gjaldskrá fyrir skólagarða og matjurtagarða árið 2014, dags. 17.03.14.
Bæjarráð samþykkir tillögu garðyrkjustjóra um óbreytta gjaldskrá fyrir skóla- og matjurtagarða árið 2014.
Málsnúmer 1403130
03
Bréf trúnaðarmanna kennara varðandi endurskoðun á launasamkomulagi kennara Garðabæjar, mótt. 11.03.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar bæjarstjóra.
Málsnúmer 1403276
04
Bréf samtakanna Blátt áfram varðandi styrk, dags. 14.03.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til forvarnarnefndar.
Málsnúmer 1401001
05
Tillaga um kjörstaði við sveitarstjórnarkosningar 31. maí 2014.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að kjörstaðir við sveitarstjórnarkosningar í Garðabæ sem fram eiga að fara laugardaginn 31. maí 2014 verði í Álftanesskóla og Fjölbrautaskólanum í Garðabæ líkt og var við kosningar til Alþingis er fram fóru 27. apríl 2013.
Málsnúmer 1403498
06
Tillaga Steinþórs Einarssonar, bæjarfulltrúa, varðandi úrræði fyrir útigangsfólk, dags. 25.03.14.
Bæjarstjóri kynnti úrræði á vegum Reykjavíkurborgar varðandi útigangfólks og sagði frá viðræðum við félagsþjónustusvið Reykjavíkur um aðkomu fjölskyldusviðs Garðabæjar að málum er varða einstaklinga með lögheimili í Garðabæ sem njóta úrræða borgarinnar.$line$$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að vinna áfram að málinu og jafnframt að taka það til umfjöllunar innan vettvangs SSH.
Málsnúmer 1403196
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag Akra, breyting vegna hljóðvarna við Hafnarfjarðarveg, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að breyting á deiliskipulagi Akra, sem gerir ráð fyrir breytingum á hljóðmönum og legu göngustígs meðfram Hafnarfjarðarvegi, verði kynnt í samræmi við 1. mgr. 43.gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1312421
08
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingu á deiliskipulagi Flata vegna Stekkjarflatar 14, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um óverulega breytingu á deiliskipulagi Flata sem gerir ráð fyrir flutning á bílastæðum innan lóðarinnar Stekkjarflatar 14 til suðurs. Tillagan hefur verið grenndarkynnt í samræmi við 2. mgr. 44. gr. skipulagslaga og bárust engar athugasemdir.
Málsnúmer 1302201
09
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulag fyrir Varir á Álftanesi, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Vara sem gerir ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum en fyrir er núverandi byggð með 33 einbýlishúsum.$line$$line$Í kynningarferli bárust athugasemdir varðandi legu göngustígs og gerð gangstéttar og hefur skipulagsnefnd fallist á að breyta tillögunni í samræmi við þær athugasemdir.
Málsnúmer 1402616
10
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um byggingarleyfi fyrir Kríunes 16, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fella niður grenndarkynningu vegna umsóknar um breytingu á glugga á norðurhlið hússins við Kríunes 16, samkvæmt heimild í 3. mgr. 44. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1403326
11
Afgreiðsla byggingarfulltrúa varðandi stöðuleyfi fyrir gám að Hlíðarbyggð 49, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita stöðuleyfi fyrir gám við Hlíðarbyggð 49, sbr. 2. gr. samþykkta um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011.
Málsnúmer 1305437
12
Afgreiðsla byggingarfulltrúa vegna umsóknar um byggingarleyfi - Spilda A úr landi Grundar 0003, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til viðgerða og endurbyggingu útihúsa við Grund, sbr. 2. gr. samþykkta um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011.
Málsnúmer 1403066
13
Bréf umhverfisnefndar varðandi vegpresta og fræðsluskilti við reiðleiðir, dags. 20.03.14.
Bæjarráð tekur jákvætt í erindið og vísar því til tækni- og umhverfissviðs.
Málsnúmer 1403459
14
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um að draga til baka umsókn Íslands um aðild að Evrópusambandinu, 340. mál, dags. 20.03.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1403460
15
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um ráðgefandi þjóðaratkvæðagreiðslu um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið, 344. mál, dags. 20.03.14.
Lagt fram.
Málsnúmer 1403518
16
Bréf samtakanna Gróður fyrir fólk varðandi vistvang og staðarval gas- og jarðgerðarstöðvar fyrir höfuðborgarsvæðið, dags. 20.03.14.
Bæjarráð vísar bréfinu til umfjöllunar umhverfisnefndar.
Málsnúmer 1403069
17
Kaup á húsnæði við Garðatorg 7.
Bæjarstjóri kynnti hugmyndir um kaup á húsnæði við Garðatorg fyrir fundarsal bæjarstjórnar o.fl. $line$$line$Bæjarráð samþykkir að bæjarstjóri vinni áfram að málinu.
Málsnúmer 1403514
18
Tillaga bæjarfulltrúa, Maríu Grétarsdóttur, um að auglýsa störf sem tengjast sveitarstjórnarkosningum, dags. 20.03.14.
Bæjarráð samþykkir að birt verði tilkynning á vefsíðu Garðabæjar þar sem áhugasömum aðilum er bent á að þeir geti gefið kost á sér til starfa við sveitarstjórnarkosningar sem fram eiga að fara 31. maí n.k.