Beint í efni

Afgreiðsla byggingarfulltrúa vegna umsóknar um byggingarleyfi - Spilda A úr landi Grundar 0003, dags. 20.03.14.

Málsnúmer 1305437

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

12. fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa um að veita leyfi til viðgerða og endurbyggingu útihúsa við Grund, sbr. 2. gr. samþykkta um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011.

Bæjarráð Garðabæjar

02

1. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi vegna breytingar á útihúsum á spildu A í landi Grundar á Álftanesi.$line$Grenndarkynning skal ná til allra nágranna á norðurnesinu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

18. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á útihúsum á Spildu A úr landi Grundar á Álftanesi. Breytingar eru allar innan byggðs flatar nústandandi útihúsa og er ætlað að bæta og fegra yfirbragð þeirra. Samkvæmt aðalskipulag er byggð við Grund og Breiðabólsstaði afmörkuð við nústandandi hús. Fyrirhugað er að í húsunum verði starfsemi garðyrkjufyrirtækisins Allt fyrir garðinn.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr.44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal tillöguna íbúum á Norðurnesinu. Skipulagsnefnd minnir á Breiðabólsstaðartjarnar nýtur hverfisverndar samkvæmt aðalskipulagi og skal virða þau ákvæði í hvívetna.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

17. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á útihúsum á Spildu A úr landi Grundar. Breytingar eru allar innan byggðs flatar núverandi útihúsa og munu bæta og fegra yfirbragð þeirra. Samkvæmt aðalskipulagi er byggð við Grund og Breiðabólsstaði afmörkuð við núverandi byggð.Fyrirhugað er að í húsunum verði starfsemi garðyrkjufyrirtækisins Allt fyrir garðinn.Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

8. fundur

<DIV><DIV><DIV><DIV>Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir umbætur á útihúsum. Deiliskipulag er ekki fyrir hendi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.</DIV></DIV></DIV></DIV>