17. fundur
17. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
22.11.2013
Kl. 12:00 - 12:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stefán Snær Konráðsson - formaður
- Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
- Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Formaður fór yfir næstu skref í ferli endurskoðunar aðalskipulags. Fulltrúar aðalskipulagsráðgjafa, Árni Ólafsson frá Teiknistofu arkitekta, Yngvi Þór Loftsson frá Landmótun og Guðbjörg Lilja Erlendsdóttir frá Eflu mættu á fund nefndarinnar. Formaður bauð aðalskipulagsráðgjafa velkomna til starfsins. Formaður leggur til að fyrsti sameiginlegi vinnufundur skipulagsnefndar, stýrihóps og skipulagsráðgjafa verði haldinn laugardaginn 11.janúar nk.
Málsnúmer 2008030200
02
Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag
Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi sínum og skipulagsráðgjafa með heilbrigðiseftirliti þar sem fram kom að í ljósi niðurstöðu umhverfis-og auðlindaráðuneytis í málum sem varða heimildir til framkvæmda innan grann-og brunnsvæða vatnsverndar þá sé ljóst að ekki verði veittar undanþágur frá vatnsverndarákvæðum. Fyrirhuguð staðsetning útilífsmiðstöðvar við Hjallaflatir samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur er innan grannsvæðis og er þess því ekki að vænta að fallist verði á staðsetningu hennar þar. Lagt fram erindi Skátafélagsins Vífils þar sem fram kemur að félagið telji staðsetningu við Hjallaflatir besta kostinn og að staðsetning við Grunnavatn syðra væri lakari kostur. Tillögu að staðsetningu útilífsmiðstöðvar við sunnanverðan Vatnsás (Grunnuvatn syðra) vísað til umsagnar í umhverfisnefnd og til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1308037
03
Hlið á Álftanesi, breyting deiliskipulags.
Skipulagsstjóri kynnti hugmyndir að breytingum á deiliskipulagi Hliðs í tengslum við uppbyggingu ferðaþjónustu að Hliði. Hugmyndum vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði og til umsagnar umhverfisnefndar. Athuga þarf stöðu fornleifaskráningar innan deiliskipulagssvæðisins.
Málsnúmer 1311498
04
Silfurtún, tillaga að breytingu dsk, nýtingarhlutfall kjallararýma
Skipulagsstjóri og deiliskipulagshöfundur gerðu grein fyrir álitamáli sem varða skilgreiningu á nýtingarhlutfalli kjallararýma í deiliskipulagi Silfurtúns en samkvæmt ákvæðum þess skal telja öll rými, þ.m.t. kjallararými til nýtingarhlutfalls sem er að hámarki 0,3. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1305437
05
Umsókn um byggingarleyfi - Spilda A úr landi Gru 0003
Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á útihúsum á Spildu A úr landi Grundar. Breytingar eru allar innan byggðs flatar núverandi útihúsa og munu bæta og fegra yfirbragð þeirra. Samkvæmt aðalskipulagi er byggð við Grund og Breiðabólsstaði afmörkuð við núverandi byggð.Fyrirhugað er að í húsunum verði starfsemi garðyrkjufyrirtækisins Allt fyrir garðinn.Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.