Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtingarhlutfall í kjallararýma í Silfurtúni, dags. 19.12.13.

Málsnúmer 1311498

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

1. fundur

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna tillögu um breytingu á nýtingarhlutfalli í deiliskipulagsskilmálum Silfurtúns vegna kjallararýma.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

18. fundur

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu um breytingu sem gerir ráð fyrir því að kjallararými í Silfurtúni reiknist ekki til heildar nýtingahlutfalls.$line$Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í skilmála hverfisins og skilgreiningar þeirra á heildarnýtingarhlutfalli.$line$Baldur Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

03

17. fundur

Skipulagsstjóri og deiliskipulagshöfundur gerðu grein fyrir álitamáli sem varða skilgreiningu á nýtingarhlutfalli kjallararýma í deiliskipulagi Silfurtúns en samkvæmt ákvæðum þess skal telja öll rými, þ.m.t. kjallararými til nýtingarhlutfalls sem er að hámarki 0,3. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.