Beint í efni

1. fundur

07.01.2014
Bæjarráð Garðabæjar

1. fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

07.01.2014

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Erling Ásgeirsson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón E. Friðriksson

Dagskrá

Málsnúmer 1308002

01

Bréf Félags tónlistarskólakennara varðandi viðbrögð Garðabæjar vegna athugasemdum félagsins við sameiningu tónlistarskólanna í Garðabæ, dags. 12.12.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1312541

02

Bréf Norræna félagsins í Garðabæ varðandi styrk vegna ársins 2014, dags. 30.12.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1311412

03

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025 heildarendurskoðun, dags. 19.12.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um athugasemdir við tillögu að endurskoðun á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem nú er á kynningarstigi samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Málsnúmer 1305398

04

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi hljóðvörn meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk - framkvæmdaleyfi, dags. 19.12.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um veita framkvæmdaleyfi fyrir hljóðveggjum meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk sbr. 13.gr. skipulagslaga í samræmi við framlögð gögn á grundvelli aðalskipulags.$line$$line$Framkvæmdaleyfið skal útefið samkvæmt 15. gr. skipulagslaga og er framkvæmdaleyfisgjald kr. 68.878 samkvæmt gjaldskrá um skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis nr. 944/2012

Málsnúmer 1312031

05

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi skiptingu lóðarinnar Hliðsnes 6, dags. 19.12.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um skiptingu lóðarinnar við Hliðsnes 6 í tvær lóðir samkvæmt heimild í 48. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Eftir skiptingu lóðarinnar verður heiti þeirra Hliðsnes 6 og 6 b.

Málsnúmer 1311498

06

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi nýtingarhlutfall í kjallararýma í Silfurtúni, dags. 19.12.13.

Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að hafna tillögu um breytingu á nýtingarhlutfalli í deiliskipulagsskilmálum Silfurtúns vegna kjallararýma.

Málsnúmer 1305437

07

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi umsókn um breytingu á útihúsum á spildu A úr landi Grundar, dags. 19.12.13.

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 við afgreiðslu umsóknar um byggingarleyfi vegna breytingar á útihúsum á spildu A í landi Grundar á Álftanesi.$line$Grenndarkynning skal ná til allra nágranna á norðurnesinu.

Málsnúmer 1312529

08

Bréf Sigurðar Kára Kristjánssonar, hdl. varðandi lagningu Álftanesvegar um Selskarðsland, dags. 20.12.13.

Bæjarráð vísar bréfinu til bæjarstjóra.

Málsnúmer 1312328

09

Bréf Lionsklúbbs Álftaness varðandi samstarf og stuðning við bæjarfélagið, dags. 16.12.13.

Lagt fram.$line$$line$Bæjarráð lýsir ánægju með að eiga áframhaldandi gott samstarf við Lionsklúbb Álftaness.

Málsnúmer 1302184

10

Afgreiðsla forvarnarnefndar varðandi styrkbeiðni vegna útgáfu rits um forvarnir, dags. 03.12.13.

Lögð fram afgreiðsla forvarnarnefndar um styrkveitingu að fjárhæð kr. 100.000 til Forvarna og fræðslu vegna útgáfu á fræðsluhandbók um fíkniefni og forvarnir.

Málsnúmer 1312449

11

Bréf Urriðaholts varðandi losun jarðvegs, dags. 16.12.13.

Bæjarstjóri kynnti hugmyndir Urriðaholts um losun jarðvegs frá byggingarsvæði í Urriðaholti á svæði sunnan við golfvöll Odds. Í hugmyndunum er kynnt að akstursleið geti verið um göngustíg sem gert er ráð fyrir í aðalskipulagi í landi Setbergs.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til umfjöllunar umhverfisnefndar og til kynningar í skipulagsnefnd. Jafnframt er bæjarverfræðingi falið að ræða við vegagerðina varðandi hugmyndir um hljóðmön við Elliðavatnsveg.

Málsnúmer 1401052

12

Erindi Runólfs Ágústssonar varðandi háhraðalest milli Reykjavíkur og Keflavíkur.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir kynningu forsvarsmanna málsins um hagkvæmi þess að byggja og reka háhraðalest milli Keflavíkurflugvallar og miðborgar Reykjavikur.$line$$line$Lagt fram.

Málsnúmer 1401051

13

Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 13.12.2013. - 03.01.2014.

Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 13.12.2013-03.01.2104 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Miðhraun 2.

Málsnúmer 1310127

14

Bréf umhverfisstofnunar varðandi endurgreiðslu vegna minkaveiða, dags. 13.12.13.

Lagt fram.

Málsnúmer 1307042

15

Tillaga um viðmiðunarfjárhæðir 2014 samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega

Bæjarráð samþykkir eftirfarandi tillögu um viðmiðunarfjárhæðir 2014 samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.$line$$line$Einstaklingar með tekjur árið 2012 allt að kr. 4.350.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. $line$Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um kr. 3.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 4.650.000.$line$$line$Hjón:$line$Hjón með tekjur árið 2012 allt að kr. 5.550.000 greiða ekki fasteignaskatt og holræsagjald. Afsláttur lækkar um 1% við hækkun tekna um 12.000 og fellur niður ef tekjur fara yfir kr. 6.750.000.

Málsnúmer 1311272

16

Dómur héraðsdóms Reykjaness í máli nr. E-1257/2012, eigandi Goðatúns 34 gegn Garðabæ, dags. 16.12.13.

Lagt fram endurrit af dómi héraðsdóms Reykjaness í málinun E-1257/2012: Kristjana Kristjánsdóttir gegn Garðabæ.$line$$line$Í dómnum er komist að þeirri niðurstöðu að Garðabær hafi með framkvæmdum við lagningu safnræsis og endurnýjun götunnar Silfurtúns valdið stefnanda málsins tjóni og er bótaábyrgð felld á bæinn.$line$$line$Í dómsorði kemur eftirfarandi fram:$line$?Stefndi, Garðabær, greiði stefnanda, Kristjönu Kristjánsdóttur, 35.475.624 krónur ásamt vöxtum af 34.275.624 krónum skv. 8. gr. , sbr. 4. gr., laga nr. 38/2001 um vexti og verðtryggingu frá 1. febrúar 2012 til uppkvaðningar dóms þessa að telja, en dráttarvöxtum skv. 1. mgr. 6. gr. sömu laga af 35.475.624 krónum frá þeim degi til greiðsludags.$line$Stefndi greiði stefnanda 2.100.000 krónur í málskostnað.?$line$$line$Bæjarráð leggur til við bæjarstjórn að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar.

Málsnúmer 1401043

17

Bréf Atafls varðandi lóðir fyrir eldri borgara, dags. 19.12.13.

Bæjarráð telur ekki tímabært að úthluta lóðum á svæðinu við Hleina og vísar til þess að hafin er vinna við endurskoðun aðalskipulags þar sem m.a. verður mörkuð stefna um byggð á Garðaholti og Álftanesi.

Málsnúmer 1303894

18

Álftanesvegur milli Engidals og Bessastaðavegar

Bæjarverkfræðingur kynnti tillögu um breytingu á gatnamótun Álftanesvegar og Ásahverfis sem gerir ráð fyrir hringtorgi í stað mislægra gatnamóta. Um er að ræða bráðabirgðalausn sem verður endurskoðuð samhliða gerð nýrra gatnamóta Hafnarfjarðarvegar við Engidal.$line$$line$Bæjarráð samþykkir að fela bæjarstjóra að fara þess á leit við Vegagerðina að gerð verði breyting á gatnamótunum í samræmi við ofangreint.$line$$line$Bæjarráð vísar málinu til kynningar í skipulagsnefnd.

Málsnúmer 1304356

19

Hliðsvegur 1 - Undanþága á þinglýstum kvöðum

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að heimila veðsetningu tryggingabréfs sem útgefið er til Landsbanka Íslands, dags. 27.12.2013 að fjárhæð kr. 50.000.000. Hámarksfjárhæð á kvöð vegna veðsetningar hækkar í kr. 108.400.000 samkvæmt 4. tl. A-liðar í skjali, dags. 15. mars 2005.