Beint í efni

Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025 heildarendurskoðun, dags. 19.12.13.

Málsnúmer 1311412

Ferill máls

Bæjarráð Garðabæjar

01

1. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um athugasemdir við tillögu að endurskoðun á aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem nú er á kynningarstigi samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

02

18. fundur

Lagt fram erindi Hafnarfjarðarbæjar dags. 11.11.2013 ásamt tillögu að Aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem nú er í kynningu samkvæmt 2.mgr. 30.greinar Skipulagslaga og er Garðabær gefinn kostur á umsögn um tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir eftirfarandi tillögu skiplagsstjóra að umsögn um tillöguna:$line$" Í tillögu að aðalskipulagi Hafnarjarðar 2005-2025 sem nú er í forkynningu segir m.a. að stofnbrautinni Ofanbyggðarvegi sé ætlað að taka við stórum hluta af þeim þungaflutningum auk annarrar umferðar sem fer um Reykjanesbraut. Á uppdráttum á bls. 111 í greinargerð tillögunnar sem sýna umferðarspá með Ofanbyggðarvegi er gert ráð fyrir legu hans um Setbergshlíð í Garðabæ en samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er sá vegur aðeins skilgreindur sem möguleg tengibraut. Ofanbyggðarvegur (Elliðavatnsvegur) er hinsvegar skilgreindur sem stofnbraut í Aðalskipulagi Garðabæjar frá bæjarmörkum við Hafnarfjörð í Setbergslandi að bæjarmörkum við Kópavog í Leirdalsopi. Samkvæmt þessum umferðarspám fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 27 þúsum bílum á sólarhring um Ofanbyggðarveg.$line$Þessi skilgreining á Ofanbyggðarvegi um Setbergshlíð er því ekki í samræmi við gildandi Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016. Skipulagsnefnd bendir á að nú er hafin vinna við endurskoðun Aðalskipulags Garðabæjar og eitt af því sem tekið verður til athugundar er gatnakerfi austan Reykjanesbrautar með sérstöku tilliti til legu og tenginga stofnbrauta og tengibrauta og áhrif þeirra á byggð og umhverfi.$line$Skipulagsnefnd gerir því alvarlega athugasemd við uppdrátt umferðarspár á blaðsíðu 111 í greinargerð tillögunnar. Óskað er eftir frekara samráði við Hafnarfjarðarbæ og svæðisskipulagsnefnd um útfærslu stofnbrauta á suðursvæði höfuðborgarsvæðisins.

Bæjarráð Garðabæjar

03

46. fundur

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til umfjöllunar skipulagsnefndar.