Beint í efni

18. fundur

19.12.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

18. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

19.12.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 2010120061

01

Arnarnes nýtt dsk

Tillaga að deiliskipulagi Arnarness lögð fram í kjölfar kynningar. Lagðar fram þrívíddarmyndir er sýna mismundandi byggingarmagn og áhrif þess á yfirbragð byggðar. Lögð fram tvö minnisblöð Andra Árnasonar hrl um hluta athugasemda sem gerðar hafa verið.$line$Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1312303

02

Búðir, dsk breyting, Holtsbúð, aðkoma frá Karlabraut.

Skipulagsstjóri kynnti hugmyndir um aðkomutengingu að Holtsbúð 87 (þar sem áður var hjúkrunarheimili) frá Karlabraut. Skoða þarf sérstaklega árhrif hugmyndanna á umferðaröryggi.$line$Vísað til frekari skoðunar hja tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1312262

03

Lundir, breyting dsk, Lundaból

Skipulagsstjóri kynnti hugmyndir að breytingu deiliskipulags Lunda sem nær til leikskólans Lundabóls en stækkun hans er nú fyrirhuguð. Skipulagsnefnd leggur áherslu á að allt opna svæðið umhverfis leikskólans verði skoðað og að breytingarsvæðið nái til alls opna svæðisins.

Málsnúmer 1311498

04

Silfurtún, tillaga að breytingu dsk, nýtingarhlutfall kjallararýma

Skipulagsstjóri lagði fram tillögu um breytingu sem gerir ráð fyrir því að kjallararými í Silfurtúni reiknist ekki til heildar nýtingahlutfalls.$line$Skipulagsnefnd hafnar tillögunni með vísan í skilmála hverfisins og skilgreiningar þeirra á heildarnýtingarhlutfalli.$line$Baldur Svavarsson vék af fundi undir þessum lið.

Málsnúmer 1305398

05

Hafnarfjarðarvegur við Arnarneslæk, hljóðvarnir. Framkvæmdaleyfi

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir tillögum að hljóðvörnum meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk. Nýverið boðaði bæjarverkfræðingur til íbúafundar þar sem tillögurnar voru kynntar.$line$Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi fyrir hljóðveggjum meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk sbr. 13.gr. Skipulagslaga í samræmi við framlögð gögn á grundvelli aðalskipulags .$line$Skipulagsstjóra falið að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir breytingum á hljóðmön meðfram Hafnarfjarðarvegi og á legu stofnstígs.

Málsnúmer 1305437

06

Umsókn um byggingarleyfi - Spilda A úr landi Gru 0003

Lögð fram byggingarleyfisumsókn vegna breytinga á útihúsum á Spildu A úr landi Grundar á Álftanesi. Breytingar eru allar innan byggðs flatar nústandandi útihúsa og er ætlað að bæta og fegra yfirbragð þeirra. Samkvæmt aðalskipulag er byggð við Grund og Breiðabólsstaði afmörkuð við nústandandi hús. Fyrirhugað er að í húsunum verði starfsemi garðyrkjufyrirtækisins Allt fyrir garðinn.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar í samræmi við 1. mgr.44.gr. Skipulagslaga. Grenndarkynna skal tillöguna íbúum á Norðurnesinu. Skipulagsnefnd minnir á Breiðabólsstaðartjarnar nýtur hverfisverndar samkvæmt aðalskipulagi og skal virða þau ákvæði í hvívetna.

Málsnúmer 1312031

07

Hliðsnes 6, skipting lóðar.

Lögð fram umsókn lóðarhafa lóðarinnar Hliðsnes 6 (2.295 m2) um að lóðinni verði skipt upp í tvær lóðir Hliðsnes 6 (1995 m2) og 6b (300 m2). Tvö íbúðarhús standa á lóðinni Hliðsnes 6 en samkvæmt umsókn er lóðinni skipt upp á milli húsanna. Með vísan í 1.mgr.48. gr. Skipulagslaga heimilar skipulagsnefnd skiptingu lóðarinnar.

Málsnúmer 1311412

08

Aðalskipulag Hafnarfjarðar 2005-2025 heildarendurskoðun

Lagt fram erindi Hafnarfjarðarbæjar dags. 11.11.2013 ásamt tillögu að Aðalskipulagi Hafnarfjarðar sem nú er í kynningu samkvæmt 2.mgr. 30.greinar Skipulagslaga og er Garðabær gefinn kostur á umsögn um tillöguna. Skipulagsnefnd samþykkir eftirfarandi tillögu skiplagsstjóra að umsögn um tillöguna:$line$" Í tillögu að aðalskipulagi Hafnarjarðar 2005-2025 sem nú er í forkynningu segir m.a. að stofnbrautinni Ofanbyggðarvegi sé ætlað að taka við stórum hluta af þeim þungaflutningum auk annarrar umferðar sem fer um Reykjanesbraut. Á uppdráttum á bls. 111 í greinargerð tillögunnar sem sýna umferðarspá með Ofanbyggðarvegi er gert ráð fyrir legu hans um Setbergshlíð í Garðabæ en samkvæmt gildandi aðalskipulagi Garðabæjar er sá vegur aðeins skilgreindur sem möguleg tengibraut. Ofanbyggðarvegur (Elliðavatnsvegur) er hinsvegar skilgreindur sem stofnbraut í Aðalskipulagi Garðabæjar frá bæjarmörkum við Hafnarfjörð í Setbergslandi að bæjarmörkum við Kópavog í Leirdalsopi. Samkvæmt þessum umferðarspám fyrir árið 2025 er gert ráð fyrir 27 þúsum bílum á sólarhring um Ofanbyggðarveg.$line$Þessi skilgreining á Ofanbyggðarvegi um Setbergshlíð er því ekki í samræmi við gildandi Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016. Skipulagsnefnd bendir á að nú er hafin vinna við endurskoðun Aðalskipulags Garðabæjar og eitt af því sem tekið verður til athugundar er gatnakerfi austan Reykjanesbrautar með sérstöku tilliti til legu og tenginga stofnbrauta og tengibrauta og áhrif þeirra á byggð og umhverfi.$line$Skipulagsnefnd gerir því alvarlega athugasemd við uppdrátt umferðarspár á blaðsíðu 111 í greinargerð tillögunnar. Óskað er eftir frekara samráði við Hafnarfjarðarbæ og svæðisskipulagsnefnd um útfærslu stofnbrauta á suðursvæði höfuðborgarsvæðisins.