Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi hljóðvörn meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk - framkvæmdaleyfi, dags. 19.12.13.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
1. fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um veita framkvæmdaleyfi fyrir hljóðveggjum meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk sbr. 13.gr. skipulagslaga í samræmi við framlögð gögn á grundvelli aðalskipulags.$line$$line$Framkvæmdaleyfið skal útefið samkvæmt 15. gr. skipulagslaga og er framkvæmdaleyfisgjald kr. 68.878 samkvæmt gjaldskrá um skipulagsvinnu og útgáfu framkvæmdaleyfis nr. 944/2012
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
18. fundur
Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir tillögum að hljóðvörnum meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk. Nýverið boðaði bæjarverkfræðingur til íbúafundar þar sem tillögurnar voru kynntar.$line$Skipulagsnefnd veitir framkvæmdaleyfi fyrir hljóðveggjum meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarneslæk sbr. 13.gr. Skipulagslaga í samræmi við framlögð gögn á grundvelli aðalskipulags .$line$Skipulagsstjóra falið að vinna tillögu að breytingu deiliskipulags Akra sem gerir ráð fyrir breytingum á hljóðmön meðfram Hafnarfjarðarvegi og á legu stofnstígs.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
15. fundur
<DIV><DIV><DIV>Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um gerð hljóðvarna meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes læk að sunnanverðu.</DIV><DIV>Skipulagsnefnd beinir því til bæjarverkfræðings að skoðað sé betur áhrif hljóðvarna á byggðina og að haldinn sé kynningar- og samráðsfundur með íbúum. Ef breytingar verða á hljóðmönum og stígum við Akrahverfi kallar það á breytingu á deiliskipulagi Akra.</DIV></DIV></DIV>