Beint í efni

15. fundur

24.10.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

15. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

24.10.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

• Stefán Snær Konráðsson - formaður
• Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
• Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
• Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
• Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
• Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
• Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
• Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
• Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

• Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Formaður skipulagsnefndar greindi frá niðurstöðu bæjarstjórnar um val ráðgjafa vegna gerðar aðalskipulags hins nýja sameinaða sveitarfélags Garðabæjar og Álftaness. Ákveðið hefur verið að ganga til samninga við ráðgjafateymi sem samanstendur af eftirfarandi aðilum: Teiknistofa arkitekta, Gylfi Guðjónsson og félagar / Landmótun ehf / Efla ehf. Skipulagsnefnd fagnar því að niðurstaða er fengin í málinu og þakkar öllum þeim sem tóku þátt fyrir þeirra framlag.

Málsnúmer 1301213

02

Breyting á dsk Ása og Grunda Arnarnesvogur FEB

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Ása og Grunda sem nær til svæðisins neðan Sjávargrundar og útivistarsvæðis við Arnarnesvog. Tillagan gerir ráð fyrir 30 raðhúsaeiningum. Tillagan var í forkynningu frá 25.september til 18.október. Kynningarfundur var haldinn í Flataskóla þann 2.október og var hann vel sóttur. 3 erindi með ábendingum bárust og voru þær lagðar fram. Í samræmi við ábendingu sem fram kom á íbúafundi er unnið að því að gera hljóðvistarúttekt á hugsanlegum áhrifum hljóðvarna neðan við Hafnarfjarðarveg á byggð í Silfurtúni. Fyrstu niðurstöður benda til þess að engin áhrif séu af gerð hljóðmanar eins og tillagan gerir ráð fyrir. Úttekt á hljóðvist skal liggja fyrir við kynningu tillögunnar.

Meirihluti skipulagsnefndar heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Baldur Ó. Svavarsson greiða atkvæði á móti tillögunni.

Málsnúmer 1310212

03

Miðbær Garðabæjar dsk, efra svæði,tilfærsla íbúða á milli lóða

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar, efra svæði sem gerir ráð fyrir því að íbúðum á lóð nr. 4 verði fjölgað um 2 en fækkað um 2 á lóð númer 2. Engin breyting verður á byggingarmagni.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Miðbæjar, efra svæðis í samræmi við 2.mgr. 43.gr Skipulagslaga. Grenndarkynning er felld niður í samræmi við  3.mgr.44.gr. þar sem að breytingin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og bæjarins.

Málsnúmer 1305398

04

Hafnarfjarðarvegur við Arnarneslæk, hljóðvarnir. Framkvæmdaleyfi

Lögð fram umsókn bæjarverkfræðings um gerð hljóðvarna meðfram Hafnarfjarðarvegi við Arnarnes læk að sunnanverðu.

Skipulagsnefnd beinir því til bæjarverkfræðings að skoðað sé betur áhrif hljóðvarna á byggðina og að haldinn sé kynningar- og samráðsfundur með íbúum. Ef breytingar verða á hljóðmönum  og stígum við Akrahverfi kallar það á breytingu á deiliskipulagi Akra.

Málsnúmer 1309702

05

Hellagata 31, dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Hellagata 31. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 3(úr 6 í 9) og fjölgun bílastæða um 6 (úr 12 í 18). Byggingarmagn ofanjarðar breytist ekki.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1309703

06

Holtsvegur 51, dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Holtsvegur 51. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 6(úr 10 í 16) og fjölgun bílastæða um 16 (úr 20 í 36). Byggingarmagn ofanjarðar breytist ekki.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1309700

07

Hraungata 19-23, 41-45 og 47-51, dsk br

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðanna Hraungata 19-23, 41-45 og 47-51. Tillagan gerir ráð fyrir minniháttar breytingum á byggingarreitum og tilfærslum á bílastæðum. Byggingarmagn ofanjarðar breytist ekki.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1212099

08

Hraungata 25-39, dsk-br - Urriðaholt vesturhl.

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Hraungata 25-39. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 2(úr 8 í 10) og fjölgun bílastæða um 4 (úr 18í 22) eins og skipulagsnefnd hafði áður samþykkt. Valmöguleiki um húsagerð R1 á lóðinni er felldur út þar sem að ekki var unnt að halda honum inni samkvæmt ábendingu Skipulagsstofnunar. Syðsti hluti lóðar breytist í opið svæði og gert verður ráð fyrir stíg á milli Hraungötu og Holtsvegar. Byggingarmagn ofanjarðar breytist ekki.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1304582

09

Víkurgata 2, breyting á dsk Urriðaholts

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Víkurgata. Tillagan gerir ráð fyrir fjölgun íbúða um 2(úr 8 í 10) og fjölgun bílastæða um 7 (úr 10 í 17).Byggingarmagn ofanjarðar breytist ekki.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1310111

10

Urriðaholt, vesturhluti, dsk br vegna salarhæðar

Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að skilgreind salarhæð fjölbýlishúsa verði 2,9 m í stað 3,0 m. Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1305509

11

Urriðaholt-Norðurhluti deiliskipulag

Lögð fram tillaga að nýju deiliskipulagi, Urriðaholt Norðurhluti sem gerir ráð fyrir 66-72 íbúðum í 3 fjölbýlishúsum og leikskólalóð.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr. 41.gr. Skipulagslaga nr. 123/2010. Þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi og rammaskipulagi er fallið frá gerð lýsingar og frá forkynningu tillögunnar.