Beint í efni

Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag - NOTIÐ MÁL 1507053

Málsnúmer 2008030200

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

15. (779). fundur

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar. María Grétarsdóttir situr hjá.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

02

17. fundur

Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir frá Landslagi ehf. kynntu drög að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar.

Umhverfisnefnd þakkar greinagóða kynningu og samþykkir tillöguna.

Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir frá Landslagi ehf. kynntu drög að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar.

Umhverfisnefnd þakkar greinargóða kynningu og samþykkir tillöguna.

Bæjarráð Garðabæjar

03

38. (1706). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar Garðabæjar og Umhverfisstofnunar.

Fylgiskjöl

Skipulagsnefnd Garðabæjar

04

12. fundur

Þráinn Hauksson og Halldóra Narfadóttir hjá Landslagi ehf gerðu grein fyrir tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr. 40.gr. Skipulagslaga.
Halda skal kynningarfund á meðan forkynningu stendur.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni ennfremur til umsagnar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar.

Bæjarráð Garðabæjar

05

4 (1672). fundur

Lagt fram.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

06

9. fundur

Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf. kynnti tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.

Nefndin þakkar greinagóða kynningu og gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

19. fundur

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynnti tillögu að deiliskipulagi og lýsingu verkefnisins. Einnig gert grein fyrir samráðsferli við hina ýmsu aðila. Nú liggur beinast við að staðsetning útilífsmiðstöðvar sé hentug við Grunnavatn syðra og er þá utan vatnsverndarsvæðis.$line$Skipulagsnefnd vísar tillögu skipulagsstjóra um staðsetningu útilífsmiðstöðvar við Grunnavatn syðra til umsagnar Skógræktarfélags Reykjavíkur, umhverfisnefndar Garðabæjar, Skátafélagsins Vífils og Landnets.$line$Auður Hallgrímsdóttir, fulltrúi Bjartrar framtíðar lýsti þeirri skoðun sinni að heppilegri staðsetning fyrir útilífsmiðstöð væri við Grunnavatndal nyrðri og óskaði eftir að möguleiki á þeirri staðsetningu verði einnig kynntur skátunum.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

08

35. fundur

Skipulagsnefnd vísaði til umsagnar umhverfisnefndar staðsetningu útilífsmiðstöðvar við sunnanverðan Vatnsás við Grunnavatn syðra. Áður var áætluð staðsetning við Hjalladal í deiliskipulagstillögu að Heiðmörk.

Umhverfisnefnd er hlynnt staðsetningu útilífsmiðstöðvar við sunnanverðan Vatnsás við Grunnavatn syðra, þar sem staðsetning í Hjalladal er ekki ásættanleg vegna vatnsverndarsjónarmiða.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

09

17. fundur

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir fundi sínum og skipulagsráðgjafa með heilbrigðiseftirliti þar sem fram kom að í ljósi niðurstöðu umhverfis-og auðlindaráðuneytis í málum sem varða heimildir til framkvæmda innan grann-og brunnsvæða vatnsverndar þá sé ljóst að ekki verði veittar undanþágur frá vatnsverndarákvæðum. Fyrirhuguð staðsetning útilífsmiðstöðvar við Hjallaflatir samkvæmt tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur er innan grannsvæðis og er þess því ekki að vænta að fallist verði á staðsetningu hennar þar. Lagt fram erindi Skátafélagsins Vífils þar sem fram kemur að félagið telji staðsetningu við Hjallaflatir besta kostinn og að staðsetning við Grunnavatn syðra væri lakari kostur. Tillögu að staðsetningu útilífsmiðstöðvar við sunnanverðan Vatnsás (Grunnuvatn syðra) vísað til umsagnar í umhverfisnefnd og til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

10

27. fundur

Erindi frá skipulagsstjóra 01.03.13 um lýsingu deiliskipulags tillögu og matslýsingu vegna Heiðmerkur og Sandahlíðar með ósk um að gögnin verði lögð fyrir umhverfisnefnd.

Ánægjulegt að vinnsla deiliskipulagsins er komin í gang.

Athugasemdir nefndarinnar verða sendar skipulagsstjóra.

Bæjarráð Garðabæjar

11

9. fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um matslýsingu tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 2. mgr. 6. gr. laga um umhverfismat áætlana nr. 105/2006.<?xml:namespace prefix = o ns = "urn:schemas-microsoft-com:office:office" /><o:p></o:p>

Skipulagsnefnd Garðabæjar

12

3. fundur

Lögð fram tillaga tillaga að matslýsingu tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur og Sandahlíðar í samræmi við 2.mgr.6.gr.laga um umhverfismat áætlana. nr.105/2006.

Skipulagsnefnd samþykkir framlagða matslýsingu.

Umhverfisnefnd Garðabæjar

13

19. fundur

Arinbjörn Vilhjálmsson kynnti deiliskipulagslýsingu Heiðmerkur og Sandahlíðar. Einnig tillögu að breytingu á aðalskipulagi svæðisins.

Formaður þakkaði honum greinagóða kynningu.