Beint í efni

27. fundur

12.03.2013
Umhverfisnefnd Garðabæjar

27. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

12.03.2013

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - aðalmaður
  • Jón Bjarni Þorsteinsson - aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - aðalmaður
  • Elías Jakob Bjarnason - áheyrnarfulltrúi
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1212190

01

Sorphirða í Garðabæ 2013

Innleiðing tveggja tunnu kerfis - pappírstunna

Umhverfisstjóri kynnti framgang málsins.

Málsnúmer 1208530

02

Samningur og rekstrarstyrkur vegna Heiðmerkur við Skógræktarfélag Reykjavíkur

Bæjarráð vísar til umfjöllunar þann 05.03.13 drögum að samstarfssamningi um Heiðmörk og rekstrarstyrk frá Skógræktarfélagi Reykjavíkur.

Athugasemdir nefndarinnar verða sendar bæjarráði.

Málsnúmer 1303203

03

Göngustígur Garðahrauni

Tillaga Landlags ehf. að legu göngustígs í Garðahrauni vestan Reykjanesbrautar kynnt. Stígurinn er á Aðalskipulagi Garðabæjar 2004-2016. Merkihælar hafa verið settir í fyrirhugaða legu hans.

Nefndarmenn eru ánægðir með framvindu mála í stígagerð. Erla Bil Bjarnardóttir fór af fundinum.

Málsnúmer 1302534

04

Drög að reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunnar með náttúru landsins.

Erindi frá Umhverfis- og auðlindarráðuneyti dags. 22.02.13 til nefndarinnar til umsagnar á drögum að reglugerð um eftirlit Umhverfisstofnunnar með náttúru landsins.

Nefndin gerir engar athugasemdir við þessi drög.

Málsnúmer 1301417

05

Frumvarp til laga um náttúruvernd (heildarlög), 429. mál

Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir til umsagnar frumvarp til laga um náttúrvernd, 429. mál. Umsagnarfrestur var til 8. febrúar sl.

Umræður um frumvarpið. Lagt fram.

Málsnúmer 1302394

06

Ástand gróðurs og umferðaöryggi

Erindi frá Umferðastofu dags. 15. febrúar 2013 um ástand gróðurs og umferðaöryggi. Sent öllum sveitarfélögum, auk lögregluumdæma landsins og til Vegagerðarinnar.

Umræður um hertari aðgerðir gagnvart þeim sem ítrekað vanrækja klippingu trjáa og runna, sem slúta yfir stéttar og gangstíga.

Málsnúmer 1302401

07

Útiskýli - umhverfismennt í Álftanesskóla.

Bæjarráð vísar þann 28.02.13 erindi hverfisstjórnar dags. 26.02.13 til umhverfisnefndar. Málið áður tekið fyrir í umhverfis- og skipulagsnefnd Sveitarfélagsins Álftaness.

Umhverfisnefnd telur verkefnið áhugavert.Samráð þarf við skipulagsnefnd, Umhverfisstofnun og bæjarstjórn.

Málsnúmer 2008030200

08

Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag

Erindi frá skipulagsstjóra 01.03.13 um lýsingu deiliskipulags tillögu og matslýsingu vegna Heiðmerkur og Sandahlíðar með ósk um að gögnin verði lögð fyrir umhverfisnefnd.

Ánægjulegt að vinnsla deiliskipulagsins er komin í gang.Athugasemdir nefndarinnar verða sendar skipulagsstjóra.

Málsnúmer 1303202

09

Hjólastígakort af höfuðborgarsvæði

Erindi frá Mannvit verkfræðistofu 01.03.13. varðandi hjólastígakort yfir höfuðborgarsvæðið, verkefni er tengt Samgönguviku.

Nefndin tekur jákvætt í erindið en leggur til að kostnaðurinn verði athugaður nánar.

Málsnúmer 1302495

10

Söfnunargámar fyrir einnota skilagjaldsskyldar drykkjarumbúðir

Bæjarráð vísaði erindi Bandalags íslenskra skáta dags. 21.03.13 til umfjöllunar umhverfisnefndar 05.03.13 Erindið er um söfnunargáma fyrir einnota skilagjaldsskyldar drykkjarumbúðir á grenndarstöðvum. Óskað er eftir að Garðabær kosti smíði gáma með staðsetningu á grenndarstöðvum til fjáröflunar Grænna skáta.

Álit nefndarinnar sendar bæjarráði.

Málsnúmer 1206034

11

Strönd og lækir, mengunarmælingar

Lagðar fram niðurstöður á greiningu sýna frá 20. febrúar 2013 frá Heilbrigðiseftirlitinu.

Umræður um framhaldsaðgerðir. Ákveðið að fulltrúar nefnarinnar fari til fundar við bæjarstjóra.

Málsnúmer 1303531

12

Önnur mál

Tillaga fulltrúa Álftaness.

Ákveðið að fara í ferð um Álftanes, til frekari kynningar á umhverfismálum.