Beint í efni

19. fundur

24.04.2012
Umhverfisnefnd Garðabæjar

19. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

24.04.2012

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Júlía Guðrún Ingvarsdóttir - Formaður
  • Þorsteinn Þorsteinsson - Aðalmaður
  • Sigurbjörn Ingimundarson - Aðalmaður
  • Sigríður Erla Jónsdóttir - Aðalmaður
  • Eyþór Sigfússon - Varamaður
  • Erla Bil Bjarnardóttir - umhverfisstjóri

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 2008030200

01

Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag

Arinbjörn Vilhjálmsson kynnti deiliskipulagslýsingu Heiðmerkur og Sandahlíðar. Einnig tillögu að breytingu á aðalskipulagi svæðisins. Formaður þakkaði honum greinagóða kynningu.

Málsnúmer 1202032

02

2011010246 Hundahald í Garðabæ

Kynning skipulagsstjóra á skipulagsmálum Balasvæðis, eftir vettvangsferð fulltrúa skipulags- og umhverfisnefndar.$line$$line$Útivistarsvæði fyrir lausa hunda rætt.

Nefndin leggur til við bæjarráð að skipuleggja afgirt svæði fyrir lausa hunda á Bala í Garðahverfi.
Arinbjörn Vilhjálmsson víkur af fundi.

Málsnúmer 1203835

03

Lagning raflína í jörð

Erindi Iðnaðarráðuneytis dags. 23. mars 2012, vísað til nefnarinnar af bæjarráði 3. apríl. Umræður um málið. Nefndin stefnir á að mæta á boðaða kynningu um málefnið þann 11. maí í Háskóla Íslands.

Málsnúmer 1204256

04

Hreinsunarátak sumarið 2012

Tillaga umhverfisnefndar að dagskrá Hreinsunarátaksins var samþykkt í bæjarráði þann 17. apríl.

Málsnúmer 1204313

05

Starfshópur um myrkurgæði og ljósmengun

Erindi Ingu Sigrúnar Atladóttur frá 12.04.12 um starfshóp á vegum umhverfisráðuneytis um myrkurgæði og ljósmengun. Lagt fram.

Málsnúmer 1111186

06

Framtíð Reykjanesfólkvangs

Pálmi Freyr Randversson fulltrúi Garðabæjar í stjórn Reykjanesfólkvangs sendi drög af stjórnunaráætlun til nefndarinnar, til umsagnar sem er til 1. maí. nk.$line$

Fulltrúar nefndarinnar sátu kynningarmálþing um stjórnunaráætlun Fólkvangsins í Hafnarfirði þann 3. apríl sl. Nefndin sendir athugasemdir sínar til fulltrúa Garðabæjar í stjórn Reykjanesfólkvangs.

Málsnúmer 1112066

07

Samráðshópur um Staðardagskrá 21

Málefni fundar Samráðshóps um staðardagskráfulltrúa haldinn þann 26. mars sl. í Hafnarfirði.

Aukin flokkun úrgangs og tveggja tunnu kerfi sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu voru til umræðu. Nefndarmenn ræddu fyrirkomulagið í Garðabæ.

Málsnúmer 1202032

08

Önnur mál

Ársfundur Umhverfisstofnunar 2012

Á ársfundi Umhverfisstofnunnar þann 30. mars í Reykjavík mættu Júlía og Erla Bil f.h. umhverfisnefndar.

Málsnúmer 1202032

09

Önnur mál

Lúpínan$line$Málþing um alaskalúpínu, haldið af Landgræðslu ríkisins á Gunnarsholti. Umhverfisstjóri sagði frá því helsta sem kom fram á málþinginu, þar voru kynntar nýjustu rannsóknir á hegðun lúpínunar.

Nefndin hefur áhuga á að fylgjast með framvindu málsins, ekki síst vegna þess að friðland Vífilsstaðavatns og Heiðmerkur er innan stórrar lúpínu rannsóknar.