Beint í efni

9. fundur

14.01.2015
Umhverfisnefnd Garðabæjar

9. fundur

Umhverfisnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

14.01.2015

Kl. 16:00 - 17:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Jóna Sæmundsdóttir - formaður
  • Jóhann Gunnar Jóhannsson - aðalmaður
  • Berglind Birgisdóttir - aðalmaður
  • Huginn Freyr Þorsteinsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Erla Bil Bjarnardóttir

Dagskrá

Málsnúmer 1308037

01

Hlið á Álftanesi, breyting deiliskipulags.

Guðni Pálsson arkitekt kynnti tillögu að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi sem 19. fundur skipulagsnefndar vísaði til umsagnar umhverfisnefndar.

Umhverfisnefnd gerir ekki athugasemdir við tillögu að breytingu á deiliskipulagi Hliðs, en óskar eftir að sett verði skilyrði um að ekkert rask verði utan lóðar við framkvæmdirnar.$line$$line$

Málsnúmer 2008030200

02

Heiðmörk Sandahlíð deiliskipulag

Þráinn Hauksson frá Landslagi ehf. kynnti tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur.

Nefndin þakkar greinagóða kynningu og gerir ekki athugasemdir við tillöguna.

Málsnúmer 1302243

03

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Skipulagsstjóri boðaði umhverfisnefnd til opins kynningarfundar um lýsingu á tillögu að endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar, haldinn í Flataskóla frá kl.17:30.

Umhverfisnefnd sat íbúafundinn sem var fjölmennur, þar tóku íbúar virkan þátt í umræðum.