15. (779). fundur
15. (779). fundur
Bæjarstjórn Garðabæjar
í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
15.10.2015
Kl. 17:00 - 19:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigríður Hulda Jónsdóttir - forseti bæjarstjórnar
- Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
- Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
- Gunnar Valur Gíslason - aðalmaður
- Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
- Gunnar Einarsson - aðalmaður
- Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
- Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
- Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson
Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 1. október sl. er lögð fram.[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi hljóðupptökur frá bæjarstjórnarfundum og lagði áherslu á að þær væru gerðar aðgengilegar sem fyrst eftir fund bæjarstjórnar.[line]
Dagskrá
Málsnúmer 1510008F
01
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 6/10 ´15.
María Grétarsdóttir, ræddi afgreiðslu mála skipulagsnefndar og gerði athugasemdir við að Fólkið í bænum hefði ekki áheyrnarfulltrúa í nefndinni til að koma að umfjöllun mála á undirbúningsstigi.
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi Ása og Grunda vegna raðhúsalóða við Unnargrund.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 9. tl., bréf Heimilis og skóla varðandi ályktun um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjarkurli.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1510022F
02
Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 13/10 ´15.
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta um styrk og 24. tl., bréf eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta um styrk og 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tilllögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 24. tl., bréf eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 24. tl., bréf eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi og 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta um styrk.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsinu við Lambhaga 6, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar vegna tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar samkvæmt heimild í 2. ml. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan geri ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits, fækkun íbúða en óbreyttu byggingarmagni. Á kynningartíma bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til með afgreiðslu skipulagsnefndar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að breyta númeri lóðarinnar við Nýhöfn 13 í Nýhöfn 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fundargerðin sem er 25 tl. er samþykkt samhljóða.
Málsnúmer 1510009F
03
Fundargerð fjölskylduráðs frá 8/10 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1510015F
04
Fundargerð leikskólanefndar frá 12/10 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1510013F
05
Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 7/10 ´15.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi fund sem Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu boðaði til með bæjarbúum í vikunni. Áslaug Hulda lýsti ánægju sinni með fundinn sem hún sagði hafa verið mjög upplýsandi og gagnlegan. Áslaug Hulda þakkaði lögreglunni fyrir skýra og lýsandi framsetningu á atvikum og atburðum er lögreglan kemur að og varða hagsmuni bæjarbúa.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1510020F
06
Fundargerð menningar- og safnanefndar frá 9/10 ´15.
Gunnar Valur Gíslason, ræddi 4. tl., fjárhagsáætlun 2016 og 5. tl., niðurstöður af opnum fundi. Gunnar Valur vék að þætti nefndarinnar varðandi dagskrá hátíðar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli Garðabæjar á árinu 2016.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 4. tl., fjárhagsáætlun og gerði nánari grein fyrir hugmyndum afmælisnefndar í tilefni af 40 ára kaupstaðarafmæli bæjarins.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1510017F
07
Fundargerð skipulagsnefndar frá 8/10 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1509028F
08
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 24/9 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1510014F
09
Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 8/10 ´15.
Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi 1. tl., umsóknir í Þróunarsjóði grunnskóla í Garðabæ.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1502086
10
Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28/9 ´15.
Sigurður Guðmundsson, ræddi reglur um starfsleyfi og þá sérstaklega m.t.t. til gildistíma þeirra.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501346
11
Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða frá 1/9 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1503137
12
Fundargerð svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 2/10 ´15.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1501328
13
Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs frá 25/6 og 23/9 ´15.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 2. tl., fg. 23/9, lúpínu í Reykjanesfólkvangi
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi sama mál og svaraði fyrirspurn. Þá ræddi Jóna 1. tl., erindi frá hópnum Gróður fyrir fólk og 6. tl., skipun stjórnar.
Fundargerðin lögð fram.
Málsnúmer 1409324
14
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2015 - Viðaukar 5-17
Bæjarstjórn samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja eftirfarandi viðauka við fjárhagsáætlun 2015 samkvæmt 2. mgr. 63. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Viðauki 5 Ísafold, hjúkrunarheimili kr. 23.283.552
Viðauki 6 Akstur fatlaðra kr. 25.000.000
Viðauki 7 Niðurgreiðsla á skólamat kr. 15.000.000
Viðauki 8 Félagsmiðstöðin Klakinn kr. 3.200.000
Viðauki 9 Sumarstörf kr. 51.000.000
Viðauki 10 Fjárhagsaðstoð kr. 10.000.000
Viðauki 11 Frekari liðveisla kr. 30.000.000
Viðauki 12 Félagsstarf aldraðra kr. 4.000.000
Viðauki 13 Sambýlið Sigurhæð kr. 3.000.000
Viðauki 14 Félagsleg heimaþjónusta kr. 15.000.000
Viðauki 15 Laun kennara kr. 82.000.000
Viðauki 15 Varasjóður kr. -100.000.000
Viðauki 16 Fasteignaskattur, lækkun v/lagabreyt.kr. 38.000.000
Viðauki 16 Hækkun útsvars kr. -150.000.000
Viðauki 17 Sjálandsskóli, húsaleiga (nettó) kr. 0
Ofangreindum viðaukum nr. 5 - 17 skal mætt með lækkun á handbæru fé í árslok sem nemur kr. 49.283.552.