Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 6/10 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (779). fundur
María Grétarsdóttir, ræddi afgreiðslu mála skipulagsnefndar og gerði athugasemdir við að Fólkið í bænum hefði ekki áheyrnarfulltrúa í nefndinni til að koma að umfjöllun mála á undirbúningsstigi.
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar um breytingu á skipulagi Ása og Grunda vegna raðhúsalóða við Unnargrund.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 9. tl., bréf Heimilis og skóla varðandi ályktun um endurnýjun gervigrasvalla vegna eiturefna í dekkjarkurli.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi sama mál.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar og Umhverfisstofnunar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir með með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um að vísa til forkynningar samkvæmt 2. mgr. 30. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 tillögu að breytingu á aðalskipulagi Garðabæjar vegna tillögu að deiliskipulagi Heiðmerkur. Jafnframt skal tillagan send til umsagnar umhverfisnefndar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fundargerðin sem er 20 tl. er samþykkt samhljóða.