Fundargerð bæjarráðs Garðabæjar frá 13/10 ´15.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
15. (779). fundur
Steinþór Einarsson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Sigurður Guðmundsson, ræddi sama mál.
Gunnar Valur Gíslason ræddi 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta um styrk og 24. tl., bréf eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi.
Jóna Sæmundsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta um styrk og 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tilllögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 24. tl., bréf eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi.
Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 24. tl., bréf eldri borgara á Álftanesi um bættar samgöngur á Álftanesi og 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Halldór Jörgensson, ræddi 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
María Grétarsdóttir, ræddi 5. tl., bréf Hjálparsveitar skáta um styrk.
Steinþór Einarsson, ræddi að nýju 12. tl., afgreiðslu skipulagsnefndar varðandi tillögu um forkynningu deiliskipulags Vífilsstaðavegar.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fram fari grenndarkynning samkvæmt 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna umsóknar um byggingarleyfi vegna breytinga á einbýlishúsinu við Lambhaga 6, þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar vegna tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar samkvæmt heimild í 2. ml. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atvæðum tillögu skipulagsnefndar um breytingu á deiliskipulagi Sjálands vegna lóðarinnar við Strikið 1, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan geri ráð fyrir breytingu á lögun byggingarreits, fækkun íbúða en óbreyttu byggingarmagni. Á kynningartíma bárust athugasemdir sem afstaða hefur verið tekin til með afgreiðslu skipulagsnefndar. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að breyta númeri lóðarinnar við Nýhöfn 13 í Nýhöfn 7.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Hliðs á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar um skipulagslýsingu samkvæmt 1. mgr. 30. gr. og 1. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 vegna tillögu að breytingu á aðal- og deiliskipulagi Kauptúns vegna lóðanna við Kauptún 1, 2, 3 og lóðar fyrir dælustöð. Lýsingin skal send til umsagnar hjá Skipulagsstofnun, svæðisskipulagsnefnd og öðrum hagsmunaðilum. Jafnframt skal lýsingin kynnt almenningi. María Grétarsdóttir situr hjá.
Fundargerðin sem er 25 tl. er samþykkt samhljóða.