Beint í efni

8. fundur

20.06.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

8. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.06.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

• Stefán Snær Konráðsson - formaður
• Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
• Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
• Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
• Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
• Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
• Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
• Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
• Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
• Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
• Hulda Hauksdóttir - upplýsingafulltrúi

Ritari

• Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1210444

01

Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð 7.fundar skipulagsnefndar sem haldinn var 30.maí sl lögð fram. Engar athugasemdir.

Málsnúmer 1302243

02

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Ferli við val á aðalskipulagsráðgjöfum tekið fyrir en bæjarráð vísaði málinu til skipulagsnefndar í kjölfar óska tveggja umsækjenda um rökstuðning vegna niðurstöðu skipulagsnefndar á síðasta fundi um val þriggja teyma. Skipulagsnefnd Garðabæjar telur að umsækjendur um gerð aðalskipulags Garðabæjar séu allir hæfir og flestir vel hæfir til að takast það verkefni á hendur að leiða gerð nýs aðalskipulags Garðabæjar. Skipulagsnefnd hefur þegar valið þrjú teymi til að koma með tillögur. Eftir frekari umræðu telur nefndin að rétt sé að gefa öllum umsækjendunum kost á að koma með tillögur að því hvernig þeir muni leysa verkefnið og hver yrði sýn þeirra á gerð nýs aðalskipulags. Meginforsendur þeirrar ákvörðunar skipulagsnefndar Garðabæjar er að við svo mikilvægt verkefni sem gerð aðalskipulags bæjarins er, einkum eftir sameiningu Garðabæjar og Álftanes, að brýnt sé að fleirum en þeim þremur sem upphaflega voru valdir, verði gert kleift að koma með tillögur um hvernig þeir sjá verkefnið leyst af hendi áður en nefndin velur þann umsækjenda sem leysir umbeðið verkefni. Skipulagsnefnd Garðabæjar telur mikilvægt með þessu að viða að sér sem mestum upplýsingum um umsækjendur og hugmyndir þeirra til verkefnisins og gæta að fullnægjandi rannsókn á umsækjendum. Nefndin telur einnig mikilvægt að ekki verði hrapað að gerð aðalskipulags og öllum þeim níu umsækjendateymum verði gert kleift að fá nokkurn tíma til að koma með tillögur. Leggur nefndin því til við Bæjarráð Garðabæjar að frestur til að taka endanlega ákvörðun um val skipulagsráðgjafa verði frestað til fyrri hluta septembermánaðar 2013.

Málsnúmer 1305510

03

Urriðaholt, vesturhluti dsk-br Urriðaholtsskóli

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts. Tillagan nær til lóða grunnskóla og leikskóla á suðurhluta háholtsins. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðirnar sameinist, að byggingarreitir sameinist og að gönguleið sem liggur milli lóðanna verði felld út. Ástæða tillögunnar er sú að niðurstaða vinnu stýrihóps Garðabæjar um uppbyggingu skóla í Urriðaholti var sú að sameina skyldi stofnanirnar í eina byggingu.

Þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi Garðabæjar og rammaskipulagi Urriðaholts er fallið frá forkynningu í samræmi við 4.mgr. 40.gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd leggur til að við skilmála eftir breytingu bætist við setningin: "Gert er ráð fyrir heildstæðum grunnskóla frá 1.-10. bekkjar."

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindri breytingu.

Málsnúmer 1306396

04

Flataskóli, umsókn um dsk br v leikskóla

Lögð fram tillaga bæjarverkfræðings um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sem nær til grunnskólanna Flataskóla og Garðaskóla.  Tillagan gerir ráð fyrir því að við skilmála bætist eftirfarandi ákvæði: " Á lóð Flataskóla verður heimilt að starfrækja leikskóla auk grunnskóla. Á lóðum Flataskóla og Garðaskóla verður heimilt að starfrækja grunnskóla sem mynda einn heilstæðan grunnskóla fyrir börn í 1.-10.bekk."

Þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi Garðabæjar er fallið frá forkynningu í samræmi við 4.mgr. 40.gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga.

Málsnúmer 1304064

05

Hofsstaðir, deiliskipulag

Lagt fram erindi frá eigendum Hofstaða þar sem óskað er eftir því að á lóðinni verði heimilt að reisa fjölbýlishús sem sé í góðu samræmi við nálægar byggingar. Fram kemur sú skoðun umsækjenda að einbýlishús á Hofstaðalóðinni sé ekki lengur fýsilegur kostur vegna nýbygginga við Kirkjulund.

Skipulagsnefnd vísar erindinu til umfjöllunar við gerð aðalskipulags.

Málsnúmer 1306387

06

Engimýri 2, umsókn um dsk breytingu

Lögð fram tillaga um stækkun byggingarreits við suðurgafl íbúðarhússins að Engimýri 2. Stækkun er 1,2 x 7,5 m að flatarmáli. Stækkun er undir svölum og þakskyggni.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Hofsstaðamýrar og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum Engimýrar 1, 3 og 4.

Málsnúmer 1305437

07

Umsókn um byggingarleyfi - Spilda A úr landi Gru 0003

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir umbætur á útihúsum. Deiliskipulag er ekki fyrir hendi. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1305130

08

Kaplakriki, breyting á deiliskipulagi

Lögð fram skipulagslýsing vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Kaplakrika. Í ljós kemur að gert er ráð fyrir að byggingarmagn á íþróttasvæðinu geti orðið 32.456 en er í dag 15.950 með tilheyrandi aukningu umferðar og álagi á nánasta umhverfi sitt.

Skipulagsnefnd telur að lýsing þurfi betur að greina frá því með hvaða hætti skal kynna tillögurnar og hafa samráð við hagsmunaaðila í næsta nágrenni s.s. rekstraraðila í Molduhrauni.

Skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum af auknu umferðarálagi tengdu fyrirhugaðri uppbyggingu.

Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við lýsinguna en bendir á ákvðæði skipulagslaga um að kynna skulu tillöguna fyrir aðliggjandi sveitarfélagi.