Bréf skipulagsstjóra varðandi Flataskóla, umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna leikskóla, dags. 21.06.13.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
26. fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
8. fundur

Lögð fram tillaga bæjarverkfræðings um breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs sem nær til grunnskólanna Flataskóla og Garðaskóla. Tillagan gerir ráð fyrir því að við skilmála bætist eftirfarandi ákvæði: " Á lóð Flataskóla verður heimilt að starfrækja leikskóla auk grunnskóla. Á lóðum Flataskóla og Garðaskóla verður heimilt að starfrækja grunnskóla sem mynda einn heilstæðan grunnskóla fyrir börn í 1.-10.bekk."

Þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi Garðabæjar er fallið frá forkynningu í samræmi við 4.mgr. 40.gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr.Skipulagslaga.