26. fundur
26. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
25.06.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Stefán Snær Konráðsson - aðalmaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
Ritari
- Guðjón E. Friðriksson
Dagskrá
Málsnúmer 1306456
01
Fyrirspurn frá Fólkinu í bænum varðandi laun fulltrúa í bæjarstjórn og nefndum, dags. 20.06.13.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 1301109
02
Afgreiðsla byggingarfulltrúa tímabilið 14.06.-21.06.2013.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 14.06. - 21.06.2013 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010.
Málsnúmer 1306459
03
Fyrirspurn Steinþórs Einarssonar bæjarfulltrúa varðandi búsetuúrræði fatlaðs fólks, dags. 21.06.13.
Lögð fram svör félagsmálastjóra um stöðu mála varðandi búsetumál fatlaðs fólks, dags. 21.06.2013.
Málsnúmer 1305803
04
Bréf Hagsmunasamtaka heimilanna varðandi stöðvun á nauðungarsölum án dómsúrskurðar, dags. 18.06.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1306414
05
Bréf Arion banka varðandi afhendingu teikninga af húsnæði Arion banka, dags. 11.06.13.
Bæjarráð tekur undir sjónarmið í bréfi bréfritara að á grundvelli öryggissjónarmiða sé rétt að verða við þeirri kröfu að uppdrættir að húsnæði hans við Garðatorg 5 sem hýsir bankastarfsemi verði ekki afhentir þriðja aðila.
Málsnúmer 1306431
06
Fyrirspurn frá Maríu Grétarsdóttur bæjarfulltrúa um fjármál Stjörnunnar, dags. 17.06.13.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að svara fyrirspurninni.
Málsnúmer 1306334
07
Bréf umhverfisnefndar varðandi Elliðavatnsveg, dags. 20.06.13.
Bæjarráð vísar bréfinu til skoðunar tækni- og umhverfissviðs.
Málsnúmer 2010010083
08
Bréf umhverfisnefndar varðandi aðgerðaráætlun gegn hávaða, dags. 20.07.13.
Lagt fram.
Málsnúmer 1302243
09
Bréf skipulagsstjóra varðandi endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar, dags. 21.06.13.
Bæjarstjóri lagði fram sameiginlegt bréf þeirra þriggja aðila, (Kanon/VSÓ Ráðgjöf, Teiknistofa arkitekta - Gylfi Guðjónsson og félagar/Landmótun/Efla og Gláma -Kim/Landslag), sem valdir voru i forvali til að gera tilboð í vinnu við endurskoðun aðalskipulags, dags. 24. júní 2013.$line$Í bréfinu er gerð athugasemd við þá málsmeðferð sem felst í tillögu skipulagsnefndar um að endurskoða niðurstöðu forvals og bjóða öllum níu þátttakendum í forvali að gera tilboð í vinnu við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar.$line$$line$Bæjarráð frestar afgreiðslu á tillögu skipulagsnefndar.
Málsnúmer 1305510
10
Bréf skipulagsstjóra varðandi Urriðaholt, vesturhluti, deiliskipulagsbreyting vegna Urriðaholtsskóla, dags. 21.06.13.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1306396
11
Bréf skipulagsstjóra varðandi Flataskóla, umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna leikskóla, dags. 21.06.13.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1306387
12
Bréf skipulagsstjóra varðandi umsókn um deiliskipulagsbreytingu vegna Engimýri 2, dags. 21.06.13.
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Ásgarðs samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1305130
13
Bréf skipulagsstjóra varðandi breytingu á deiliskipulagi Kaplakrika, dags. 21.06.13.
Lagt fram bréf skipulagsnefndar þar sem eftirfarandi athugasemdir eru gerðar við skipulagslýsingu vegna fyrirhugaðra breytinga á deiliskipulagi Kaplakrika (íþróttasvæði).$line$Í ljós kemur að gert er ráð fyrir að byggingarmagn á íþróttasvæðinu geti orðið 32.456 m2 en er í dag 15.950 m2 með tilheyrandi aukningu umferðar og álagi á nánasta umhverfi sitt.$line$Skipulagsnefnd telur að lýsingin þurfi betur að greina frá því með hvaða hætti skal kynna tillögurnar og hafa samráð við hagsmunaaðila í næsta nágrenni s.s. rekstraraðila í Molduhrauni.$line$Skipulagsnefnd lýsir yfir áhyggjum af auknu umferðarálagi tengdu fyrirhugaðri uppbyggingu.$line$Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við lýsinguna en bendir á ákvæði skipulagslaga um að kynna skulu tillöguna fyrir aðliggjandi sveitarfélagi.$line$Bæjarráð samþykkir að ofangreindum athugasemdum við skipulagslýsinguna verði komið á framfæri við bæjaryfirvöld í Hafnarfirði.
Málsnúmer 1302052
14
Samningur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Bæjarráð samþykkir að gerður verði tímabundinn samningur um ferðaþjónustu fatlaðs fólks.
Málsnúmer 1302155
15
Framkvæmdir við bílastæði við Garðatorg - kostnaðaráætlun.
Bæjarráð samþykkir að framkæmdir við bílastæði við Garðatorg verði boðnar út í opnu útboð.$line$Bæjarráð felur bæjarstjóra að kynna framkvæmdirnar fyrir íbúum að Garðatorgi 7.
Málsnúmer 1306469
16
Drög að samkomulagi við OR um rekstur dælustöðva fráveitu á Arnarnesi.
Bæjarráð samþykkir samninginn fyrir sitt leyti.