Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi vesturhluta Urriðaholts, Urriðaholtsskóli, dags. 23.01.14.
Ferill máls
Bæjarráð Garðabæjar
01
4. fundur
Bæjarráð samþykkir með vísan til 3. ml. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga að tillagan verði send til meðferðar skipulagsstofnunar enda voru ekki gerðar neinar athugasemdir við tillöguna í athugasemdafresti auglýsingar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
02
2. fundur
Lögð fram tillaga að breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts að lokinni kynningu skv. 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga sem gerir ráð fyrir að grunnskólalóðin Vörðuvegur 1 og leikskólalóðin Vörðuvegur 3 sameinist í eina lóð Vörðuveg 1-3 og að gönguleið sem liggur á milli lóða verði felld út. Tillagan var íkynningu frá 28.nóv 2013 til 9.janúar 2014. Engar athugasemdir bárust. Í samræmi við 3.mgr. 43.gr. sömu laga er tillagan því samþykkt.
Bæjarráð Garðabæjar
03
26. fundur
Bæjarráð samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa kynningu á tillögu að breytingu á deiliskipulagi vesturhluta Urriðaholts samkvæmt 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
8. fundur

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags vesturhluta Urriðaholts. Tillagan nær til lóða grunnskóla og leikskóla á suðurhluta háholtsins. Tillagan gerir ráð fyrir því að lóðirnar sameinist, að byggingarreitir sameinist og að gönguleið sem liggur milli lóðanna verði felld út. Ástæða tillögunnar er sú að niðurstaða vinnu stýrihóps Garðabæjar um uppbyggingu skóla í Urriðaholti var sú að sameina skyldi stofnanirnar í eina byggingu.

Þar sem að allar meginforsendur tillögunnar liggja fyrir í aðalskipulagi Garðabæjar og rammaskipulagi Urriðaholts er fallið frá forkynningu í samræmi við 4.mgr. 40.gr. sömu laga.

Skipulagsnefnd leggur til að við skilmála eftir breytingu bætist við setningin: "Gert er ráð fyrir heildstæðum grunnskóla frá 1.-10. bekkjar."

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.43.gr. Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindri breytingu.

Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
7. fundur

Fulltrúi Urriðaholts greinir frá stöðu mála varðandi skólalóð á Urriðaholti og hugsanlegar deiliskipulagsbreytingar því tengdar. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.