7. fundur
7. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
30.05.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Stefán Snær Konráðsson - formaður
- Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
- Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
- Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
- Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
- Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1210444
01
Fundargerð síðasta fundar

Fundargerð síðasta fundar sem haldinn var 23.maí sl lögð fram. Engar athugasemdir.

Málsnúmer 1302243
02
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Bæjarstjórn auglýsti þann 10.maí síðastliðinn eftir ráðgjöfum sem áhuga hafa á því að taka að sér gerð aðalskipualags hins nýja sameinaða sveitarfélags. Tekið var fram að æskilegt væri að ráðgjafar mynduðu með sér teymi fagaðila sem spanna margvísleg viðfangsefni aðalskipulagsáætlana. Einnig var tekið fram að við val á ráðgjöfum yrði lögð áhersla á að viðkomandi hafi víðtæka reynslu af mótun aðalskipulagsáætlana, umhverfismati áætlana og skipulagsmála almennt. Í forvali verða þrjú til fimm ráðgjafateymi valin og þeim gefin kostur á að kynna sig og nálgun sína á verkefnið. Að lokinni þeirri kynningu verður eitt ráðgjafateymi valið.

9 teymi sendu inn umssókn.

Gylfi Guðjónsson og félagar/Landmótun / Efla

Hornsteinar/Landlínur/Mannvit

Arkís/Landark/Hnit

Gláma-Kím/Landslag

Þverá/Kjartan Mogensen/Verkís

Yrki/Vist og vera/Landráð/Mannvit/Arkitektur.is/Teiknilist

Kanon arkitektar/VSÓ-ráðgjöf

Guðni Pálsson/Á stofunni/ Auður Sveinsdóttir

Alta/Jvantspijker/Verkís

Skipulagsstjóri kynnti niðurstöðu mats á umsækjendum út frá þeim áherslum sem fram komu í auglýsingu. Fram kom að auk mats hjá tækni-og umhverfissviði var leitað til þriggja utanaðkomandi fagaðila sem skiluðu óháðu mati. Í ljósi niðurstöðu þess ferlis leggur skipulagsstjóri til að eftirfarandi þrjú teymi verði valin til að taka þátt í áframhaldandi ferli. Þau eru: Gylfi Guðjónsson og félagar/Landmótun/ Efla, Gláma-Kím/Landslag og Kanon arkitektar/VSÓ-ráðgjöf.

Skipulagsnefnd samþykkir tillögu skipulagsstjóra.

Skipulagsstjóri kynnti forsögn að formi kynningarfunda sem verða þann 20.júní með skipulagsnefnd og 21.júní með embættismönnum Garðabæjar.

Skipulagsnefnd þakkar öllum þeim sem sýnt hafa áhuga á að taka að sér gerð aðalskipulags hins nýja sameinaða sveitarfélags.

Málsnúmer 1301213
03
Breyting á dsk Ása og Grunda Arnarnesvogur FEB

Skipulagsstjóri kynnti drög að tillögu að raðhúsabyggð við Sjávargrund hjá Alviðru. Gert er ráð fyrir 30 íbúðum á einni hæð, þar af verða 5 hús ætluð fötluðum.

Fyrirhuguð byggð liggur þétt að skipulögðu útivistarsvæði og leggur skipulagsnefnd áherslu á að byggðin falli vel að útivistarsvæðinu. Skipulagsnefnd felur skipulagsstjóra að fullvinna tillögu að deiliskipulagi sem byggir á kynntum drögum hvað varðar fjölda eininga og afmörkun svæðis. Vinna skal út frá því að sem minnst landsvæði fari undir byggðina og að hugað sé vel að hljóðvörnum og áhrifum þeirra á aðliggjandi byggð.

Sigríður Dís Guðjónsdóttir og Baldur Ó.Svavarsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1302201
04
Varir á Álftanesi, deilskipulag

Tillaga að deiliskipulagi Vara (Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðholtsvör og Sveinskotsvör). Lögð fram umsögn Minjastofnunar dags 28.maí sem skipulagsnefnd hefur óskað eftir. Niðurstaða umsagnarinnar er sem hér segir: "Enda þótt Sveinskot á Álftanesi njóti ekki friðunar vegna aldurs telur Minjastofnun Íslands að húsið hafi ótvírætt varðveislugildi sem vitnisburður um búsetuhætti og menningu fyrri tíðar í byggðarlaginu. Mælt er með því að húsið fái að standa og að deiliskipulagið verði endurskoðað með tilliti til þess."

Málinu vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1107044
05
Aðalskipulag Reykjavíkur 2001-2024, 2010-2030

Lagt fram erindi Borgarskipulags Reykjavíkur frá 3.maí þar sem tillaga að Aðalskipulagi Reykjavíkur 2010-2030 er forkynnt samkvæmt 2.mgr.30.gr. Skipulagslaga.

Skipuagsstjóri hefur kynnt sér tillöguna og telur ekki ástæðu til að koma með ábendingu á þessu stigi í aðalskipulagsferli. Skipulagsnefnd gerir því ekki athugasemd við tillöguna en áskilur sér allan rétt til þess að gera athugasemdir á kynningarstigi. Skipulagsstjóra falið að fylgjast vel með aðalskipulagsferlinu.

Málsnúmer 1304582
06
Víkurgata 2, breyting á dsk Urriðaholts

Fulltrúi Urriðaholts gerir grein fyrir tillögu um breytingu á deiliskipulagi Vesturhluta Urriðaholts sem nær til lóðarinnar Víkurgata 2. Einnig er gerð grein fyrir hugmyndum um breytingar á deiliskipulagi í Keldugötu og Hraungötu.

Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1305510
07
Urriðaholt, vesturhluti dsk-br Urriðaholtsskóli

Fulltrúi Urriðaholts greinir frá stöðu mála varðandi skólalóð á Urriðaholti og hugsanlegar deiliskipulagsbreytingar því tengdar. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1305509
08
Urriðaholt-Norðurhluti deiliskipulag

Fulltrúi Urrðiaholts leggur fram tillögu að deiliskipulagi Norðurhluta Urriðaholts þar sem gert er ráð fyrir 4 fjölbýlishúsum og yrði fjöldi íbúða því samtals 88-96.

Fulltrúi M-lista, Baldur Ó Svavarsson, leggur áherslu á að stærðir íbúða miði að því að bæta framboð á hentugu húsnæði fyrir ungt fólk. Skipulagsnefnd tekur undir þau sjónarmið. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.