45. fundur
45. fundur
Bæjarráð Garðabæjar
í fundarsal bæjarráðs á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
12.11.2013
Kl. 08:00 - 10:00
Um fundinn
Nefndarmenn
- Erling Ásgeirsson - aðalmaður
- Steinþór Einarsson - aðalmaður
- Páll Jóhann Hilmarsson - varamaður
- María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Kristinn Guðlaugsson - áheyrnarfulltrúi
- Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
- Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
- Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri
Ritari
- Guðjón Erling Friðriksson,
Dagskrá
01
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar, 07.11.13.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að eftirtaldir aðilar skipi stýrihóp vegna vinnu við endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar. Stefán Snær Konráðsson, bæjarfulltrúi og form. skipulagsnefndar, Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, Baldur Ólafur Svavarsson, varabæjarfulltrúi og fulltrúi í skipulagsnefnd, Arinbjörn Vilhjálmsson, skipulagsstjóri og Eysteinn Haraldsson, bæjarverkfræðingur.
02
Bréf foreldraráðs leikskólans Akra varðandi aðgengi og umferð við leikskólann, dags. 30.10.13.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til bæjarstjóra og tækni- og umhverfissviðs.
03
Bréf aðstoðarleikskólastjóra á Ökrum varðandi beiðni um styrk vegna námsferðar starfsmanna frá Ökrum, Holtskoti og Krakkakoti, dags. 04.11.13.
Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til afgreiðslu bæjarstjóra.
04
Bréf stjórnar Snorrasjóðs varðandi styrk vegna Snorraverkefnisins sumarið 2014, dags. 04.11.13.
Bæjarráð telur eigi unnt að verða við erindinu.
05
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi breytingartillögur á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga, dags. 07.11.13.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að samþykkja tillögur að breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001 - 2024 samkvæmt 2. mgr. 25. gr skipulagslaga nr. 123/2010, sbr 27. gr. s.l., vegna endurskoðunar á aðalskipulagi Reykjavíkur og aðalskipulagi Kópavogs.
06
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi deiliskipulags Garðahverfis, dags. 07.11.13.
Bæjarráð vísar tillögu skipulagsnefndar að deiliskipulagi Garðahverfis til afgreiðslu bæjarstjórnar samkvæmt 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Í athugasemdarfresti barst ein athugasemd en jafnframt bárust umsagnir frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands og siglingasviði Vegagerðarinnar. $line$Við afgreiðslu tillögunnar liggur fyrir tillaga skipulagsstjóra að greinargerð vegna athugasemda og umsagna
07
Afgreiðsla skipulagsnefndar varðandi Varir á Álftanesi, dags. 07.11.13.
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að auglýsa tillögu að deiliskipulagi Vara á Álftanesi samkvæmt 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
08
Bréf Mannvirkjastofnunar varðandi gæðastjórnunarkerfi byggingarfulltrúa, dags. 30.10.13.
Bæjarráð vísar bréfinu til meðferðar tækni- og umhverfissviðs og felur sviðinu að undirbúa innleiðingu á gæðastjórnunarkerfi fyrir byggingarfulltrúa samkvæmt lögum um mannvirki nr. 160/2011.
09
Bréf velferðarráðuneytisins varðandi rekstur sjúkraflutninga á höfuðborgarsvæðinu, dags. 31.10.13.
Í bréfinu er lýst afstöðu ráðuneytisins vegna bréfs stjórnar Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins varðandi fjárveitingar ríkisins til sjúkraflutninga en af hálfu stjórnar SHS hefur verið gerð krafa um leiðréttingu fjárveitinga og í því sambandi vísað til samkomulags aðila þar um frá því í vor.
10
Bréf RannUng varðandi styrk vegna útgáfu rits, dags. 28.10.13.
Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árið 2014.
11
Afgreiðslur byggingarfulltrúa tímabilið 01.11. - 08.11.2013.
Bæjarráð samþykkir afgreiðslur byggingarfulltrúa á umsóknum um byggingarleyfi fyrir tímabilið 01.11. ? 08.11.13 og verða byggingarleyfi útgefin samkvæmt 2. gr. samþykktar um afgreiðslur byggingarnefndar Garðabæjar nr. 863/2011, sbr. 13. gr. mannvirkjalaga nr. 160/2010. Um er að ræða byggingarleyfi vegna framkvæmda við Miðhraun 14.$line$$line$Á fundinum voru kynnt mótmæli þriggja eigenda sbr. bréf, dags. 17.10.2013 og þá var einnig kynnt álit Húseigendafélagsins, sbr. bréf 01.11.2013. Í álitinu kemur fram að félagið telur að um sé að ræða breytingar sem geti ekki talist verulegar og því nægjanlegt að 2/3 hluti eigenda, bæði miðað við fjölda og eignarhluta samþykki breytinguna.
12
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi frumvarp til laga um húsaleigubætur (réttur námsmanna) 72. mál, dags. 07.11.13.
Lagt fram.
13
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi tillögu til þingsályktunar um jafnt búsetuform barna sem búa á tveimur heimilum (tvöfalt lögheimili), 70. mál, dags. 07.11.13.
Lagt fram.
14
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um mótun geðheilbrigðisstefnu og aðgerðaáætlunar, 89. mál, dags. 07.11.13.
Lagt fram.
15
Bréf nefndarsviðs Alþingis varðandi þingsályktunartillögu um skráningu upplýsinga um umgengnisforeldra, 71. mál, dags. 07.11.13.
Lagt fram.
16
Bréf Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga varðandi úthlutun framlaga vegna sameiningu sveitarfélaga, dags. 06.11.13.
Lagt fram.
17
Bréf úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála varðandi kæru vegna afgreiðslu byggingarleyfis fyrir Austurtún 18 og 20, dags. 06.11.13.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að gæta hagsmuna bæjarins í málinu.
18
Lækjarfit 3 - Kauptilboð
Bæjarráð samþykkir að veita bæjarstjóra heimild til afgreiðslu málsins.
19
Bréf Gísla Holgerssonar varðandi alþjóðlegt kristilegt bænasetur á Vífilsstöðum, dags. 07.11.13.
Í bréfinu er lýst hugmynd að alþjóðlegu bænasetri og biblíuskóla á Vífilsstöðum ásamt hjúkrunaraðstöðu.$line$$line$Bæjarráð færir bréfritara þakkir fyrir olíumálverk af Vífilsstaðavatni sem fylgdi bréfinu.
20
Fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2014.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir vinnu við fjárhagsáætlun en stefnt er að því að leggja fram á næsta fundi bæjarráðs tillögur að gjaldskrám og tillögur að breytingum einstakra liða fyrir síðari umræðu um fjárhagsáætlun.