Beint í efni

4. fundur

20.03.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

4. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

20.03.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

• Stefán Snær Konráðsson - formaður
• Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
• Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
• Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
• Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
• Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
• Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
• Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
• Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
• Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

• Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1211355

01

Aðalskipulag Garðabæjar 2004-2016 breyting á opnu svæði á Arnarneshæð

Lögð fram tillaga að breytingu aðalskipulags Garðabæjar 2004-2016 sem gerir ráð fyrir því að svæðið frá Hegranesi að Æðarnesi breyti um landnotkun úr íbúða-og stofnanasvæði í svæði fyrir stofnanir og opið svæði til sérstakra nota, og að svæði frá Hegranesi að Hafnarfjarðarvegi breytist úr svæði fyrir íbúðir og þjónustustofnanir í íbúðarsvæði. Stofnstígur sem liggur um Hegranes og Súlunes flyst að Hafnarfjarðarvegi.

Tillagan hefur verið í forkynnt í samræmi við 2.mgr. 30.gr. Skipulagslaga nr.123/2010. Forkynning stóð frá 25.febrúar til 12.mars. Tillagan var aðgengileg á heimastíðu og í þjónustuveri og kynning hennar var auglýst í Fréttablaðinu og Garðapóstinum sem borin eru í hvert hús.

Lagðar fram ábendingar frá þremur aðilum. Innihald þeirra kallar ekki á breytingu á tillögunni en þeim er vísað til bæjarverkfræðings til skoðunar hvað varðar útfærslu á stofnstíg meðfram Hafnarfjarðarvegi. Ábendingum varðandi eignarréttindi á opnum svæðum vísað til bæjarritara.

Skipulagsnefnd samþykkir að heimila kynningu tillögunnar í samræmi við 31.gr. Skipulagslaga að undangenginni athugun Skipulagsstofnunar sbr. 3.mgr. 30.gr. sömu laga. Tillögu að deiliskipulagi Arnarness skal kynna samhliða.

Málsnúmer 2010120061

02

Arnarnes nýtt dsk

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Arnarness dagsett í október 2012.

Skipulagsnefnd leggur til eftirfarandi breytingar á greinargerð:

Eftirfarandi ákvæði skal setja í grein  4.8.

"Skilgreining brúttóflatarmáls samkvæmt íslenskum staðli ÍST 50. Rými undir þakskyggnum allt að 2 metrum að dýpt skal ekki reikna sem B-rými"

Þar sem byggingarregulugerðar og skipulgsreglugerðar er getið skal því breyta til samræmis við nýjar reglugerðir.

Í kafla 4.6. skal fella út tilvísun í reglugerðir. Í annari málsgrein skal standa:

"Á lóðum einbýlishúsa skal koma fyrir þremur bílastæðum við hvert hús"

Að öðru leyti skal tillagan vera óbreytt frá áður samþykktri tillögu.

Skipulagsnefnd heimilar kynningu tillögunnar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga og skal hún kynnt samhliða tillögu að breytingu aðalskipulags sem nær til skipulagssvæðisins. Þar sem að tillagan hlaut ferli skv. 1. og 2. og 3. mgr. 40.gr. er sú málsmeðferð látin standa fyrir framlagða tillögu ásamt lýsing aðalskipulagsbreytingarinnar.

Málsnúmer 1302203

03

Kirkjubrú 1, dsk

Lögð fram öðru sinni tillaga að deiliskipulagi fyrir Kirkjubrú 1 og tillaga að breytingu deiliskipulags Kirkjubúar og deiliskipulags Brekku.

Afgreiðslu málsins frestað.

Málsnúmer 1302201

04

Varir á Álftanesi, deilskipulag

Lögð fram öðru sinni tillaga að deiliskipulagi fyrir Varir.

Afgreiðslu málsins frestað.

Málsnúmer 1302202

05

Hvoll, dsk breyting, athafnalóð (samhl ask br)

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu deiliskipulags.

Afgreiðslu málsins frestað.

Málsnúmer 1302401

06

Útikennsla - útiskýli á Álftanesi

Erindi Álftanesskóla frá 5.nóvember 2012 ásamt minnisblaði VSÓ dags 6.desember 2012 lagt fram. Í erindinu er óskað eftir heimild til þess að reisa útikennslu-útiskýli við Kasthúsatjörn, Hlið og Lamhús. Ekki er getið um nákvæma stærð eða hæð útiskýlanna samkvæmt tillögu og á meðfylgjandi skissu er teiknað upp mannvirki sem gæti allt eins verið útiskilti fremur en skýli. Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1303137

07

Faxatún 21 dsk-br Silfurtún

Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi Silfurtúns sem gerir ráð fyrir stækkun byggingarreits vegna yfirbyggingar á bílastæði, opins bílskýlis. Samþykki nágranna liggur fyrir. Málinu vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.

Málsnúmer 1301213

08

Breyting á dsk Ása og Grunda Arnarnesvogur FEB

Skipulagsstjóri kynnti hugmydir um útfærslu byggðar 1.hæðar raðhúsa á opnu svæði norðan og austan við Sjávargrund.