Beint í efni

16. fundur

07.11.2013
Skipulagsnefnd Garðabæjar

16. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í miðrými 3. hæð á bæjarskrifstofum Garðabæjar við Garðatorg

07.11.2013

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Stefán Snær Konráðsson - formaður
  • Eiríkur Sigurjón Svavarsson - aðalmaður
  • Sigríður Dís Guðjónsdóttir - aðalmaður
  • Skúli Eggert Þórðarson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - aðalmaður
  • Guðmundur Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Agnar W Ástráðsson - byggingarfulltrúi
  • Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1302243

01

Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.

Formaður lagði til að skipulaður verði stýrihópur vegna gerðar aðalskipulags og í honum sitji: Stefán Snær Konráðsson formaður stýrihópsins, Gunnar Einarsson bæjarstjóri varaformaður, Baldur Svavarsson úr skipulagsnefnd, Arinbjörn VIlhjálmsson skipulagsstjória og Eysteinn Haraldsson bæjarverkfræðingur. Markmið með skipan stýrihópsins er að halda utan um vinnu við gerð aðalskipulags á milli funda skipulagsnefndar sem hefur yfirumsjón með verkinu. Tillagan samþykkt. Ennfremur leggur formaður til að skipulagsnefnd hittist á næstunni ásamt skipulagsráðgjöfum og stýri hóp og leggi línur um tilhögun vinnunnar og ræði viðfangsefnið frá grunni.

Málsnúmer 1305618

02

Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.

Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynnti tillögur að deiliskipulagi sem nær til Vífilsstaðavegar milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar og Bæjarbrautar milli Vífilsstaðavegar og Hofsstaðabrautar. Umræður urðu um áhrif tillögunnar á flæði umferðar og öryggismál.Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 2008120065

03

Garðahverfi, deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Garðahverfis sem var kynnt að nýju með breytingum í kjölfar athugasemda Skipulagsstofnunar. Tillagan var í kynningu14.ágúst til 25.september sl. Eitt erindi barst með athugasemd sem var samhljóða athugasemd sem barst við fyrri kynningu. Umsagnir frá Umhverfisstofnun, Minjastofnun Íslands og siglingasviðs Vegagerðarinnar lagðar fram. Lögð fram tillaga skipulagsstjóra að greinargerð vegna athugasemdar og umsagna.4 af 5 nefndarmeðlimum samþykkja kynnta tillögu að deiliskipulag Garðahverfis á Álftanesi í samræmi við 3.mgr. 41.gr. Skipulagslaga að gerðum þeim lagfæringum á texta sem fram koma í umsögn Minjastofnunar Íslands. Við gildistöku deiliskipualgsins fellur úr gildi deiliskipulag Garðaholts- samkomuhúss, sem samþykkt var í bæjarstjórn 5.október 2000 (B-deild nr.749/2000)Baldur Ó Svavarsson fulltrúi Fólksins í bænum lagði fram eftirfarandi bókun: "Mótmæli enn og aftur fráleitri meðferð á landi og fjármunum bæjarins og framtíðarmöguleikum á heildstæðu skipulagi á Garðaholti"

Málsnúmer 1302201

04

Varir á Álftanesi, deilskipulag

Lögð fram tillaga unnin af Guðna Pálssyni arkitekt að deiliskipulagi Vara (Bjarnastaðavör, Litlubæjarvör, Sviðsholtsvör og Sveinskotsvör) dags. 17.maí 2013. Gert er ráð fyrir 15 nýjum einbýlishúsum á Sveinskotsreit en tillagan nær einnig til eldri byggðar þar sem fyrir eru 33 einbýlishús. Alls verða því 48 einbýlishús á svæðinu, öll á efri hæð. Skipulagsstjóri gerir grein fyrir samráðsfundi með landeigenda Miðengi og hugmynda um varðveislu á elsta hluta Sveinskots. Landeigandi lýsir sig andvígan þeirri hugmynd.Forkynning hefur farið fram. Tillagan kallar ekki á breytingu aðalskipulags.Skipulagsnefnd samþykkir að vísa tillögunni óbreyttri til kynningar í samræmi við 1.mgr.41.gr. Skipulagslaga.

Málsnúmer 1310283

05

Strikið 1-3, breyting á dsk Sjálands

Lagðar fram hugmyndir Guðumundar Gunnlaugssonar arkitekts að breytingu á deiliskipulagi Sjálands sem nær til lóðarinnar Strikið 1-3. Lögð fram umsögn Bjarnar Ólafs deiliskipulagshöfundar um tillöguna. Skipulagsnefnd telur að skoða þurfi vel áhrif aukins byggingarmagns samkæmt hugmyndunum. Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.

Málsnúmer 1307600

06

Friðlýsing Brennisteinsfjalla

Erindi umhverfisstofnunar til Stjórnar Reykjanesfólkvangs lagt fram til kynningar þar sem fram kemur að stofnunin hafi hafið undirbúining að friðlýsingu Brennisteinsfjalla sem eru innan fólkvangsins.

Málsnúmer 1304705

07

Breytingartillögur á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins 2001-2024, vegna endurskoðunar aðalskipulags Reykjavíkur og annarra sveitarfélaga

Lagðar fram tillögur að 15 breytingum á svæðisskipulagi höfuðborgarsvæðisins sem allar tengjast endurskoðun aðalskipulags í Reykjavík og Kópavogi. Lagt fram erindi frá svæðisskipulagsstjóra f.h. stýrihóps dags. 21.október sl þar sem gert er grein fyrir samþykkt svæðisskipulagsnefndar á tillögunum með lítilsháttar breytingum í kjölfar athugasemda og umfjöllunar fagráðs. Svæðisskipulagsnefnd lagði til að tillögurnar yrðu lagðar fram í hlutaðeigandi sveitarstjórnum til samþykktar.Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við ferli málsins og efnislega niðurstöður og samþykkir tillögurnar í samræmi við 25.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.