Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
01
7. (847). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vífilsstaðaveg og Bæjarbraut samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Bæjarráð Garðabæjar
02
16. (1877). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um nýtt deiliskipulag fyrir Vífilsstaðaveg og Bæjarbraut samkvæmt 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Tillagan var auglýst. Athugasemdir hafa verið yfirfarnar og liggja fyrir tillögur að svörum.
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að svörum við innsendum athugasemdum.
Samþykkt tillaga skal send Skipulagsstofnun samkvæmt 1. mgr. 42. gr. skipulagslaga og þá skal niðurstaða bæjarstjórnar auglýst, sbr. 3. mgr. 41. gr. skipulagslaga. Jafnframt skal senda þeim aðilum sem athugasemdir gerðu umsögn um þær.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
03
6. fundur
Lagðar fram að lokinni auglýsingu tillaga að deiliskipulagi Hafnarfjarðarvegar sem gerir ráð fyrir bráðabirgðalagfæringum á stofnbrautinni ásamt tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem gerir ráð fyrir varanlegu útfærslum á umferðarkerfi. Lagðar fram tillögur að breytingum á deiliskipulagi Hörgatúns 2, deiliskipulagi Ásgarðs, deiliskipulagi Miðbæjar neðsta svæðis, deiliskipulagi Hraunsholts eystra og deiliskipulagi Ása og Grunda sem tengjast allar endurbótum umferðarkerfisins, bæði varanlegum og til bráðabirgða.
Lagðar fram athugasemdir og umsagnir sem borist hafa.
Lögð fram greinargerð með tillögum að svörum við athugasemdum.
Athugasemdir kalla ekki á breytingar á tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Skipulagsnefnd beinir því til gatnahönnuða að við hönnun hringtorgs skuli eftir kostum reyna að minnka umfang hringtorgsins.
Skipulagsnefnd samþykkir tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
04
5. fundur
Lagðar fram tillögur að deiliskipulags Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
5 erindi með athugasemdum og 3 umsagnir hafa borist. Athugasemdir og umsagnir lagðar fram.
Framlögðuum gögnum vísað til úrvinnslu hjá tækni-og umhverfissviði og skipulagsráðgjöfum.
Bæjarstjórn Garðabæjar
05
3. (843). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Bæjarráð Garðabæjar
06
7. (1868). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að auglýsa samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar
Skipulagsnefnd Garðabæjar
07
2. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar að lokinni forkynningu. Frestur til að skila inn ábendingum var til 28. janúar. Ein ábending barst sem snýr að útfærslu á hringtorgi við Litlatún/Flataskóla.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til auglýsingar í samræmi við 1. mgr. 41. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Skoða skal sérstaklega útfærslu á hringtorginu á auglýsingartíma og skoða hvort aðrir valkostir komi til greina.
Bæjarstjórn Garðabæjar
08
1. (841).. fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Bæjarráð Garðabæjar
09
2. (1863). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að kynna samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulaglaga 123/2010 tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Tillagan skal kynnt á almennum íbúafundi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
10
16. fundur
Lögð fram tilllaga að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. M.a. verður gert ráð fyrir hringtorgi við gatnamót Vífilsstaðavegar og Litlatúns/Flataskóla sem er liður útfærslu á bráðabirgðaumbótum gatnamóta við Hafnarfjarðarveg. Tillögunni vísað til forkynningar í samræmi við 3.mgr 40.gr.skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
11
19. (821). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna hringtorgs við Litlatún. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalskipulagi.
Bæjarráð Garðabæjar
12
47. (1813). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að fram fari kynning samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 á tillögu að breytingu á deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar vegna hringtorgs við Litlatún. Fallið er frá gerð lýsingar samkvæmt heimild í 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga enda liggja allar meginforsendur deiliskipulagsins fyrir í aðalsskipulagi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
13
15. fundur
Lögð fram tillaga að deiliskipulagiVífilsstaðavegar og Bæjarbrautar. Útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Litlatúns/Flataskóla hefur verið breytt í samræmi við tillögur Vegagarðarinnar. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til forkynningar í samræmi við 3.mgr.40.gr.Skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
14
14. fundur
Tillaga að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar hefur þegar verið forkynnt og heimild hefur verið veitt til þess að auglýsa tillöguna. Vegna þeirra tillagna sem nú liggja fyrir frá Vegagerðinni um endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar eru lagðar til óverulegar breytingar á útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar/Litlatúns/Flataskóla.
Vísað til skoðunar á tækni-og umhverfissviði.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
15
1. fundur
Ljóst að leggja þarf fram breytingartillögu á deiliskipulaginu til samræmis við tillögur Vegagerðarinnar um útfærslu hringtorgs á gatnamótum Vífilsstaðavegar og Litlatúns og tengingar að Flataskóla.
Bæjarstjórn Garðabæjar
16
14. (797). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Bæjarráð Garðabæjar
17
36. (1753). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar ð auglýsa til kynningar samkvæmt 1. mgr. 31. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, sbr. 1. mgr. 41. gr. sömu laga tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
18
12. fundur
Tillaga að deiliskipulagi Vífilstaðavegar og Bæjarbrautar sem unnin hefur verið af Landslagi ehf lögð fram. Þráinn Hauksson fór yfir tillöguna í kjölfar forkynningar fyrr á árinu. Nokkur atriði sem komu fram á íbúafundi hafa haft áhrif á tillöguna.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar samkvæmt 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.
Bæjarstjórn Garðabæjar
20
15. (779). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar vegna tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar samkvæmt heimild í 2. ml. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
22
39. (1707). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar um að fallið verði frá gerð skipulagslýsingar vegna tillögu að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar samkvæmt heimild í 2. ml. 2. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Jafnframt samþykkir bæjarráð að leggja til við bæjarstjórn að tillagan verði kynnt íbúum og öðrum hagsmunaðilum samkvæmt 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
23
17. fundur
Þráinn Hauksson hjá Landslagi ehf kynnti tillögur að deiliskipulagi Vífilsstaðavegar og Bæjarbrautar sem unnar voru á vegum síðustu skipulagsnefndar. Skipulagsstjóra og skipulagsráðgjafa falið að fullvinna tillöguna.$line$Auður Hallgrímsdóttir lagði fram eftirfarandi bókun:$line$"Garðabær er undir miklu álagi frá bílaumferð sem sífellt eykst. Tvær stórar stofnbrautir Hafnarfjarðarvegur og Reykjanesbraut liggja þvert í gegnum bæinn og þrjár stofnbrautir Arnarnesvegur, Fjarðarhraunsvegur og Vífilsstaðarvegur liggja langsöm í gegnum bæinn og meðfram bænum. Bæjaryfirvöld hafa ekki undan að bregðast við umferðarhávaða með því að reisa hljóðmanir og hljóðveggi sem gera bæinn sífelt meira óaðlaðandi í útliti. Erlendis færist í vöxt að götum er breytt í opin græn svæði til að stemma stigu við aukinni umferð og álagi sem því fylgir. Tillaga fulltrúa Bjartrar framtíðar er að bæjaryfirvöld skoði möguleika að loka Vífilsstaðavegi frá gatnamótum við innkeyrslu á Garðatorg að gatnamótum við Karlabraut og Brúarflöt og geri þetta svæði að bæjargarði. "
Skipulagsnefnd Garðabæjar
24
16. fundur
Þráinn Hauksson landlagsarkitekt kynnti tillögur að deiliskipulagi sem nær til Vífilsstaðavegar milli Hafnarfjarðarvegar og Reykjanesbrautar og Bæjarbrautar milli Vífilsstaðavegar og Hofsstaðabrautar. Umræður urðu um áhrif tillögunnar á flæði umferðar og öryggismál.Vísað til frekari skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.