Beint í efni

12. fundur

15.09.2016
Skipulagsnefnd Garðabæjar

12. fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg

15.09.2016

Kl. 08:00 - 10:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Sigurður Guðmundsson - formaður
  • Hallfríður Erla Guðjónsdóttir - varamaður
  • Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
  • Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
  • Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur

Ritari

  • Arinbjörn Vilhjálmsson

Dagskrá

Málsnúmer 1305618

01

Vífilsstaðavegur og Bæjarbraut, deiliskipulag.

Tillaga að deiliskipulagi Vífilstaðavegar og Bæjarbrautar sem unnin hefur verið af Landslagi ehf lögð fram. Þráinn Hauksson fór yfir tillöguna í kjölfar forkynningar fyrr á árinu. Nokkur atriði sem komu fram á íbúafundi hafa haft áhrif á tillöguna.

Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar samkvæmt 1.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1405177

02

Búðir, Ásbúð og Holtsbúð, deiliskipulag.

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Búða, Ásbúð/Holtsbúð að lokinni kynningu sem fór fram 13.júní til 9.september. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr. 41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1507165

03

Urriðaholt - Norðurhluti 3 (deiliskipulag)

Lögð fram tillaga að deiliskipulagi Urriðaholts Norðurhluta 3.áfanga að lokinni kynningu sem fór fram frá 13.júní til 9.september. Forkynning tillögnnar fór fram frá 21.mars til 11.apríl. Engar athugasemdir bárust.

Lögð fram beiðni deiliskipulagshöfundar um smávægilegar breytingar á tillögunni varðandi ákvæði um rafmagnsskápa,mengað ofanvatn og staðsetningu spennistöðvar.

Skipulagsnefnd samþykkir deiliskipulagið samkvæmt 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010 með ofangreindum breytingum sem eru óverulegar og kalla ekki á endurauglýsingu.

Málsnúmer 1604158

04

Vesturhraun 5 - Umsókn um dsk breytingu

Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Molduhrauns sem nær til lóðarinnar Vesturhraun 5 að lokinni kynningu sem fór fram frá 13.júní til 9.september. Engar athugasemdir bárust.

Skipulagsnefnd samþykkir tillöguna í samræmi við 3.mgr.41.gr.Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1410364

05

Uppbygging byggðar á lóð Hrauntungu við Álftanesveg

Lagt fram erindi lóðarhafa um uppbyggingu á landi Hrauntungu. Gildandi deiliskipulag gerir ekki ráð fyrir því að byggt verði á svæðinu og var við þá ákvörðun m.a. verið að taka tillit til vilja fyrri lóðarhafa sem hafði lagt mikla eljusemi í ræktun landsins þannig að óbyggt er það til yndis og ánægju komandi kynslóða. Þó að Garðahraunshverfið sé skilgreint í aðalskipulagi sem íbúðarbyggð þá eru óbyggð svæði inni í byggðinni mikilvægur þáttur í gæðum byggðarinnar. Skipulagsnefnd mælir með því að svæðið verði óbyggt að svo stöddu að undanskildu því íbúðarhúsi sem þar stendur.

Málsnúmer 1608312

06

Skilti og merkingar. Stefnumótun

Skipulagsstjóri gerði grein fyrir drögum að stefnumótun sem voru unnin fyrir skipulagsnefnd árið 2009 og vísað til gerðar aðalskipulags. Var annarsvegar um að ræða tillaga að ákvæðum í aðalskipulagi og hinsvegar tillaga að samþykkta bæjarstjórnar. Skipulagsnefnd vísar drögunum til aðalskipulagsráðgjafa.

Málsnúmer 1608482

07

Hliðsnes 2* - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á hesthúsi á Hliðsnesi 2. Umsókninni vísað til grenndarkynningar í samræami við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr. 1234/2010þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi á Hliðsnesi. Grenndarkynna skal öllum lóðarhöfu og íbúum á Hliðsnesi.

Málsnúmer 1603167

08

Unnargrund 1,3,5,7,9 -Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi þar sem að klæðningar á ytra byrði raðhúsa fara út yfir lóðarmörk inn á aðliggjandi lóð sem nemur 12 cm.

Skipulagsnefnd samþykkir að um svo óverulegt frávik sé að ræða sem ekki varðar neina grenndarhagsmuni og þarf því ekki að koma til breytinga á deiliskipulagi sbr. 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Við útgáfu á lóðarblöðum skal geta um frávik sem kvöð

Málsnúmer 1605408

09

Mávanes 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir bílageymslu sem fer út 1,92 m fyrir byggingarreit í átt að lóðarmörkum. Lagðir fram uppdrættir sem sýna að eigendur aðliggjandi húsa gera ekki athugasemd við tillöguna.

Meirihluti skipulagsnefndar vísar umsókninni til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar þar sem að samþykki eigenda húsa sem grenndarkynning nær til liggur fyrir sbr. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Súsanna Vilhálmsdóttir og Gísli Geir Jónsson sátu hjá við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1608436

10

Mávanes 21 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á húseigninni sem eru í samræmi við deiliskipulag Arnarness. Tillögunni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Þar sem að breytingarnar varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður sbr.2.msl. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1607180

11

Hegranes 28 - Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi. Umsóknin er í samræmi við samþykkt deiliskipulag Arnarness sem hefur vetið fellt úr gildi. Tillögunni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr. Þar sem að breytingarnar varðar ekki hagsmuni annara en umsækjanda og sveitarfélagsins er grenndarkynning felld niður sbr.2.msl. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1607249

12

Holtsbúð 10 Umsókn um byggingarleyfi

Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir viðbyggingu. Tillaga að breytingu deiliskipulags var grenndarkynnt án athugsemda árið 2008. Þar sem deiliskipulagið telst ekki formlega gilt ber að afgreiða umsókn um byggingarleyfi sem umsókn um framkvæmdir í byggðu hverfi þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir.

Skipulagsnefnd samþykkir að vísa umsókninni til grenndarkynningar sbr.1mgr.44.gr.Skipulagslaga nr.123/2010. Skipulagsstjóra er heimilt að stytta tíma grenndarkynningar ef að samþykki eigenda húsa sem grenndarkynning nær til liggur fyrir sbr. 3.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr.123/2010.

Málsnúmer 1606266

13

Holtsvegur 1, Lynggata 1 og 3, dsk br

Lögð fram öðru sinni tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Norðurhluta 2 sem gerir ráð fyrir því að íbúðum á lóðinni Holtsvegur 1 fjölgi úr 50 í 55. Breytingin nær til hússins Lynggata 1 og 3. Lögð fram umsögn deiliskipulagshöfunda um tillöguna og er hún jákvæð. Skipulagsnefnd vísar tillögunni til kynningar í samræmi við 1.mgr. 43.gr. Skipulagslaga.