Hliðsnes 2* - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
18. (801). fundur
Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi að Hliðsnesi þar sem ekki er verið að breyta notkun hússins til íbúðar eða atvinnustarfsemi. María Grétarsdóttir situr hjá.
Bæjarráð Garðabæjar
04
45. (1762). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að gera ekki athugasemd við útgáfu á byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi þar sem ekki er verið að breyta notkun hússins til íbúðar eða atvinnustarfsemi.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
05
17. fundur
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi þar sem ekki er verið að gera ráð fyrir breytingu á notkun hússins til íbúðar eða atvinnustarfsemi.
Skipulagsstjóra falið að svara athugasemdum.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
16. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir breytingum á hesthúsi á landi Hliðsnes 2.
Lagt fram erindi meiðeigenda Hliðsness 2 þar sem athugsemdir eru gerðar við veitingu leyfisins.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Bæjarstjórn Garðabæjar
07
14. (797). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi á lóðinni Hliðsnesi 2 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Bæjarráð Garðabæjar
08
36. (1753). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að umsókn um byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi á lóðinni Hliðsnesi 2 verði grenndarkynnt samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
09
12. fundur
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á hesthúsi á Hliðsnesi 2. Umsókninni vísað til grenndarkynningar í samræami við 1.mgr.44.gr. Skipulagslaga nr. 1234/2010þar sem að ekkert deiliskipulag er í gildi á Hliðsnesi. Grenndarkynna skal öllum lóðarhöfu og íbúum á Hliðsnesi.