16. fundur
16. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
10.11.2016
Kl. 08:00 - 9:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Guðrún Dóra Brynjólfsdóttir - aðalmaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1606034
01
Hafnarfjarðarv/Vífilsstaðav. Endurbætur gatnamóta.
Skipulagsstjóri og bæjarverkfræðingur gerðu grein fyrir stöðu málsins en unnið er að útfærslu gatnamótanna og Hafnarfjarðarvegar að Lyngási og Vífilsstaðavegar að Litlatúni á vegum Vegagerðarinna í samráði við tækni-og umhverfissvið Garðabæjar.
Skipulagsnefnd telur að útfærslan sé að þróast í rétta átt en getur ekki tekið afstöðu til umsóknar um framkvæmdaleyfi fyrr en betri útfærsla liggur fyrir sem verður vonandi á næsta fundi nefndarinnar.
Málsnúmer 1603319
02
Ásgarður, breyting á deiliskipulagi.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Ásgarðs sem gerir ráð fyrir tilfærslum æfingavalla, ljósmastra, stækkun lóðar íþróttasvæðis og breytingu á legu göngustígs meðfram húsum við Stekkjarflöt. Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn 19.maí 2016 sem deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2016.
Málsnúmer 1603320
03
Bæjargarður, breyting deiliskipulags.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Bæjargarðs sem gerir ráð fyrir íþróttavelli og sandblakvöllum við húsið Garð sem fær að standa samkvæmt tillögunni. Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn 19.maí 2016 sem deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2016.
Málsnúmer 1606329
04
Garðahraun. Breytingar á deiliskipulagi.
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Garðahrauns. Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
13 erindi með athugasemdum með alls 66 undirskriftum við tillöguna hafa borist og lúta þær flestar að lokun Garðahraunsvegar til vesturs.
Tillögunni vísað til skoðunar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1606461
05
Urriðaholtsstræti 10-12,dsk.br. 1. áf. Viðskiptastrætis. (Smáíbúðir)
Lögð fram tillaga að breytingu deiliskipulags Urriðaholts Viðskiptastrætis sem nær til lóðarinnar Urriðaholtsstræti 10-12. Tillagan gerir ráð fyrir því að á efri hæðum verði heimilaðar íbúðir og gert ráð fyrir allt að 36 smábíbúðum . Tillagan var í auglýsingu frá 7.september til 19.október 2016.
Engar athugasemdir bárust.
Tillagan skoðast því samþykkt í bæjarstjórn 1.september 2016 sem deiliskipulagsbreyting í samræmi við 3.mgr.41.gr. Skipulagslaga nr.123/2016.
Málsnúmer 1610143
06
Fyrirspurn eigenda Skógtjarnar um skipulag við norðanverða Skógtjörn
Erindi eigenda Skógtjarnar lagt fram. Vísað sem ábendingu til úrvinnslu við gerð aðalskipulagstillögu.
Málsnúmer 1608510
07
Beiðni AJ, EBH og IH um skiptingu einbýlishúss í tvær eignir, dags. 25.08.16. - Hörgatún 1
Lögð fram ósk eigenda hússins að Hörgatúni 1 um að það breyta einbýlishúsinu í tvíbýlishús.
Lagt fram minnisblað skipulagsstjóra vegna málsins.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Túna.
Grenndarkynna skal öllum eigendum húsa við Hörgatún og Goðatún 6a, 8, 10 12 og 14.
Málsnúmer 1610150
08
Hvannalundur 17 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lög fram tillaga að viðbyggingu við húsið Hvannalundur 17 og stækkun lóðar að Vífilsstaðavegi.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1610133
09
Sunnuflöt 28 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram fyrirspurn um útfærslu baðhúss á lóð utan byggingarreits og við lóðarmörk lóðarnniar Sunnuflöt 26.
Skipulagsnefnd er jákvæð gagnvart hugmyndinni og leggur til að sótt verði um breytingu á deiliskipulagi Flata í samræmi við tillöguna. Nefndin mælir með því að umsækjandi sé í samráði við eigendur aðliggjandi lóðar um mótun tillögunnar.
Málsnúmer 1610132
10
Breiðakur 2-8 - Fyrirspurn til skipulags og byggingarfulltrúa
Lögð fram tilllaga að deiliskipulagsbreytingu fjölbýlishúsalóðanna Breiðakur 2-4 og 6-8 sem gerir ráð fyrir því að í stað bílastæða á milli húsanna verði gert ráð fyrir bílageymslum undir húsunum með aðkomu milli húsanna. Við það fækka bílastæðum á lóð við götu úr 23 í 16.
Skipulagsnefnd metur tillöguna sem óverulega breytingu á deiliskipulagi Akra og vísar henni til grenndarkynningar. Grenndarkynna skal eigendum allra íbúða við Breiðakur.
Málsnúmer 1608482
11
Hliðsnes 2* - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu sem gerir ráð fyrir breytingum á hesthúsi á landi Hliðsnes 2.
Lagt fram erindi meiðeigenda Hliðsness 2 þar sem athugsemdir eru gerðar við veitingu leyfisins.
Vísað til frekari skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1609347
12
Blikanes 10 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum íbúðarhússins að Blikanesi 10 sem mun hafa áhrif á útlit hússins. Breytingar eru í samræmi við áður samþykkt deiliskipulag Arnarness sem hefur verið fellt úr gildi.
Tillögunni vísað til grenndarkynningar í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga. Grenndarkynna skal eigendum Blikaness 7,8,9,11 og 12 og Tjaldaness 7, 9 og 11.
Málsnúmer 1608318
13
Haukanes 22 Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn þar sem gert er ráð fyrir stækkun rýma neðanjarðar. Skipulagsnefnd fellir niður grenndarkynningu í samræmi við 2.msl.3.mgr.44.gr. Skipulagslaga þar sem að breytingin varða ekki grenndarhagsmuni.
Málsnúmer 1605408
14
Mávanes 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að lokinni grenndarkynningu í samræmi við 1.mgr.44.gr.Skipulagslaga.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við að byggingarleyfið verði veitt þar sem að engar athugasemdir hafa borist.
Málsnúmer 1605449
15
Þernunes 1 Umsókn um byggingarleyfi
Tillaga lögð fram að lokinni grenndarkynningu. Athugasemd hefur borist og hún lögð fram.
Tillögunni ásamt athugasemd vísað til skoðnar hjá tækni og umhverfissviði.
Málsnúmer 1609316
16
Ljósakur 2 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir íbúðarherbergjum í kjallara fjölbýlishússins. Ljóst að tillagan kallar á breytingu deiliskipulags. Vísað til skoðunar hjá tækni-og umhverfissviði.
Málsnúmer 1609345
17
Holtsbúð 89 -Umsókn um byggingarleyfi
Málinu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1409116
18
Holtsvegur 45 - Umsókn um byggingarleyfi
Málinu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1409117
19
Holtsvegur 47 -Umsókn um byggingarleyfi -
Málinu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1607083
20
Dyngjugata 1-3 -Umsókn um byggingarleyfi
Málinu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1512258
21
Mosagata 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Málinu frestað til næsta fundar.
Málsnúmer 1607131
22
Mosagata 5 - 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Málinu frestað til næsta fundar.