Mosagata 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Ferill máls
Bæjarstjórn Garðabæjar
03
18. (801). fundur
Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um stærðir íbúða og fjölda bílastæða að Mosagötu 1-3 þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
04
45. (1762). fundur
Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um stærðir íbúða og fjölda bílastæða, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.
Skipulagsnefnd Garðabæjar
06
17. fundur
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að fjölbýlishúsi á lóðinni við Mosagötu 1-3 þar sem vikið er frá ákvæðum um að hafa fjórar íbúðir undir 80m2 en það er tilkomið vegna aðstæðna í kjallara sem hafa þau áhrif að geymslur verða rúmgóðar. Þá leiðir af stærðum íbúða að vikið er frá ákvæðum um fjölda bílastæða.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Bæjarráð Garðabæjar
08
43. (1760). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dalhúsum ehf., kt. 541204-4830 leyfi til að breyta bílskýlum í bílskúra á lóðinni við Mosagötu 1-3
Baldur Ó. Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð Garðabæjar
09
9. (1726). fundur
Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita leyfi til byggingar fjölbýlishúss með 22 íbúðum við Mosagötu 1 ? 3.