Beint í efni

17. (800). fundur

17.11.2016
Bæjarstjórn Garðabæjar

17. (800). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

17.11.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Gunnar Einarsson - varamaður
  • Kristinn Guðlaugsson - varamaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Ingvar Arnarson - varamaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Forseti kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun sem lögð er fram í nafni allra bæjarfulltrúa.[line][line]"Bæjarstjórn Garðabæjar skorar á Alþingi að grípa inn í og endurskoða sem allra fyrst nýlegan úrskurð kjararáðs um þingfararkaup og laun æðstu ráðamanna þjóðarinnar. Bæjarstjórn telur brýnt í nafni stöðugleika að laun kjörinna fulltrúa og laun æðstu embættismanna ríkis og sveitarfélaga fylgi almennri launaþróun í landinu á hverjum tíma.[line]Bæjarstjórn samþykkir að laun kjörinna fulltrúa í Garðabæ sem tengjast þingfararkaupi og þar með ákvörðun kjararáðs, hækki ekki í samræmi við nýlegan úrskurð kjararáðs heldur haldist óbreytt að sinni og bíði umræðu á Alþingi um úrskurðinn."[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 3. nóvember 2016 er lögð fram.[line][line]Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lagði fram eftirfarandi bókun.[line][line]"Meirihluti bæjarstjórnar Garðabæjar vísar þeirri fullyrðingu á bug sem fram kemur í bókun minnihluta bæjarstjórnar á fundi 3. nóvember sl. að meirihluti skipulagsnefndar hafi breytt umhverfisskýrslu sem unnin var af óháðum aðilum og fylgir tillögu að nýju aðalskipulagi.[line]Í morgun komu þau Ólafur Árnason og Eva Dís Þórðardóttir ráðgjafar hjá EFLU á fund skipulagsnefndar þar sem þau gerðu grein fyrir þeirri vinnu sem fram hefur farið við mótun umhverfisskýrslu aðalskipulagstillögunnar. Þar kom m.a. fram að umhverfisskýrsla er lifandi skjal á meðan mótun aðalskipulagstillögunnar fer fram og að ráðgjafarnir tækju ekki þátt í því að hagræða skýrslum til þess að þóknast verkkaupa með einhverjum hætti.[line]Við mótun aðalskipulagstillögunnar hefur alltaf verið unnið samhliða með aðferðafræði umhverfismats bæði þegar tekið er tillit til heildaráhrifa og einstakra atriða. Umhverfisskýrslan í þeirri mynd sem lögð var fram á fundi skipulagsnefndar 26. september sl. hafði ekki komið áður fyrir sjónir nefndarinnar og ekki gefist tími til þess að ræða áferð hennar og útlit. Umræður sköpuðust um umræddar töflur og hvaða aðferðum væri beitt til þess að innihald skýrslunnar yrði skiljanlegt. Það er engan veginn verið að reyna að hagræða skýrslunni þegar fram koma efasemdir meirihluta skipulagsnefndar um framsetningu tákna og innihalds þar sem að ágreiningur milli meirihluta og minnihluta hefur verið uppi á borði í öllu ferlinu. [line]Varðandi tölur um fjölda nýrra íbúða á Lyngássvæði þá kemur talan 600 fram í yfirlitstöflu í kafla 3.3.2. í landnotkunarkafla í greinargerð aðalskipulagstillögunnar. Sú tala er sett fram til viðmiðunar þegar heildarfjöldi íbúða samkvæmt aðalskipulagstillögunni í heild er metinn. Í töflu um áherslur á einstaka landnotkunarreitum segir um Lyngásreitinn sem hefur þar einkennið "2.07.íb" að skipulagið geri ráð fyrir því að svæðið sé skilgreint sem þróunarsvæði þar sem stefnt sé að þéttri blandaðri byggð í tengslum við miðbæ. Nánari ákvæði verða skilgreind í rammaskipulagi. Hámarkshæð verði 5 hæðir og að deiliskipulag verði endurskoðað. [line]Eins og aðalskipulagssvæðið gerir ráð fyrir þá er svæðið þróunarsvæði þar sem frekari útfærsla er mótuð í rammaskipulagi og deiliskipulagsferli. Talan 600 getur því sveiflast upp og niður á meðan á því ferli stendur en ljóst er að stefnt sé að þéttri blandaðri byggð í tengslum við miðbæ Garðabæjar og hágæða almenningssamgönguleið um Hafnarfjarðarveg svokallaða borgarlínu.[line]Minnihlutinn lagði fram bókun við atkvæðagreiðslu á síðasta bæjarstjórnarfundi en ekki tillögu við umræðu um aðalskipulagstillöguna um að töflurnar kæmu aftur inn í skýrsluna, því er ekki hægt formsins vegna fyrr en við afgreiðslu endanlegrar aðalskipulagstillögu að setja töflurnar aftur inn með sama hætti og áður, þær eru þó aðgengilegar í fylgiskjali á vef Garðabæjar.[line]Hvorki meirihluti skipulagsnefndar né bæjarstjórnar sér ástæðu til þess að ýta til hliðar þeim áhrifum sem meiri eða minni þéttleiki byggðar hefur á umhverfið. Aðalskipulagstillagan ásamt umhverfisskýrslu er ennþá í mótun og í framhaldi af þeim ábendingum og umræðu sem fram hefur farið í forkynningu verður lokið við gerð tillögunnar. Það er von meirihlutans að bæjarstjórn geti orðið sammála um aðferðafræðina sem endanleg umhverfisskýrsla og aðalskipulagstillaga taka mið af þó svo að ágreiningur um ýmis atriði hljóti alltaf að vera til staðar í svo mikilvægri heildaráætlun sem aðalskipulag sveitarfélags er og á að vera."[line][line]Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi framlagða bókun.[line][line]Sigurður Guðmundsson, tók til máls að nýju.[line][line]Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóðs um framlagða bókun.[line]

Dagskrá

Málsnúmer 1611007F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 8/11 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., greinargerð Nolta um úttekt á rekstri hjúkrunarheimilis. Þá ræddi Steinþór 10 tl., umsagnarbeiðni um áfengisleyfi og vakti athygli á auglýsingu Vínbúðar eftir húsnæði í Garðabæ og þeim sérstöku skilmálum sem koma fram í auglýsingunni.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 11. tl., minnisblað um leið 23 ? Álftaness.

Ingvar Arnarson, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að hvatapeningar fyrir börn á aldrinum 5-18 ára hækki úr kr. 30.000 í kr. 45.000 fyrir árið 2017.“ Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 er fjárveiting að fjárhæð kr. 69.000.000 í hvatapeninga. Með samþykkt tillögunnar má gera ráð fyrir að fjárveiting til hvatapeninga verði kr. 103.500.000 árið 2017 sem er kostnaðarauki að fjárhæð kr. 34.500.000.“

Greinargerð:

Kostnaður við þátttöku barna í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur aukist gífurlega á síðustu árum og jafnvel orðið til þess að foreldrar hafi ekki efni á að borga fyrir slíkt. Mikilvægt er að koma til móts við barnafjölskyldur og gefa börnum kost á að stunda íþrótta- og æskulýðsstarf og hvetja þau til þátttöku.

Rannsóknir og greining hefur rannsakað hvaða áhrif hreyfing hefur á líðan ungs fólks og hvaða þættir íþróttaiðkunar hafa verndandi áhrif á líf þeirra. Þær rannsóknir hafa ótvírætt sýnt fram á gagnsemi skipulagðrar hreyfingar. Þau ungmenni sem stunda skipulagðar íþróttir eru líklegri til að stunda heilbrigðan lífsstíl, líður betur andlega, neyta síður vímuefna, telja sig vera í góðu líkamlegu og andlegu jafnvægi og hafa aukna trú á sér er varðar aðra þætti í lífinu.

Nýlegar rannsóknir á íslenskum ungmennum sýna fram á að þau hreyfa sig minna en áður og kyrrsetan hefur jafnframt aukist. Ungmennin eru þar af leiðandi þrekminni en þrekið hefur minnkað um 8 ? 10%. Þau hafa þyngst sem má sjá á aukningu á líkamsþyngdarstuðlinum um 7%. Niðurstöðurnar sýna sömuleiðis að ungmennin eru bæði þyngri og þrekminni en jafnaldrar þeirra voru fyrir rúmum áratug.

Til gamans má geta að hjá Seltjarnarnesbæ var tómstundastyrkurinn hækkaður um kr. 20.000 þann 1. janúar 2015 og nemur nú kr. 50.000 á ári, á hvern iðkenda/þátttakanda.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og framlagða tillögu og lagði til að henni verði vísað til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun.

Steinþór Einarsson, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og framlagða tillögu

Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju.

Halldór Jörgensson, ræddi 13. tl., samning um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog.

Sturla Þorsteinsson ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og framlagða bókun.

Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi og auglýsingu Vínbúðar um húsnæði í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason,ræddi 8. tl., ályktun stjórnar Foreldrafélags Álftanesskóla og fulltrúa í skólaráði um húsnæðismál og 11. tl., minnisblað um leið 23 ? Álftanes.

Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju um 19. tl.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju um 19. tl. Þá ræddi Áslaug Hulda 11. tl., minnisblað um leið 23 - Álftaness.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 13. tl., samning um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog, 11. tl., minnisblað um leið 23 - Álftaness og 19.tl., fjárhagsáætlun 2017 og framlagða bókun. Þá ræddi bæjarstjóri 10 tl., umsagnarbeiðni um áfengisleyfi og auglýsingu Vínbúðar um húsnæði í Garðabæ.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók að nýju til máls um 11. tl.

Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju um 19. tl.

Kristinn Guðlaugsson, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun 2017 og framlagða bókun.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um 19. tl.

Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1611020F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 15/11 ´16.

Gunnar Einarsson, ræddi 18. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - tillögu um álagningu gjalda og gjaldskrár.

Steinþór Einarsson, ræddi 18. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 - tillögu um álagningu gjalda og gjaldskrár.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, ræddi 11. tl., áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál.

Gunnar Einarsson, ræddi 11. tl., áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál.

Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju um 11. tl.

Almar Guðmundsson, ræddi 11. tl., áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál.

Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju um 11. tl.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 11. tl., áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál.

Sturla Þorsteinsdóttir, ræddi 11. tl., áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál.

Kristinn Guðlaugsson, ræddi 11. tl., áskorun grunnskólakennara í Garðabæ um kjaramál.

Fundargerðin sem er 18 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1610027F

03

Fundargerð mannréttinda- og forvarnanefndar frá 2/11 ´16.

Ingvar Arnarson, ræddi 1. tl., forvarnaviku - kvíða og aukna skjánotkun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611015F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 10/11 ´16.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 4. tl., breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl., endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 4. tl., breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns og 1. tl., endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar.

Halldór Jörgensson, ræddi endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og almennt um samgöngumál.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 4. tl., breytingu á deiliskipulagi Garðahrauns. Þá ræddi bæjarstjóri 1. tl., endurbætur gatnamóta Hafnarfjarðarvegar og Vífilsstaðavegar og almennt um samgöngumál.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611008F

05

Fundargerð skólanefndar grunnskóla Garðabæjar frá 10/11 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611014F

06

Fundargerð stjórnar Hönnunarsafns Íslands frá 10/11 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611013F

07

Fundargerð umhverfisnefndar Garðabæjar frá 9/11 ´16.

Ingvar Arnarson, ræddi 3. tl., gerlamælingar í yfirborðsvatni og sjó á svæði Garðabæjar.

Gunnar Einarson, bæjarstjóri ræddi sama mál.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601366

08

Fundargerðir stjórnar SSH frá 24/10 og 7/11 ´16.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1601510

09

Fundargerðir svæðisskipulagsnefndar höfuðborgarsvæðisins frá 16/9 og 21/10 ´16.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1601548

10

Fundargerð samstarfsnefndar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins frá 14/11 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611019

11

Gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins bs.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins.

Málsnúmer 1605502

12

Tillaga um álagningu útsvars árið 2017

Lögð fram eftir farandi tillaga um álagningu útsvars.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2017 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2016 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1605502

13

Tillaga um álagningu fasteignagjalda árið 2017.

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu fasteignagjalda.

Fasteignaskattur skal vera 0,23% af fasteignamati íbúða og íbúðarhúsa ásamt lóðarréttindum, erfðafestulanda og jarðeigna, sbr. a-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Fasteignaskattur skal vera 1,65% af öðrum fasteignum, sem metnar eru í fasteignamati, sbr. c-lið 3. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995.

Leigugjald á íbúðarhúsalóðum Garðabæjar skal vera 0,4% af fasteignamati lóðar og er þá ekki nýtt að fullu heimild bæjarins sem er 1,0%, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Leigugjald á atvinnuhúsalóðum Garðabæjar skal vera 1,0% af fasteignamati lóðar, samkvæmt niðurstöðu í matsgerð dómkvaddra manna.

Vatnsgjald skal vera 0,11% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. heimild í reglugerð um vatnsveitur.

Aukavatnsskattur skal á árinu 2017 vera 24,9 kr/tonn m.v. BVT í desember 2016 (130,2 stig).

Á Álftanesi skal vatnsgjald vera samkvæmt gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur sem innheimtir vatnsgjald samkvæmt samningi.

Holræsa- og rotþróargjöld skulu vera 0,12% af fasteignamati húsa ásamt lóðarréttindum, sbr. samþykkt um fráveitu í Garðabæ nr. 282/2005.

Á Álftanesi skal rotþróargjald vera kr. kr. 28.800.

Sorphreinsigjald skal vera kr. 23.800 á hverja íbúð.

Taðþróargjöld í hesthúsahverfi Andvara skulu vera kr. 283.750 á hvert hús.

Fasteignaskattur og holræsagjald sem tekjulágum elli- og örorkulífeyrisþegum er gert að greiða skal lækka að teknu tilliti til viðmiðunartekna. Bæjarstjórn samþykkir að fela bæjarráði að ákvarða viðmiðunartekjur samkvæmt reglum um lækkun fasteignaskatts elli- og örorkulífeyrisþega.

Gjalddagar fasteignagjalda á árinu 2017 verða 15. janúar, 15. febrúar, 15. mars, 15. apríl 15. maí, 15. júní, 15. júlí 15. ágúst. 15. september og 15. október.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1605502

14

Tillaga um breytingu á gjaldskrám 2017.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, kvaddi sér hljóð og lagði til að afgreiðslu á gjaldskrám verði frestað til síðari umræðu og til umfjöllunar í bæjarráði.

Tillagan samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1611127

15

Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 og breytingu á viðaukum - fyrri umræða.

Sigurður Guðmundsson, kvaddi sér hljóðs og lýsti ánægju með viðauka um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra.

Bæjarstjórn samþykkir að vísa tillögu um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 og breytingu á viðaukum til síðari umræðu í bæjarstjórn.