Beint í efni

Fundargerð bæjarráðs frá 8/11 ´16.

Málsnúmer 1611007F

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

17. (800). fundur

Steinþór Einarsson, ræddi 3. tl., greinargerð Nolta um úttekt á rekstri hjúkrunarheimilis. Þá ræddi Steinþór 10 tl., umsagnarbeiðni um áfengisleyfi og vakti athygli á auglýsingu Vínbúðar eftir húsnæði í Garðabæ og þeim sérstöku skilmálum sem koma fram í auglýsingunni.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi 11. tl., minnisblað um leið 23 ? Álftaness.

Ingvar Arnarson, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og lagði fram eftirfarandi tillögu.

„Bæjarstjórn samþykkir að hvatapeningar fyrir börn á aldrinum 5-18 ára hækki úr kr. 30.000 í kr. 45.000 fyrir árið 2017.“ Í fjárhagsáætlun fyrir árið 2016 er fjárveiting að fjárhæð kr. 69.000.000 í hvatapeninga. Með samþykkt tillögunnar má gera ráð fyrir að fjárveiting til hvatapeninga verði kr. 103.500.000 árið 2017 sem er kostnaðarauki að fjárhæð kr. 34.500.000.“

Greinargerð:
Kostnaður við þátttöku barna í íþrótta- og æskulýðsstarfi hefur aukist gífurlega á síðustu árum og jafnvel orðið til þess að foreldrar hafi ekki efni á að borga fyrir slíkt. Mikilvægt er að koma til móts við barnafjölskyldur og gefa börnum kost á að stunda íþrótta- og æskulýðsstarf og hvetja þau til þátttöku.
Rannsóknir og greining hefur rannsakað hvaða áhrif hreyfing hefur á líðan ungs fólks og hvaða þættir íþróttaiðkunar hafa verndandi áhrif á líf þeirra. Þær rannsóknir hafa ótvírætt sýnt fram á gagnsemi skipulagðrar hreyfingar. Þau ungmenni sem stunda skipulagðar íþróttir eru líklegri til að stunda heilbrigðan lífsstíl, líður betur andlega, neyta síður vímuefna, telja sig vera í góðu líkamlegu og andlegu jafnvægi og hafa aukna trú á sér er varðar aðra þætti í lífinu.
Nýlegar rannsóknir á íslenskum ungmennum sýna fram á að þau hreyfa sig minna en áður og kyrrsetan hefur jafnframt aukist. Ungmennin eru þar af leiðandi þrekminni en þrekið hefur minnkað um 8 ? 10%. Þau hafa þyngst sem má sjá á aukningu á líkamsþyngdarstuðlinum um 7%. Niðurstöðurnar sýna sömuleiðis að ungmennin eru bæði þyngri og þrekminni en jafnaldrar þeirra voru fyrir rúmum áratug.
Til gamans má geta að hjá Seltjarnarnesbæ var tómstundastyrkurinn hækkaður um kr. 20.000 þann 1. janúar 2015 og nemur nú kr. 50.000 á ári, á hvern iðkenda/þátttakanda.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og framlagða tillögu og lagði til að henni verði vísað til afgreiðslu við síðari umræðu um fjárhagsáætlun.

Steinþór Einarsson, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og framlagða tillögu

Áslaug Hulda Jónsdóttir tók til máls að nýju.

Ingvar Arnarson, tók til máls að nýju.

Halldór Jörgensson, ræddi 13. tl., samning um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog.

Sturla Þorsteinsson ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017 og framlagða bókun.

Almar Guðmundsson, ræddi 10. tl., umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi og auglýsingu Vínbúðar um húsnæði í Garðabæ.

Gunnar Valur Gíslason,ræddi 8. tl., ályktun stjórnar Foreldrafélags Álftanesskóla og fulltrúa í skólaráði um húsnæðismál og 11. tl., minnisblað um leið 23 ? Álftanes.

Steinþór Einarsson, tók til máls að nýju um 19. tl.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju um 19. tl. Þá ræddi Áslaug Hulda 11. tl., minnisblað um leið 23 - Álftaness.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri ræddi 13. tl., samning um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog, 11. tl., minnisblað um leið 23 - Álftaness og 19.tl., fjárhagsáætlun 2017 og framlagða bókun. Þá ræddi bæjarstjóri 10 tl., umsagnarbeiðni um áfengisleyfi og auglýsingu Vínbúðar um húsnæði í Garðabæ.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, tók að nýju til máls um 11. tl.

Sturla Þorsteinsson, tók til máls að nýju um 19. tl.

Kristinn Guðlaugsson, ræddi 19. tl., fjárhagsáætlun 2017 og framlagða bókun.

Almar Guðmundsson, tók til máls að nýju um 19. tl.

Fundargerðin sem er 19 tl. er samþykkt samhljóða.