17. fundur
17. fundur
Skipulagsnefnd Garðabæjar
í turnherbergi 3. hæð á bæjarskrifstofunum við Garðatorg
17.11.2016
Kl. 08:00 - 09:30
Um fundinn
Nefndarmenn
- Sigurður Guðmundsson - formaður
- Lúðvík Örn Steinarsson - aðalmaður
- Hallfríður Erla Guðjónsdóttir - varamaður
- Gísli Geir Jónsson - aðalmaður
- Súsanna Björg Vilhjálmsdóttir - aðalmaður
Starfsmenn
- Arinbjörn Vilhjálmsson - skipulagsstjóri
- Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
- Anna Guðrún Gylfadóttir - byggingarfulltrúi
- Anna María Guðmundsdóttir - þjónustufulltrúi
Ritari
- Arinbjörn Vilhjálmsson
Dagskrá
Málsnúmer 1302243
01
Aðalskipulag Garðabæjar, endurskoðun.
Á fund skipulagsnefndar mættu Ólafur Árnason og Eva Dís Þórðardóttir ráðgjafar Eflu. Gerðu þau grein fyrir vinnu við gerð umhverfismatsskýrslu og fóru þau nánar yfir hvernig sú vinna þróaðist í samstarfi við skipulagsnefnd.
Málsnúmer 1611046
02
Kársnes þróunarsvæði. Deiliskipulagslýsing
Lögð fram verkefnislýsing á deiliskipulagsgerð fyrir Kársness. Í kafla 1.7. er gerð grein fyrir verðlaunatillögu nýsköpunarsamkeppni um þróun vistvænna borga, Nordic Built Cities Challenge sem fjallaði um framtíðaruppbyggingu á Kársnesi. Þar segir að í deiliskipulagsvinnunni verði horft til hugmynda úr vinningstillögunni. Sú tillaga gerði m.a. ráð fyrir brúartengingu yfir á Bessastaðanes. Ekki kemur fram hvort að hugmyndin sé í deiliskipulagvinnunni sem verkefnislýsingin fjallar um að vinna áfram með þá hugmynd.
Að öðru leyti gerir skipulagsnefnd ekki athugasemd við lýsinguna.
Málsnúmer 1601099
03
Eyvindastaðaland 179658,tillaga að íbúðarhúsum.
Skipulagsstjóri gerir grein fyrir fyrstu drögum að deiliskipulagi íbúðahúsabyggðar við Lambhúsatjörn sem unnið er að hjá Landslagi ehf.
Vísað til frekari úrvinnslu.
Málsnúmer 1610133
04
Sunnuflöt 28 - Umsókn um deiliskipulagsbreytingu
Lögð fram umsókn um deiliskipulagsbreytingu sem gerir ráð fyrir byggingarreit á lóð fyrir stækkun baðhús sem liggur að stoðvegg að lóð nr. 26. Gólfkóti yrði sá sami og í kjallara íbúðarhússins og hámarkshæð yrði 3 m.
Skipulagsnefnd vísar tillögunni til grenndarkynningar sem óverulegri breytingu á deiliskipulagi Flata en með þeim fyrirvara að áður liggi fyrir samþykki eigenda Sunnuflatar 26.
Grenndarkynning nær til aðliggjandi lóða.
Málsnúmer 1608482
05
Hliðsnes 2* - Umsókn um byggingarleyfi
Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemd við útgáfu byggingarleyfi vegna breytinga á hesthúsi þar sem ekki er verið að gera ráð fyrir breytingu á notkun hússins til íbúðar eða atvinnustarfsemi.
Skipulagsstjóra falið að svara athugasemdum.
Málsnúmer 1605449
06
Þernunes 1 Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram öðru sinni umsókn um byggingarleyfi fyrir breytingum á íbúðarhúsinu að Þernunesi 1. Lagt fram erindi sem borist hefur þar sem gerð er sú athugasemd að breytingin hafi hugsanlega áhrif á útsýni frá aðliggjandi lóð.
Skipulagsstjóri og byggingarfulltrúi gera grein fyrir niðurstöðu að lokinni skoðun.
Skipulagsnefnd telur að breyting skerði ekki útsýni frá aðliggjandi lóð. Breytingarnar eru alfarið í samræmi við deiliskipulag Arnarness sem fellt hefur verið úr gildi.
Skipulagsnefnd gerir ekki athugsemd við að byggingarleyfið verði veitt og felur skipulagsstjóra að svara athugasemdinni.
Málsnúmer 1609345
07
Holtsbúð 89 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að breytingu á húsinu Holtsbúð 89. Deiliskipulag fyrir Holtsbúð og Ásbúð hefur ekki verið staðfest og tekið gildi. Umsóknin er því til meðferðar samkvæmt 1. mgr. 44. gr. skipulagslaga og samþykkir skipulagsnefnd að falla frá grenndarkynningu þar sem umsóknin varðar ekki hagsmuni annarra en umsækjanda og sveitarfélagsins sbr. 2.ml. 3. mgr. 44.gr. Skipulagsnefnd samþykkir fyrir sitt leyti útgáfu á byggingarleyfi.
Málsnúmer 1409116
08
Holtsvegur 45 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi að Holtsvegi 45 með þar sem vikið er frá ákvæði um fjölda bílastæða á lóð sem nemur einu stæði en viðbótarstæði er í bílageymslu.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1409117
09
Holtsvegur 47 -Umsókn um byggingarleyfi -
Lögð fram umsókn um byggingarleyfi fyrir fjölbýlishúsi að Holtsvegi 47 með þar sem vikið er frá ákvæði um fjölda bílastæða á lóð sem nemur einu stæði en viðbótarstæði er í bílageymslu.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1607083
10
Dyngjugata 1-3 -Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram umsókn um breytingu á deiliskipulagi 2. áfanga norðurhluta Urriðaholts sem gerir ráð fyrir því að inngangi í tvær íbúðir frá svalagangi en skilmálum er kveðið á um innganga í íbúðir frá stigagangi.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1512258
11
Mosagata 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að fjölbýlishúsi á lóðinni við Mosagötu 1-3 þar sem vikið er frá ákvæðum um að hafa fjórar íbúðir undir 80m2 en það er tilkomið vegna aðstæðna í kjallara sem hafa þau áhrif að geymslur verða rúmgóðar. Þá leiðir af stærðum íbúða að vikið er frá ákvæðum um fjölda bílastæða.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1607131
12
Mosagata 5 - 7 - Umsókn um byggingarleyfi
Lögð fram byggingarleyfisumsókn að fjölbýlishúsi á lóðinni við Mosagötu 5-7 þar sem vikið er frá ákvæðum um að hafa fjórar íbúðir undir 80m2 en það er tilkomið vegna aðstæðna í kjallara sem hafa þau áhrif að geymslur verða rúmgóðar. Þá leiðir af stærðum íbúða að vikið er frá ákvæðum um fjölda bílastæða.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.
Málsnúmer 1611141
13
Lynghólar 32-38 - Ósk um deiliskipulagsbreytingu
Vísað í frekari skoðun hjá tækni-og umhverfissviði. Athuga þarf sérstaklega ákvæði um útfærslur hljóðvistar við Hafnarfjarðarveg og Engidalsgatnamót.