Beint í efni

Mosagata 5 - 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Málsnúmer 1607131

Ferill máls

Bæjarstjórn Garðabæjar

01

18. (801). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

02

18. (801). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

03

18. (801). fundur

Bæjarstjórn samþykkir tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um stærðir íbúða og fjölda bílastæða að Mosagötu 5-7, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga

Bæjarráð Garðabæjar

04

45. (1762). fundur

Bæjarráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að samþykkja tillögu skipulagsnefndar að falla frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi vegna frávika frá ákvæðum skilmála um stærðir íbúða og fjölda bílastæða, þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Baldur Ólafur Svavarsson, vék sæti við afgreiðslu málsins.

Skipulagsnefnd Garðabæjar

05

17. fundur

Lögð fram byggingarleyfisumsókn að fjölbýlishúsi á lóðinni við Mosagötu 5-7 þar sem vikið er frá ákvæðum um að hafa fjórar íbúðir undir 80m2 en það er tilkomið vegna aðstæðna í kjallara sem hafa þau áhrif að geymslur verða rúmgóðar. Þá leiðir af stærðum íbúða að vikið er frá ákvæðum um fjölda bílastæða.
Skipulagsnefnd telur að um óverulega breytingu sé að ræða samkvæmt 2. mgr. 43. gr. en samþykkir að vikið sé frá kröfu um breytingu á deiliskipulagi við útgáfu á byggingarleyfi þar sem um óverulegt frávik er að ræða sbr. heimild í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga.

Bæjarstjórn Garðabæjar

06

17. (800). fundur

Skipulagsnefnd Garðabæjar

07

16. fundur

Málinu frestað til næsta fundar.

Bæjarráð Garðabæjar

08

43. (1760). fundur

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dalhúsum ehf. kt. 541204-4830 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 22 íbúðum við Mosagötu 5-7.

Baldur Ó. Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.