Beint í efni

18. (801). fundur

01.12.2016
Bæjarstjórn Garðabæjar

18. (801). fundur

Bæjarstjórn Garðabæjar

í Safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli

01.12.2016

Kl. 17:00 - 19:00

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Gunnar Valur Gíslason - forseti bæjarstjórnar
  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Sigurður Guðmundsson - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Almar Guðmundsson - aðalmaður
  • Sturla D Þorsteinsson - aðalmaður
  • Guðrún Elín Herbertsdóttir - aðalmaður
  • Halldór Jörgen Jörgensson - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • María Grétarsdóttir - aðalmaður

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Auk þess sat fundinn Gunnar Einarsson, bæjarstjóri.[line][line]Fundurinn er hljóðritaður.[line][line]Gunnar Valur Gíslason, forseti bæjarstjórnar setti fund og stjórnaði.[line][line]Fundargerð bæjarstjórnar frá 17. nóvember 2016 er lögð fram.

Dagskrá

Málsnúmer 1611028F

01

Fundargerð bæjarráðs frá 22/11 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 14. tl., bréf SSH um tillögu að samkomulagi aðildarsveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna og19. tl., bréf íbúa í Frjóakri um lagfæringu á graseyjum.

Halldór Jörgensson, ræddi 19. tl., bréf íbúa í Frjóakri um lagfæringu á graseyjum.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 19. tl., bréf íbúa í Frjóakri um lagfæringu á graseyjum og 14. tl., bréf SSH um tillögu að samkomulagi aðildarsveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna.

Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi 11. tl., bréf KJ varðandi snjómokstur.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 14. tl., bréf SSH um tillögu að samkomulagi aðildarsveitarfélaga um undirbúning að innleiðingu hágæða almenningssamgangna.

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri, ræddi 11. tl., bréf KJ varðandi snjómokstur.

Fundargerðin sem er 24 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1611037F

02

Fundargerð bæjarráðs frá 29/11 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 1. tl. samstarfsamning við Stjörnuna.

Fundargerðin sem er 6 tl. er samþykkt samhljóða.

Málsnúmer 1611001F

03

Fundargerð leikskólanefndar frá 21/11 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611025F

04

Fundargerð skipulagsnefndar frá 17/11 ´16.

Sigurður Guðmundsson, ræddi 1. tl., endurskoðun aðalskipulags Garðabæjar

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611032F

05

Fundargerð skólanefndar tónlistarskóla Garðabæjar frá 23/11 ´16.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 1. tl., fjárhagsáætlun 2017 og fjallaði húsnæðismál og hugmyndir um viðbyggingu.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1602102

06

Fundargerð heilbrigðisnefndar frá 28/11 ´16.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1601267

07

Fundargerðir stjórnar Strætó bs. frá 4/11 og 18/11 ´16.

Steinþór Einarsson, ræddi 4. tl., fg. frá 4/11, stoppistöðvar og aðgengi fyrir alla.

Gunnar valur Gíslason, ræddi sama lið og svaraði fyrirspurn.

Fundargerðirnar lagðar fram.

Málsnúmer 1601474

08

Fundargerð stjórnar Sorpu bs. frá 25/11 ´16.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 3. tl., stöðu tilraunaverkefnis Seltjarnarnesbæjar og Sorpu bs. varðandi plastsöfnun og 11. tl., svansvottun á metanframleiðslu Sorpu bs.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi stöðu mála varðandi plastsöfnun.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi stöðu mála varðandi plastsöfnun. Þá ræddi Guðrún Elín 5. tl., erindi Gámaþjónustunnar vegna plastsöfnunar Kópavogsbæjar.

Jóna Sæmundsdóttir, kvaddi sér hljóðs og ræddi stöðu mála varðandi plastsöfnun. Þá ræddi Jóna 9. tl., formlega undirritun samnings við Aikan A/S og 11. tl., svansvottun á metanframleiðslu Sorpu.

Sturla Þorsteinsson, ræddi 5. tl., erindi Gámaþjónustunnar vegna plastsöfnunar Kópavogsbæjar.

Guðrún Elín Herbertsdóttir, ræddi að nýju 5. tl.

Almar Guðmundsson, ræddi 5. tl., erindi Gámaþjónustunnar vegna plastsöfnunar Kópavogsbæjar og vakti athygli á mikilvægi þess að gætt væri samkeppnissjónarmiða við verkefnið.

Steinþór Einarsson ræddi 5. tl. erindi Gámaþjónustunnar vegna plastsöfnunar Kópavogsbæjar.

Guðrún Elín Herbertsdóttir ræddi að nýju 5. tl., erindi Gámaþjónustunnar vegna plastsöfnunar Kópavogsbæjar.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi 11. tl., svansvottun á metanframleiðslu Sorpu og svaraði fyrirspurnum.

Fundargerðin lögð fram.

Málsnúmer 1611127

09

Tillaga um breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 og breytingu á viðaukum - síðari umræða.

Bæjarstjórn samþykkir tillögu að breytingu á samþykkt um stjórn Garðabæjar nr. 773/2013 og viðauka 1 um afgreiðslu nefnda og viðauka 2 um embættisafgreiðslur skipulagsstjóra.

Málsnúmer 1605502

10

Tillaga um breytingu á gjaldskrám 2017

Lagðar fram til afgreiðslu tillögur að setningu eftirfarandi gjaldskráa.

Gjaldskrá leikskóla

Gjaldskrá tómstundaheimila

Gjaldskrá sorphirðu hækkun

Gjaldskrá taðþróargjalda hækkun

Gjaldskrá bókasafns hækkun

Gjaldskrá sundlauga hækkun

Guðrún Elín Herbertsdóttir, kvaddi sér hljóðs og hvatti til þess að ekki komi til hækkunar á gjaldskrá leikskóla og tómstundaheimila.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá leikskóla með níu atkvæðum. Tveir (HJ,GEH) greiddu atkvæði á móti.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá tómstundaheimila með níu atkvæðum. Tveir (HJ,GEH) greiddu atkvæði á móti.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sorphirðu.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá taðþróargjalda.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá bókasafns.

Bæjarstjórn samþykkir gjaldskrá sundlauga.

Málsnúmer 1605502

11

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017-2020

Gunnar Einarsson, bæjarstjóri fjallaði um frumvarp að fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi tillögur um breytingar við frumvarpið

Jöfnunarsjóður -155.200.000

Útsvar -20.000.000

Fasteignaskattur 15.000.000

Gjaldskrá leikskóla 2,4% hækkun í stað 3,9% 5.300.000

Gjaldskrá tómstundaheimila 2,4% í stað 3,9% 1.000.000

Hvatapeningar hækkun úr 30.000 kr. í 32.000 kr. 5.000.000

Bragalundur, hönnunarkostnaður 2.000.000

Bessastaðasókn samningur v/safnaðarheimilis 6.000.000

Aldraðir, upplýs.rit/stefna 500.000

Sérverkefni vegna skólastjórnunar 5.000.000

Grunnskólar sérverkefni (skipt eftir nemendafjölda) 45.000.000

Grunnskólar sértæk verkefni 5.000.000

Leikskólar, reiknilíkan, forföll 36.665.000

Leikskólar pottur 12.000.000

Stjarnan verðbættur nýr samningur 4.600.000

Stjarnan verkefni/Þróun/nýbreytni 10.000.000

Félagsmiðstöðvarnar Klakinn og Elítan,

forstöðumenn í 100% starf 4.215.000

Strætó/frístundabíll Álftanesi 5.000.000

Framkvæmdir á opnum svæðum 15.000.000

Þátttaka veitna í launum bæjarskrifstofum og tæknideild -8.000.000

Breyting A - sjóður -5.920.000

Rekstrarhagnaður A-sjóðs skv. framlagðri -97.517.000

fjárhagsáætlun

Rekstrarhagnaður A-sjóðs -103.437.000

Þátttaka veitna í launum bæjarskrifstofum og tæknideild 8.000.000

Ísafold framlag til rekstraraðila verði 20 millj. - 20.025.101

(var 40.025.101 hallarekstur)

Samtals A og B -17.945.101

Reikningsskilaleg meðferð hjúkrunarheimilis -67.072.251

Samtals breytingar rekstur -17.945.101

Rekstrarhagnaður skv. framlagðri fjárhagsáætlun -346.099.00

Rekstrarhagnaður A og B 431.116.352

Bæjarstjóri gerði grein fyrir breytingum á tillögu að framkvæmdayfirliti en gert er ráð fyrir að heildarframkvæmdir á árinu 2017 verði 1.690.000.000 sem er hækkun um kr. 40.000.000 frá frumvarpi.

Steinþór Einarsson, kvaddi sér hljóðs, fjallaði um fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi tillögur.

Tillaga:

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra að koma á fót verkefni á vegum sumarstarfa ungmenna til að vinna að hreinsun og snyrtingu á gangstéttum og graseyjum í eldri hverfum bæjarins.

Greinargerð:

Víða í eldri hverfum hefur gras af graseyjum vaxið langt inn á gangstéttarnar þannig að þær hafa mjókkað til muna. Í þeim götum þar sem endurnýjun er ekki komin á áætlun gæti fyrsta skrefið verið að hreinsa og þar með breikka gangstéttarnar.

Tillaga:

Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að hefja undirbúning við gerð sérstakra hjólastæða við Ásgarð.

Greinargerð:

Þeim fjölgar sem notfæra sér almenningssamgöngur til og frá vinnu og því er góð þjónusta af hálfu bæjarfélagsins að bjóða upp á góða aðstöðu til að geyma reiðhjólin í námunda við aðalstoppistöðina.

Tillaga:Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að fela bæjarstjóra að koma á starfshópi til að vinna að möguleikum þess að hægt sé að flokka plast og það sé tekið með heimilissorpi.

Greinargerð:

Mikið fellur til af plasti á íslenskum heimilum í dag og er mikilvægt að það sé flokkað til endurvinnslu. Sorpa er með tilraunaverkefni í gangi með Seltjarnarnesbæ um að plast megi fara flokkað í heimilistunnuna. Fleiri sveitarfélög eru farin af stað með lausnir varðandi plastið.

María Grétarsdóttir, ræddi fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi bókanir.

Bókun 1:

Alvarlegt ástand mun ríkja í þjóðfélaginu ef ekki nást kjarasamningar við grunnskólakennara. Laun kennara sem kennt hafa í um 20 ár eru í kringum 465 þúsund krónur á mánuði eða sem nemur 42% af þingfararkaupi. Ef kennarar semja um að laun þeirra verði í kringum 60% af þingfararkaupi þá þýðir það um 200 þúsund króna hækkun á mánuði eða 360-400 milljóna króna árlega hækkun fyrir Garðabæ. Í varasjóði núverandi fjárhagsáætlunar eru um 200 milljónir.

Bókun 2:

Bæjarstjóri hefur ítrekað bent minnihlutanum í bæjarstjórn Garðabæjar á að meirihlutinn sé kosinn lýðræðislegri kosningu á fjögurra ára fresti og hann sé því við stjórnvölinn á milli kosninga. Þetta sjónarmið er mjög áberandi við gerð fjárhagsáætlunar þar sem minnihlutinn fær einn fund með meirihlutanum til að koma fram með sín sjónarmið. Nú í ár átti fundurinn að standa í tvo tíma en eftir einn tíma voru fulltrúar meirihlutans farnir að tínast út af fundinum og það áður en nokkur sjónarmið höfðu komið fram frá minnihlutanum.

FÓLKIÐ- í bænum hefur lagt áherslu á miðlæga þjónustu fyrir eldri borgara auk þess sem þeim standi til boða þjónustukort sem líkja má við hvatapeningakerfi unga fólksins. Lögð hefur verið áhersla á að hvatapeningar væru hækkaðir verulega og bent á hvernig fjármagna mætti þær hækkanir. Mikilvægt er að ráðast í gagnsæja stjórnsýslu hið fyrsta og feta þar í fótspor þeirra sveitarfélaga sem eru lengst komin á því sviði. Húsnæðismál ungs fólks þurfa að vera í forgrunni og áhugavert verður að sjá hvort ekki verður hægt að gera bragarbót á þeim málum í Garðabæ á næstu árum.

Fjárhagsáætlun Garðabæjar er fjárhagsáætlun meirihlutans. Bæjarfulltrúar minnihlutans eru ekki þátttakendur í undirbúningsvinnu meirihlutans við gerð fjárhagsáætlunar og hafa enga aðkomu að framkvæmdaáætlun næsta árs eða næstu þriggja ára. Bæjarfulltrúi FÓLKSINS- í bænum mun sitja hjá við afgreiðslu fjárhagsáætlunar meirihlutans í bæjarstjórn Garðabæjar.

Halldór Jörgensson ræddi fjárhagsáætlun og lagði fram eftirfarandi bókun.

Björt framtíð leggur áherslu á vönduð vinnubrögð. Því ber að fagna að gögn berist nú fyrr til umsagnar og yfirferðar við gerð fjárhagsáætlunar. Hins vegar er stærsti hluti áætlunarinnar unnin án samráðs við minnihlutann. Þar myndum við vilja sjá breytingu í framtíðinni þannig að allir kjörnir fulltrúar komi að mikilvægu máli eins og gerð fjárhagsáætlunar frá upphafi.

Björt framtíð hvetur meirihluta bæjarstjórnar að tileinka sér starfshætti annarra sveitarfélaga, eins og t.d. Kópavogs, þar sem allir bæjarfulltrúar koma að gerð fjárhags- og framkvæmdaáætlunar.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

Sturla Þorsteinsson, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

Sigríður Hulda Jónsdóttir, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

María Grétarsdóttir, tók til máls að nýju.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, tók til máls að nýju.

Gunnar Valur Gíslason, ræddi fjárhagsáætlun, framkomnar tillögur og bókanir.

Gunnar Einarsson, tók til máls að nýju.

Almar Guðmundsson, ræddi fjárhagsáætlun.

Áslaug Hulda Jónsdóttir, kvaddi sér hljóðs við afgreiðslu á tillögu um hvatapeninga og lagði fram eftirfarandi bókun.

Það er mikilvægt að í bæjarfélaginu sé starfrækt fjölbreytt og öflugt íþrótta- og tómstundastarf sem öll börn og ungenni í Garðabæ hafi kost á að taka þátt í. Með því að hvatapeningar hækki umfram vísitölu er komið til móts við þetta. Auk þess eru möguleikar við notkun hvatapeninga útvíkkaðir. Iðkendur Stjörnunnar eru mikill meirihluti þeirra sem nýta hvatapeninga. Í endurskoðun á nýjum samstarfssamningi við Stjörnuna sem nú er í vinnslu er lagður grunnur að nýju þróunarverkefni til tveggja ára. Með þessu þróunarverkefni er m.a. horft til þess að gert verði auðveldara fyrir börn og ungenni að æfa fleiri en eina íþróttagrein, mögulega brjóta upp æfingaárið í styttri tímabil og fleira. Með þessu er horft til framtíðar til hagsbóta fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra í Garðabæ.

María Grétarsdóttir, kvaddi sér hljóðs við afgreiðslu á tillögu um hvatapeninga.

Á fundinum er til afgreiðslu tillaga varabæjarfulltrúa Ingvars Arnarsonar frá síðasta fundi um hækkun hvatapeninga úr kr. 30.000 í kr. 45.000

Afgreiðsla mála

Tillaga um hækkun hvatapeninga í kr. 45.000 er felld með 7 atkvæðum (GVG,ÁHJ,SHJ,SG,JS,AG,SÞ). Fjórir bæjarfulltrúar greiddu atkvæði með tillögunni (GEH,HJ,SE,MG).

Tillaga um snyrtingu gangstétta samþykkt.

Tillaga um hjólastæði samþykkt.

Tillaga um flokkun sorps samþykkt.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum tillögu um breytingar á frumvarpi að fjárhagsáætlun. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum framkvæmdayfirlit fjárhagsáætlunar. María Grétarsdóttir situr hjá.

Bæjarstjórn samþykkir með tíu atkvæðum frumvarp að fjárhagsáætlun með framkomnum breytingartillögum sem fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017 og 2018 - 2020. María Grétarsdóttir situr hjá.

Niðurstöður rekstrarreiknings fyrir A og B hluta samkvæmt fjárhagsáætlun Garðabæjar fyrir árið 2017- 2020 eru:

Sjá fylgiskjal.