Beint í efni

43. (1760). fundur

08.11.2016
Bæjarráð Garðabæjar

43. (1760). fundur

Bæjarráð Garðabæjar

í fundarsal bæjarráðs í Ráðhúsi Garðabæjar við Garðatorg

08.11.2016

Kl. 08:00 - 09:30

Um fundinn

Nefndarmenn

  • Áslaug Hulda Jónsdóttir - formaður
  • Sigríður Hulda Jónsdóttir - aðalmaður
  • Jóna Sæmundsdóttir - aðalmaður
  • Steinþór Einarsson - aðalmaður
  • Baldur Ólafur Svavarsson - varamaður
  • María Grétarsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Gunnar Einarsson - bæjarstjóri
  • Guðjón Erling Friðriksson - bæjarritari
  • Eysteinn Haraldsson - bæjarverkfræðingur
  • Margrét Björk Svavarsdóttir - forstöðumaður fræðslu- og menningarsviðs
  • Bergljót K Sigurbjörnsdóttir - félagsmálastjóri

Ritari

  • Guðjón Erling Friðriksson,

Dagskrá

Málsnúmer 1512258

01

Mosagata 1 - 3 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dalhúsum ehf., kt. 541204-4830 leyfi til að breyta bílskýlum í bílskúra á lóðinni við Mosagötu 1-3

Baldur Ó. Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1607131

02

Mosagata 5 - 7 - Umsókn um byggingarleyfi

Bæjarráð samþykkir afgreiðslu byggingarfulltrúa að veita Dalhúsum ehf. kt. 541204-4830 leyfi til að byggja fjölbýlishús með 22 íbúðum við Mosagötu 5-7.

Baldur Ó. Svavarsson, vék af fundi við afgreiðslu málsins.

Málsnúmer 1608396

03

Greinargerð Nolta um úttekt á rekstri hjúkrunarheimilis, dags. í október 2016.

Á fund bæjarráðs koma Árni Sverrisson, ráðgjafi hjá Nolta ehf. og gerði grein fyrir helstu niðurstöðum í greinargerð um úttekt á rekstri Ísafoldar, hjúkrunarheimilis.

Bæjarráð telur niðurstöður úttektarinnar sýna með augljósum hætti að daggjöld sem ákvörðuð eru einhliða af ríkinu nægja á engan hátt til að tryggja jafnvægi í rekstri hjúkrunarheimilisins.

Bæjarráð ítrekar fyrri samþykkt um að ríkið yfirtaki starfsemi hjúkrunarheimilisins og felur bæjarstjóra jafnframt að kanna möguleika á að þriðji aðili sem hefur reynslu á þessum vettvangi yfirtaki reksturinn.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611011

04

Bréf Garðakórsins um styrk árið 2017, dags. 28.10.16.

Bæjarráð vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611020

05

Bréf Borgarleikhússins varðandi ósk um viðræður um samstarf, dags. 31.10.16.

Bæjarráð felur bæjarstjóra að ræða við bréfritara og vísar bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1603177

06

Skýrsla Sambands íslenskra sveitarfélaga um námsferð til kynningar á íbúalýðræði í sænskum sveitarfélögum.

Lögð fram.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1410266

07

Opnun tilboða í framkvæmdir við 3. áfanga Urriðaholtsskóla.

Eftirfarandi tilboð lögð fram.

Aflþing ehf. kr. 319.934.950

ÍAV ehf. kr. 374.736.411

LNS - Saga ehf. kr. 394.189.684

Kostnaðaráætlun kr. 317.151.750

Bæjarverkfræðingur gerði grein fyrir viðræðum við lægstbjóðanda.

Málsnúmer 1410458

08

Ályktun stjórnar Foreldrafélags Álftanesskóla og fulltrúa í skólaráði um húsnæðismál, dags. 01.11.16.

Bæjarstjóri gerði grein fyrir undirbúningi hönnunar viðbyggingar við Álftanesskóla en leitað hefur verið til Glámu Kím arkitekta, sem eru hönnuðir að byggingu síðasta áfanga skólans.

Bæjarráð samþykkir að vísa bréfinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar fyrir árin 2017-2020.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611019

09

Bréf Slökkviliðs höfuðborgarsvæðisins um gjaldskrá, dags. 31.10.16.

Bæjarráð vísar tillögu að nýrri gjaldskrá fyrir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611040

10

Umsagnarbeiðni um tímabundið áfengisleyfi vegna tónleika á Garðatorgi

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við að umbeðið leyfi verði veitt.

Málsnúmer 1611043

11

Minnisblað um leið 23 - Álftanes

Bæjarráð vísar minnisblaðinu til nánari skoðunar við afgreiðslu fjárhagsáætlunar 2017.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611046

12

Bréf Kópavogsbæjar um skipulagslýsingu fyrir Kársnes - þróunarsvæði, dags. 31.10.16.

Málsnúmer 1512145

13

Samningur um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog.

Lögð fram drög að samningi um úthlutun lóðar fyrir veitingastað við Arnarnesvog, sbr. samþykkt bæjarstjórnar frá 16. júní sl.

Málsnúmer 1609138

14

Skipun fulltrúa í dómnefnd vegna framkvæmdasamkeppni um nýtt deiliskipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Bæjarráð samþykkir að leggja við bæjarstjórn að skipa eftirfarandi aðila í dómnefnd framkvæmdasamkeppni um nýtt skipulag fyrir miðsvæði Álftaness.

Sigurður Guðmundsson, bæjarfulltrúi og formaður skipulagsnefndar, formaður nefndarinnar.

Guðmundur Kristján Jónsson, með prófgráðu í skipulagsfræðum.

Bjargey Björgvinsdóttir, arkitekt FAÍ, tilnefnd af Íslandsbanka.

Indro Indriði Candi, arkitekt FAÍ , tilnefndur af Arkitektafélagi Íslands.

Hlín Sverrisdóttir, landslagsarkitekt FÍLA og skipulagsfræðingur, tilnefnd af Arkitektafélagi Íslands.

Málsnúmer 1611055

15

Bréf frá Rauða krossinum í Reykjavík með afsökunarbeiðni varðandi rangfærslna í skýrslu, dags. 04.11.16.

Lagt fram bréf Rauða krossins í Reykjavík með afsökunarbeiðni til bæjaryfirvalda í Garðabæ vegna rangfærslna í skýrslunni Fólkið í skugganum, sem gefin er út af samtökunum.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1602213

16

Tillaga leikskólanefndar um úthlutun úr þróunarsjóði leikskóla haustið 2016.

Lögð fram afgreiðsla leikskólanefndar um úthlutun úr Þróunarsjóði leikskóla.

Leikskólanefnd hefur fjallað um allar umsóknir og leggur til að úthlutað verði kr. 2.405.000 úr sjóðnum til 5 verkefna.

Bæjarráð staðfestir tillögur leikskólanefndar um úthlutun styrkja, sbr. 4. gr. reglna um Þróunarsjóð leikskóla.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611039

17

Tillaga Bjartrar framtíðar um framkvæmdir við "Bragalund", dags. 03.11.16.

Bæjarráð vísar tillögunni til nánar skoðunar og kostnaðargreiningar tækni- og umhverfissviðs.

Fylgiskjöl

Málsnúmer 1611038

18

Tillaga Bjartrar framtíðar um óbreyttar gjaldskrár 2017, dags. 03.11.16.

Málsnúmer 1605502

19

Fjárhagsáætlun Garðabæjar 2017

Lögð fram eftirfarandi tillaga um álagningu útsvars á árinu 2017.

„Bæjarstjórn Garðabæjar samþykkir að álagningarhlutfall útsvars verði 13,70% á tekjur manna á árinu 2017 samkvæmt heimild í 23. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga nr. 4/1995, sbr. 24. gr. laganna.

Samþykkt bæjarstjórnar skal tilkynnt fjármála- og efnahagsráðuneytinu fyrir 15. desember 2016 samkvæmt 2. mgr. 24. gr. laga um tekjustofna sveitarfélaga.“

Bæjarráð vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Fylgiskjöl